Svansmerkt einnotaáhöld eru nú fáanleg í fyrsta sinn, en dansk-norska fyrirtækið Greenway fékk á dögunum leyfi til að merkja nokkrar af vörum sínum með Norræna svaninum. Einnotaáhöldin frá Greenway eru búin til úr pálmablöðum og brotna auðveldlega niður í náttúrunni. Um er að ræða áhöld á borð við diska, skálar og matarföt, en til að fá vottun Svansins þarf að uppfylla strangar kröfur um efnainnihald og sitthvað fleira. Áhöldin mega t.d. ekki innihalda flúorsambönd eða þalöt og mega ekki vera úr endurunnum hráefnum þar sem efnaleifar kunna að leynast í þeim. Stór hluti hráefnanna þarf hins vegar að vera endurnýjanlegur, auk þess sem gerðar eru strangar kröfur um orkunotkun í framleiðslunni og um að hægt sé að jarðgera áhöldin eða endurvinna þau með öðrum hætti. Með því að fá Svansmerkingu á vörurnar er Greenway að bregðast við vaxandi eftirspurn viðskiptavina, svo sem frá mötuneytum, hótelum og dagvöruverslunum.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Danmörku í dag).
Um 430.000 manns deyja vegna loftmengunar í Evrópu
Á hverju ári má rekja um 430.000 dauðsföll í Evrópu til loftmengunar samkvæmt nýrri skýrslu frá Umhverfisstofnun Evrópu. Í skýrslunni kemur fram að loftmengun sé helsta dánarorsök í álfunni þar sem mengunin stuðli að hjartasjúkdómum, krabbameini og vandamálum í öndunarfærum og dragi þannig úr lífslíkum og lífsgæðum Evrópubúa. Um 87% Evrópubúa í þéttbýli búa við svifryksmengun sem er ofan við viðmiðunarmörk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Viðmiðunarmörk ESB eru mun lægri en mörk WHO og bjuggu samkvæmt þeim aðeins 9% íbúa við óviðunandi mengun. Koma mætti í veg fyrir um 144.000 ótímabær dauðsföll árlega ef Evrópusambandið myndi innleiða staðla WHO. Mest loftmengun í Evrópu mælist í Þýskalandi, Ítalíu, Póllandi, Frakklandi og Bretlandi.
(Sjá frétt EDIE 30. nóvember).
Umhverfisjóladagatal Svía komið á netið
Í dag er fyrsti dagurinn í flestum sjónvarps-, súkkulaði- og umhverfisjóladagatölum! Sænsku umhverfissamtökin Håll Sverige Rent hafa útbúið sérstakt umhverfisjóladagatal fyrir börn í 1.-6. bekk grunnskóla þar sem lögð er áhersla á skemmtilega fræðslu um sænsku umhverfismarkmiðin (hin svokölluðu Miljömål). Dagatalið er gefið út á netinu með leiðbeiningum fyrir kennara. Í fyrsta glugganum stendur „Hvað vitið þið mikið um fiska? Við ætlum að komast að því í dag“. Glugginn leiðir börnin svo á sérstaka síðu þar sem finna má fræðslu um fiska í hafinu í kringum Svíþjóð og í stöðuvötnum landsins. Dagurinn er tileinkaður umhverfismarkmiðinu um „Heilbrigð höf og vötn“.
(Sjá heimasíðu Håll Sverige Rent í dag).
Dönsk fyrirtæki gætu grætt milljarða á hringrásarhagkerfinu
Aukin áhersla á hringrásarhagkerfi gæti aukið þjóðarframleiðslu í Danmörku um 0,8-1,4%, skapað 7.000-13.000 ný störf og aukið nettóútflutning um 3-6% miðað við árið 2035, að því er fram kemur í nýrri úttekt frá Ellen MacArthur stofnuninni. Áherslur af þessu tagi gætu m.a. aukið tekjur matvælafyrirtækja um samtals 3-6 milljarða danskra króna á ári (56-112 milljarða ísl. kr.). Samhliða þessu myndi notkun nýrra hráefna minnka og kolefnisfótspor Dana sömuleiðis. Hringrásarhagkerfið miðar að því að hámarka verðmæti aðfanga. Þetta er m.a. hægt að gera með aukinni endurnotkun og endurvinnslu, bættri vöruhönnun og áherslu á ný viðskiptalíkön sem byggja á samnýtingu og kaupleigu.
(Sjá frétt á heimasíðu Miljøstyrelsen 26. nóvember).
Bænarbréf frá sökkvandi eyjum
Anote Tong, forseti eyríkisins Kiribati, hefur skrifað bréf til leiðtoga þjóða heims með bón um að stöðva öll áform um að opna nýjar kolanámur. Að öðrum kosti sé hætta á að Kiribati og nokkur önnur eyríki hverfi undir yfirborð sjávar vegna loftslagsbreytinga. Auk Kiribati hafa tíu önnur eyríki í Kyrrahafi skrifað undir bréfið, en fátt er um svör frá leiðtogum iðnríkjanna. Það gildir m.a. um sænsk stjórnvöld, þrátt fyrir að Anote Tong hafi rætt þessi mál sérstaklega við bæði forsætis- og þróunarmálaráðherra Svíþjóðar í heimsókn sinni þangað á liðnu vori. Í nýlegu viðtali við Svenska Dagbladet sagði Richard Denniss, yfirhagfræðingur hugveiturnnar The Australian Institute, að ástæðan kunni að liggja í áhyggjum sænsku ríkisstjórnarinnar af afkomu ríkisorkufyrirtækisins Vattenfall, sem hefur mikla hagsmuni af viðskiptum með kol. „Tölum bara hreint út. Ef nýjar kolanámur verða opnaðar munu lönd á borð við Kiribati sökkva“, sagði Richard í viðtalinu.
(Sjá frétt Miljöaktuellt í dag).
Auglýsingaskilti í „endurnýjun lífdaga“
Auglýsingaskilti úr plasti sem sett voru upp við Þúsaldarvöllinn í Cardiff á meðan heimsmeistarakeppnin í ruðningi fór þar fram í haust, hafa nú gengið í „endurnýjun lífdaga“ fyrir tilstilli umbúðafyrirtækisins DS Smith. Sá hluti skiltanna sem framleiddur hafði verið úr pólýprópýlenplasti (PP) var malaður og breytt í hráefni fyrir nýjar PP-vörur. Með þessu móti var unnt að endurvinna 98% af heildarþyngd PP-skiltanna. Þegar til átti að taka kom hins vegar í ljós að stór hluti skiltanna var úr annars konar plasti sem ekki var hægt að endurvinna, svo sem úr PVC eða úr blöndu af fleiri fjölliðum. Þar sem skilti sem þessi eru efnismikil er ljóst að miklu skiptir úr hvers konar plasti þau eru gerð.
(Sjá frétt EDIE 24. nóvember).
Fjárfestar gætu tapað 260 þúsund milljörðum
Á næstu 10 árum gætu fjárfestar tapað allt að 2.000 milljörðum Bandaríkjadala (um 260.000 milljörðum ísl. kr.) af því fé sem þeir hafa lagt í fyrirtæki og verkefni í jarðefnaeldsneytisgeiranum, þ.e.a.s. ef leiðtogar þjóða heims ná samkomulagi í París í næsta mánuði um aðgerðir sem duga til að halda hitastigshækkun á jörðinni innan við 2°C. Til að ná því marki þarf að draga hratt og mikið úr losun gróðurhúsalofttegunda, sem þýðir m.a. að engin þörf verður fyrir nýjar kolanámur og að eftirspurn eftir olíu mun minnka eftir 2020. Því verða mörg áformuð verkefni tilgangslaus og óarðbær, m.a. olíuboranir á Norðurheimskautssvæðinu og vinnsla á tjörusandi. Þetta kemur fram í skýrslu hugveitunnar Carbon Tracker sem kynnt var í vikunni. Framkvæmdastjóri Carbon Tracker hafði á orði þegar skýrslan var kynnt að viðskiptasagan væri vörðuð dæmum af fyrirtækjum á borð við Kodak, sem hefðu ekki áttað sig á yfirvofandi breytingum og því setið eftir. Skýrslan fæli í sér viðvörun til fyrirtækja í jarðefnaeldsneytisgeiranum um hættuna á verulegu verðmætatapi sem komast mætti hjá.
(Sjá frétt The Guardian í dag).
Varasöm efni í flestum andlitskremum
Engin af 20 tegundum vinsælla andlitskrema í dýrari kantinum sem dönsku neytendasamtökin Tænk tóku til skoðunar á dögunum reyndist laus við varasöm efni. Umrædd efni eru ekki á bannlista og ekki talin skaðleg í litlu magni, en geta engu að síður verið varasöm vegna samverkandi áhrifa með öðrum efnum, þ.e. svonefndra kokteiláhrifa. Sex tegundir af 20 fengu rauða spjaldið hjá Tænk, þar sem þau innhéldu parabena eða önnur efni sem talin eru geta truflað hormónastarfsemi líkamans. Hin fjórtán fengu gula spjaldið vegna þess að þau innihéldu ýmist umhverfisskaðleg efni eða ilmefni sem geta aukið hættuna á ofnæmi.
(Sjá frétt á heimasíðu Tænk í gær).
90 nýjar hleðslustöðvar fyrir COP21 í París
Bílaframleiðandinn Renault-Nissan ætlar að setja upp 90 nýjar hleðslustöðvar fyrir rafbíla í París áður en loftslagsráðstefnan COP21 hefst þar um mánaðarmótin. Verkið er unnið í samvinnu við borgaryfirvöld í París og orkufyrirtækið Schneider Electric, en bílaframleiðandinn mun útvega 200 rafbíla af gerðinni Nissan LEAF og Renault ZOE til að flytja fulltrúa á ráðstefnunni á milli staða. Gert er ráð fyrir að þessir bílar leggi samtals að baki rúma 400.000 km á þeim tveim vikum sem ráðstefnan stendur. Carlos Ghosn, forstjóri Renault-Nissan, hefur haft á orði að uppbygging innviða fyrir rafbíla sé skylduverkefni allra ríkja og borga sem taka hlutverk sitt í umhverfismálum alvarlega.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Varnarefnaleifar í meira en helmingi innfluttra ávaxta og grænmetis
Varnarefnaleifar eru til staðar í 73% ávaxta og 52% grænmetis sem framleitt er í löndum Evrópusambandsins og selt á dönskum markaði, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Matvælastofnunar Danmerkur (Fødevarestyrelsen). Hlutfallið er nokkru lægra (69% og 46%) í ávöxtum og grænmeti frá löndum utan sambandsins og enn lægra (45% og 25%) í dönskum ávöxtum og grænmeti, Styrkur varnarefna í grænmeti og ávöxtum er þó sjaldan yfir viðmiðunarmörkum. Hæst er þetta hlutfall í grænmeti frá löndum utan ESB, eða um 4%. Þessar niðurstöður byggja á 2.510 sýnum sem tekin voru úr umræddum vörum. Þar af voru 179 sýni úr lífrænum vörum, en þar fundust engar varnarefnaleifar.
(Sjá frétt á heimasíðu Fødevarestyrelsen í dag).