Sólarvegurinn gerir það gott

solarENNFyrsti sólarselluhjólastígur heimsins hefur skilað betri árangri en menn þorðu að vona, en þessa dagana er eitt ár liðið síðan þessi 70 m langi hjólastígur í útjaðri Amsterdam var opnaður fyrir umferð. Yfirborðslagið á stígnum er gert úr 3 mm þykkum glerhúðuðum sólarsellum sem framleiða rafmagn fyrir ljósastaura eða til annarra nota. Á fyrstu sex mánuðunum framleiddi stígurinn samtals rúmlega 3.000 kwst af raforku, eða sem samsvarar orkuþörf eins heimilis í u.þ.b. heilt ár.
(Sjá frétt ENN í dag).

G20-ríkin moka fé í olíuiðnaðinn

offshore_sea_drilling_statoilG20-ríkin verja árlega um 452 milljörðum Bandaríkjadala (um 59.000 milljörðum ísl. kr.) í stuðning við kola-, olíu- og gasiðnaðinn, að því er fram kemur í nýrri skýrslu bresku hugveitunnar Overseas Development Institute. Í skýrslunni eru umrædd ríki gagnrýnd fyrir að fylgja ekki eigin stefnu í loftslagsmálum, en þau hafa öll heitið að vinna gegn loftslagsbreytingum. Stuðningur ríkjanna við jarðefnaeldsneytisgeirann er fjórfalt hærri en allir samanlagðir ríkisstyrkir þjóða heims til framleiðslu á endurnýjanlegri orku, svo sem í sólar- og vindorkuverum. Með afnámi styrkja til jarðefnaeldsneytisgeirans myndi skapast eðlilegt samkeppnisumhverfi á orkumarkaði, að því er fram kemur í skýrslunni.
(Sjá frétt EurActive 12. nóvember).

Varasöm efni algeng í rakvélablöðum

skrabere-test-web1Ellefu af 27 tegundum rakvélablaða sem teknar voru fyrir í nýlegri könnun dönsku neytendasamtakanna Tænk reyndust innihalda rotvarnarefnið BHT sem talið er geta raskað hormónastarfsemi líkamans. Rakvélablöðin sem skoðuð voru áttu það öll sameiginlegt að vera með sérstaka innbyggða smurrák (d. lubrastrip) sem ætlað er að mýkja húðina við rakstur. Efnið sem um ræðir er notað til að koma í veg fyrir að smurrákin oxist. BHT fannst í rakvélablöðum frá BIC og Gillette, en ekki í blöðum frá öðrum framleiðendum. Ólíklegt er að hormónaraskandi efni í vörum af þessu tagi hafi mikil skaðleg áhrif ein og sér, þar sem varan liggur ekki eins lengi á húðinni eins og t.d. húðkrem. Hins vegar getur þetta efni átt þátt í hormónaraskandi kokteiláhrifum þegar saman koma fleiri svipuð efni úr öðrum neytendavörum.
(Sjá frétt á heimasíðu Tænk í dag).

Fyrstu styrkveitingar Græna loftslagssjóðsins

viewimage (160x73)Stjórn Græna loftslagssjóðsins (e. Green Climate Fund (GCF)) samþykkti fyrstu átta styrkveitingar sjóðsins á dögunum, samtals að fjárhæð 168 milljónir Bandaríkjadala (um 22 milljarðar ísl. kr.). Þar með er starfsemi sjóðsins formlega hafin, en sjóðurinn var stofnaður á loftslagsráðstefnunni COP16 í Cancún haustið 2010. Sjóðurinn er að mestu fjármagnaður af iðnríkjunum og er ætlað að styðja við loftslagsverkefni í þróunarlöndum, bæði til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og til að auðvelda aðlögun samfélaga að loftslagsbreytingum. Af þessum fyrstu átta verkefnum eru þrjú í Afríku, þrjú á Kyrrahafssvæðinu og tvö í Suður-Ameríku. Gert er ráð fyrir að þessi verkefni muni leiða af sér fjárfestingar fyrir samtals 1,3 milljarða dala (um 170 milljarða ísl. kr.) á næstu fimm árum.
(Sjá frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna í dag).

Kolding fær grænu innkaupaverðlaunin 2015

indkoeb-foto_1170x400 (160x65)Sveitarfélagið Kolding fékk dönsku grænu innkaupaverðlaunin 2015, en verðlaunin voru afhent sl. fimmtudag á ráðstefnunni Ryd stenene af vejen (ísl. „Hreinsið grjótið af götunni“) þar sem aðilar sem sjá um útboð og innkaup báru saman bækur sýnar. Verðlaunin fékk Kolding fyrir innkaup á vistvænum vetnisbílum og samstarf um uppsetningu áfyllingarstöðvar fyrir vetni. Þrír aðrir aðilar voru tilnefndir til verðlaunanna, þ.e.a.s. Hróarskelduhátíðin fyrir átak sitt til að gera hátíðina umhverfisvænni, skrifstofuvöruverslanirnar Lyreco fyrir að aðstoða viðskiptavini sína við sjálfbær innkaup og Kaupmannahafnarborg og flutningafyrirtækið Bryde & Sønner fyrir sjálfbærniáherslur í flutningaþjónustu.
(Sjá frétt á heimasíðu Miljøstyrelsen 6. nóvember).

Leikskóli selur foreldrum matarafganga

Gungor-och-flagga (160x120)Foreldrar barna á leikskólanum Dalby Hage utan við Uppsali í Svíþjóð eiga þess nú kost að kaupa matarafganga frá leikskólanum. Matráðskonan á leikskólanum stakk upp á þessu á foreldrafundi og fékk góðar undirtektir. Afgangarnir eru seldir í öskjum og kostar skammturinn 25 sænskar krónur (um 380 ísl. kr.). Foreldrar hafa tekið þessu fagnandi og um leið dregur þetta úr matarsóun á leikskólanum. Tekjunar af sölunni verða nýttar til að auka hlutdeild lífrænna matvæla og staðbundinnar framleiðslu í innkaupum leikskólans.
(Sjá frétt MiljöAktuellt í dag).

67% af almenningssamgöngum í Svíþjóð knúin með endurnýjanlegu eldsneyti

BiodieselhybriderHlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í almenningssamgöngum í Svíþjóð er komið í 67% en árið 2006 var þetta hlutfall aðeins 6%. Á síðasta ári var hlutfallið 58%. Þá var Stokkhólmslén sá landshluti þar sem hlutfallið var hæst, en árið 2014 voru 85,7% af öllum kílómetrum í almenningssamgöngum á því svæði eknir á endurnýjanlegu eldsneyti. Lífdísill er langmest notaða endurnýjanlega eldsneytið, metan af endurnýjanlegum uppruna (lífgas) er víðast hvar í öðru sæti og í Stokkhólmi og víðar er einnig nokkuð notað af etanóli (ED95).
(Sjá frétt í Bussmagasinet í gær).

Viðgerðir og endurnotkun í brennidepli

73860Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinnur að nýrri áætlun sem ætlað er stuðla að því að hlutir, allt frá raftækjum til bygginga, séu lagfærðir eða endurunnir í stað þess að fleygja þeim og taka nýja í notkun í þeirra stað. Þessu á m.a. að ná fram með því að skylda framleiðendur til að gefa ráð um viðgerðir og niðurrif í notkunarleiðbeiningum í stað þess að tilgreina einungis hvernig staðið skuli að förgun. Sjónum verður sérstaklega beint að nýtingu á plasti, en um helmingur alls þess plasts sem tekið er í notkun endar í urðun eða á hafi úti með tilheyrandi hættu fyrir dýralíf. Vonast er til að þetta ýti undir vöxt hringrásarhagkerfisins á kostnað einnotahagkerfisins sem víða er við lýði. Gert er ráð fyrir að umrædd áætlun líti formlega dagsins ljós í næsta mánuði.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).

Snuðin stóðust prófið

width_680.height_330.mode_crop.Anchor_TopleftSnuð sem seld eru í Noregi eru laus við krabbameinsvaldandi efni ef marka má úttekt sem Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet) gerði á dögunum. Leitað var að nítrósamínum og nítrósamínmyndandi efnum í 18 tegundum af snuðum úr latexi og sílikoni sem keypt voru í norskum verslunum. Ekkert snuðanna reyndist innihalda slík efni. Flest nítrósamín eru krabbameinsvaldandi, en efni af þessu tagi leynast iðulega í vörum úr latexi og sílikoni.
(Sjá frétt á heimasíðu Miljødirektoratets 2. nóvember).

Fljótandi vindmyllur við Skotland

29244Ríkisstjórn Skotlands hefur veitt leyfi fyrir stærsta fljótandi vindorkugarði heims sem olíurisinn Statoil ætlar að setja upp út af austurodda Skotlands við Peterhead. Þarna verður komið fyrir fimm fljótandi 6 MW vindmyllum og er vonast til að þær geti samtals framleitt 135 GWst af raforku á ári, sem nægir u.þ.b. 20 þúsund heimilum. Ætlunin er að hefjast handa við verkefnið á næsta ári. Með þessu vill Statoil sýna fram á að tæknin sé samkeppnishæf, en fljótandi vindorkugarðar eru frábrugðnir hefðbundnum vindorkugörðum í hafi að því leyti að vindmyllurnar standa ekki á botni, heldur fljóta þær í yfirborðinu, eru tengdar saman með rafmagnsköplum og haldið stöðugum með akkerum. Tæknin nýtist þar af leiðandi á mun dýpri hafsvæðum en ella. Rannsóknir benda til að stofnkostnaður stórra verkefna af þessu tagi geti farið niður í 85 sterlingspund/MWst, en meðalkostnaður við botnfasta vindorkugarða er um 112 pund/MWst.
(Sjá frétt EDIE í gær).