Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinnur að nýrri áætlun sem ætlað er stuðla að því að hlutir, allt frá raftækjum til bygginga, séu lagfærðir eða endurunnir í stað þess að fleygja þeim og taka nýja í notkun í þeirra stað. Þessu á m.a. að ná fram með því að skylda framleiðendur til að gefa ráð um viðgerðir og niðurrif í notkunarleiðbeiningum í stað þess að tilgreina einungis hvernig staðið skuli að förgun. Sjónum verður sérstaklega beint að nýtingu á plasti, en um helmingur alls þess plasts sem tekið er í notkun endar í urðun eða á hafi úti með tilheyrandi hættu fyrir dýralíf. Vonast er til að þetta ýti undir vöxt hringrásarhagkerfisins á kostnað einnotahagkerfisins sem víða er við lýði. Gert er ráð fyrir að umrædd áætlun líti formlega dagsins ljós í næsta mánuði.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
Greinasafn fyrir merki: ESB
90.000 tonnum af fatnaði bjargað frá urðun árlega
Bresku WRAP samtökin um úrgang og auðlindir (Waste & Resources Action Programme) hafa hleypt af stokkunum nýju verkefni til að draga úr fatasóun í Evrópu. Verkefnið, sem gengur undir nafninu ECAP (European Clothing Action Plan), er styrkt af evrópskum sjóðum og nær til 11 Evrópulanda, þ.á.m. allra Norðurlandanna að Íslandi frátöldu. Markmið verkefnisins er að minnka urðun fataúrgangs um 90.000 tonn á ári frá og með árinu 2019.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Frakkar hafna erfðabreyttri ræktun
Frönsk stjórnvöld ætla að nýta sér höfnunarkerfi Evrópusambandsins (ESB) til að viðhalda banni við ræktun á erfðabreyttum plöntum í landinu. Höfnunarkerfið, sem samþykkt var í mars, heimilar einstökum aðildarríkjum ESB að sækja um undanþágu frá öllum samþykktum sem heimila ræktun erfðabreyttra plantna í löndum sambandsins. Erfðabreytta maísafbrigðið MON810 frá Monsanto hefur hingað til verið eina erfðabreytta plantan sem ræktuð er í Evrópu, nánar tiltekið á Spáni og í Portúgal, en umsóknir um leyfi til ræktunar fleiri afbrigða bíða nú afgreiðslu hjá ESB. Þar á meðal er skordýraþolinn maís frá DuPont Pioneer og Dow Chemical, sem gengur undir nafninu 1507. Frakkar eru stærstu framleiðendur og útflytjendur korns í Evrópu, en Þjóðverjar hafa einnig ákveðið að beita höfnunarákvæðinu. Sama gildir m.a. um Letta og Grikki.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
ESB bannar 4 skaðleg efni í leikföngum fyrir börn
Evrópusambandið samþykkti í dag bann við notkun metýlísóþíasólínóns (MI) og þriggja annarra efna í leikföng fyrir börn undir þriggja ára aldri og í öllum nagleikföngum. MI er rotvarnarefni sem m.a. hefur verið notað í andlitsmálningu fyrir börn og hafa ofnæmisviðbrögð við efninu farið mjög í vöxt á síðustu árum. Tvö hinna efnanna eru einnig ofnæmisvaldandi rotvarnarefni, en þar er um að ræða bensísóþíasólínón (BIT) og klórmetýlísóþíasólínón (CMI). Fjórða efnið er formamíð sem talið er hormónaraskandi og má meðal annars finna í leikmottum fyrir börn. Eftir sem áður má nota rotvarnarefnin þrjú í snyrtivörur fyrir fullorðna, en norrænir neytendur geta varast þessi efni með því að velja Svansmerktar snyrtivörur.
(Sjá frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar Danmerkur í dag).
Styrkur lyfja í evrópskum ám víða yfir mörkum
Hópur vísindamanna á vegum Evrópusambandins hefur reiknað út styrk þriggja algengra lyfja í evrópskum ám og komist að þeirri niðurstöðu að styrkurinn sé í allnokkrum tilvikum yfir viðmiðunarmörkum Vatnatilskipunar ESB. Lyfin sem um ræðir eru etinýlestradíól, estradíól og díklófenak. Tvö fyrrnefndu lyfin eru notuð í getnaðarvarnarpillur og sem staðgöngulyf fyrir hormón en díklófenak er bólgueyðandi (og má finna m.a. í Voltaren). Öll þessi efni eru talin hafa neikvæð áhrif á vistkerfi vatnasvæða, m.a. vegna áhrifa á hormónastarfsemi fiska, og eru því undir sérstöku eftirliti innan ESB. Niðurstöðurnar benda til að styrkur etinýlestradíóls sé yfir viðmiðunarmörkum í um 12% af evrópskum ám, að styrkur estradíóls sé yfir mörkum í 1,5% tilfella og að styrkur diklófenaks sé sömuleiðis yfir mörkum í 1,5% ánna. Ástandið er talið verst í Þýskalandi, Hollandi, Póllandi og Rúmeníu, þar sem allt að þriðjungur ánna stenst ekki gæðakröfur vatnatilskipunarinnar hvað þetta varðar.
(Sjá fréttablað ESB um umhverfisstefnumótun 21. maí).
Afli tvöfaldaður með sjálfbærum fiskveiðum
Bretar gætu tvöfaldað sjávarafla sinn á næstu 10 árum ef kvótaheimildir ESB væru í takt við ráðgjöf rannsóknarstofnana. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn frá New Economics Foundation þar sem mælt er með lækkun kvótaheimilda fyrir ákveðna stofna sem hafa verið ofveiddir, þannig að stofnarnir geti náð sér. Með þessu móti gæti breski fiskveiðiflotinn aukið afla sinn úr 560 milljónum tonna í 1.100 milljónir með tilheyrandi aukningu í tekjum og fjölgun starfa. Menn eru hins vegar tregir til að minnka kvótann, þar sem það getur haft mikil áhrif á efnahaginn til skamms tíma. Kvótarnir eru ákveðnir með tilliti til sögu fiskveiða og stærðar fiskveiðiflota í hverju landi, en sjávarútvegsráðherrum ESB ber engin skylda til að taka tillit til sjálfbærrar auðlindanýtingu til að koma í veg fyrir ofveiði. Endurbætur á kvótakerfi ESB eru þó á döfinni á næstu 5 árum þar sem lögð verður áhersla á að kvóti sé ákveðinn út frá sjálfbærum hámarksafla.
(Sjá frétt the Guardian í dag).
Líftími raftækja styttist
Í rannsókn Umhverfisstofnunar Þýskalands á „skipulegri úreldingu“ (e. built-in obsolescence) kom í ljós að sífellt fleiri raftæki eru seld til að koma í stað gallaðrar vöru. Árið 2004 var aðeins um 3,5% seldra raftækja í Evrópu ætlað að koma í stað gallaðra vöru en árið 2012 var hlutfallið komið í 8,3%. Á sama tíma hefur hlutfall stórra heimilistækja sem bila á fyrstu fimm árunum hækkað úr 7% árið 2004 í 13% árið 2013. Þessar tölur benda til að gæði og endingartími raftækja séu á niðurleið og að hugsanlega leggi raftækjaframleiðendur áherslu á stuttan líftíma til þess að auka sölu. Styttingu á líftíma má einnig rekja til neysluvenju þar sem neytendur leggja sífellt meiri áherslu á að eiga nýjasta módelið. Þannig voru um 60% allra sjónvarpstækja sem skipt var út árið 2012 í góðu lagi. Stjórnvöld innan ESB hafa áhyggjur af óábyrgri auðlindanotkun og áhrifum hennar á umhverfið og eru að skoða möguleika á að skylda framleiðendur til að tryggja endingu og að hægt sé að gera við raftækin.
(Sjá frétt the Guardian 3. mars).
Leyfilegur styrkur BPA of hár
Matvælastofnun danska Tækniháskólans (DTU) telur að viðmið sem Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) gaf út í síðasta mánuði fyrir þolanlegan hámarksdagskammt Bisfenóls-A (BPA) sé of hátt. Að mati EFSA ætti dagleg inntaka á 4 míkrógrömmum á hvert kíló líkamsþyngdar að vera örugg frá heilsufarslegu sjónarmiði, en eftir að hafa rýnt þær heimildir sem EFSA byggir niðurstöðu sína á telur DTU að miða ætti við 0,7 míkrógrömm. Sérfræðingar DTU telja að í ráðleggingum EFSA sé ekki nægjanlegt tillit tekið til vísbendinga úr dýrarannsóknum um áhrif efnisins á brjóstvef, þroskun kynfæra og þroskun heila. Því feli hin nýja skilgreining á þolanlegum hámarksdagskammti (e. tolerable daily intake (TDI)) ekki í sér nægjanlega vernd fyrir neytendur. BPA er einkum að finna í tilteknum plastumbúðum og í kassakvittunum og er talið raska hormónastarfsemi líkamans.
(Sjá frétt á heimasíðu DTU 23. febrúar).
Orkunotkun í Evrópu dregst saman
Orkunotkun innan ESB árið 2013 var sú lægsta sem sést hefur frá því fyrir 1990 að því er fram kemur í tölum frá Hagstofu Evrópusambandsins. Væntanlega á vaxandi áhersla aðildarríkjanna á orkunýtni stóran þátt í þessari þróun, en hluti af skýringunni liggur eflaust einnig í slæmu efnahagsástandi á evrusvæðinu á síðustu árum. Betri orkunýting hefur verið sérstaklega í brennidepli í nýjum aðildarríkjum, þar sem engin áhersla var lögð á slíka þætti áður en ríkin gengu í sambandið. Orkunotkun í Evrópu náði hágmarki árið 2006 þegar hún var um 1.832 milljónir olíuígildistonna, en árið 2013 var hún 9% lægri eða um 1.666 milljón tonn. Þrátt fyrir þetta er ESB ennþá mjög háð jarðefnaeldsneyti og um 50% af orkuþörfinni er mætt með jarðefnaeldsneyti frá löndum utan sambandsins.
(Sjá frétt the Guardian 9. febrúar).
Skaðleg efni í snyrtivörum fyrir börn
Tíu vörur sem flokkast sem snyrtivörur fyrir börn reyndust allar innihalda skaðleg efni þegar norsku neytendasamtökin (Forbrukerrådet) könnuðu innihald þeirra á dögunum í leit sinni að ofnæmisvaldandi og hormónaraskandi efnum. Sex vörutegundir innihéldu sérstaka tegund af útblámasíu (e. UV-filter) sem ESB hefur skilgreint sem hormónaraskandi og mælt með að ekki sé notuð í vörur fyrir börn. Þá fannst ilmefnið Lyral í þremur vörum, en árið 2011 lagði vísindanefnd ESB til að Lyral yrði bannað í vörum fyrir börn vegna þess hversu öflugur ofnæmisvaldur það er. Að mati Forbrukerrådet gefa þessar niðurstöður skýrt til kynna að þörf sé á strangari reglugerðum um efni í neytendavörum, og þá sérstaklega þegar um er að ræða vörur sem markaðsettar eru fyrir börn.
(Sjá frétt Forbrukerrådet 22. janúar).