Tuttuguogfimm af 89 tegundum varasalva sem dönsku neytendasamtökin Tænk prófuðu nýlega fengu falleinkunn vegna innihaldsefna sem eru ofnæmisvaldar eða eru talin geta truflað hormónastarfsemi líkamans. Aðeins 17 tegundir voru laus við varasöm efni og fengu þar af leiðandi ágætiseinkunn á prófinu. Tænk bendir á að varasalvi sem inniheldur hormónaraskandi efni sé ekki endilega skaðlegur heilsunni einn og sér en efni úr varasalva geti auðveldlega borist inn í líkamann og bæst þar við efnakokteil af öðrum uppruna. Samtökin mæla með því að fók noti Svansmerktan varasalva. Slíkur varasalvi er laus við hormónaraskandi efni, þó að hann kunni að innihalda einhver ilmefni sem stuðlað geta að ofnæmi.
(Sjá frétt á heimasíðu Tænk 25. október).
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: október 2015
Eingöngu lífrænt hveiti í hillunum hjá Irma
Framvegis mun danska verslunarkeðjan Irma eingöngu selja lífrænt hveiti, en hlutdeild lífræns hveitis í heildarhveitisölunni var áður kominn upp í 87%. Ákvörðun Irma byggir m.a. á því viðhorfi stjórnenda keðjunnar að lífrænt vottað hveiti sé bæði bragðbetra og betra í bakstur en annað hveiti, auk þess sem umhverfisáhrifin eru minni. Samanlögð markaðshlutdeild lífrænna matvæla hjá Irma nálgast nú 30%, sem er um fjórfalt hærra hlutfall en landsmeðaltalið í Danmörku. Irma hefur sett sér það markmið að þetta hlutfall verði orðið 50% árið 2025. Hveiti er ekki fyrsta fæðutegundin sem nú fæst eingöngu lífræn hjá Irma, því að í sumar úthýsti keðjan gulrótum og bönunum sem ekki eru með lífræna vottun.
(Sjá frétt á heimasíðu Økologisk Landsforening í gær).
Fjórtán þúsund Svíar biðja um rafknúna leigubíla
Fyrirtæki með samtals um 14.000 starfsmenn hafa gerst aðilar að sænska verkefninu Nollzon, en aðildin felur í sér að rafbílar verða sjálfkrafa fyrir valinu þegar pantaðir eru leigubílar í nafni fyrirtækjanna. Tilgangurinn með Nollzon er að skapa aukna eftirspurn eftir rafbílum og flýta þannig fyrir rafvæðingu samgangna í samræmi við markmið sænskra stjórnvalda um jarðefnaeldsneytislausan bílaflota árið 2030. Leigubílastöðvar eru farnar að finna fyrir þessari auknu eftirspurn og sem dæmi má nefna að hjá Taxi Stockholm eru nú 9 rafbílar í notkun.
(Sjá fréttatilkynningu Gröna Bilister 19. október).
Kaþólska kirkjan kalla eftir meiri metnaði í loftslagsmálum
Í gær sendu kardínálar, patríarkar og kaþólskir biskupar frá fimm heimsálfum ákall til leiðtoga þjóða heims um að ganga frá róttæku samkomulagi um loftslagsmál á ráðstefnunni í París í desember (COP21) til að koma í veg fyrir frekari loftslagsbreytingar. Í ákallinu, sem byggt er á páfabréfinu frá liðnu sumri („Laudato Si“), kemur fram að stefna þurfi að algjöru kolefnishlutleysi um miðja þessa öld og að í allri ákvarðanatöku á þessu sviði þurfi að huga sérstaklega að hagsmunum þeirra sem fátækastir eru og verða fyrir mestum áhrifum af loftslagsbreytingunum. Slík áskorun frá kaþólsku kirkjunni á heimsvísu er með öllu fordæmalaus, en íhaldssamir kaþólikkar vestanhafs eru lítt hrifnir af framtakinu.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
90.000 tonnum af fatnaði bjargað frá urðun árlega
Bresku WRAP samtökin um úrgang og auðlindir (Waste & Resources Action Programme) hafa hleypt af stokkunum nýju verkefni til að draga úr fatasóun í Evrópu. Verkefnið, sem gengur undir nafninu ECAP (European Clothing Action Plan), er styrkt af evrópskum sjóðum og nær til 11 Evrópulanda, þ.á.m. allra Norðurlandanna að Íslandi frátöldu. Markmið verkefnisins er að minnka urðun fataúrgangs um 90.000 tonn á ári frá og með árinu 2019.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Fljótandi plastrusl við Norðurheimskautið
Plastrusl flýtur á sjónum við Norðurheimskautið að því er fram kom í rannsókn sem sagt er frá í vefútgáfu vísindaritsins Polar Biology, en plastrusl hefur ekki áður fundist á yfirborði sjávar svo norðarlega. Í rannsókninni var þyrlu flogið yfir Framsund milli Grænlands og Svalbarða (á svæði u.þ.b. 1.500 km norðaustur af Melrakkasléttu) auk þess sem sama svæði var skoðað úr skipsbrú. Þarna fannst reyndar „aðeins“ 31 hlutur úr plasti á 5.600 km langri leið, en þar sem allar athuganir voru gerðar úr 18 m hæð yfir sjávarborði náði talning einungis til stórra plaststykkja. Ekki er vitað hvernig plastið barst þarna norðureftir, en það kann að hafa losnað úr sjötta plastfláka úthafanna sem líklega er að myndast í Barentshafi. Aukin skipaumferð kann einnig að hafa sitt að segja í þessu sambandi. Þéttleiki plasts á hafsbotni á sama svæði er talinn vera 10-100 sinnum meiri en á yfirborðinu.
(Sjá frétt ScienceDaily í gær).
Efni í sólarvörn drepur kóralrif
Efnið Oxýbensón (einnig þekkt sem BP3), sem notað er sem útblámasía (e. UV-filter) í um 3.500 mismunandi tegundir af sólarvörn, á þátt í eyðileggingu kóralrifja að því er fram kemur í rannsókn sem sagt er frá í ritinu Archives of Environmental Contamination and Toxicology. Efnið getur verið banvænt fyrir unga kóralla og skaðað þá eldri. Þetta þykir skýra hvers vegna svo lítið af ungum kóröllum er að finna í kóralrifjum nálægt ferðamannastöðum, en á slíkum stöðum er styrkur efnisins eðlilega hæstur. Efnið virðist skaða kóralla í mjög lágum styrk, þ.e. allt niður í 62 þúsundmilljörðustuhluta sem jafngildir því að einum dropa væri blandað í sex og hálfa sundlaug af ólympískri stærð. Styrkurinn við Hawaii og í Karabíska hafinu mælist 12 sinnum hærri en þetta.
(Sjá frétt PlanetArk í gær).
Osló losar allt sitt fé úr jarðefnaeldsneytisgeiranum
Osló er fyrsta höfuðborgin í heiminum sem ákveður að losa um allar fjárfestingar sínar í kola-, olíu- og gasfyrirtækjum til að sporna gegn loftslagsbreytingum. Þetta þýðir að fjárfesting upp á 9 milljarða Bandaríkjadala (um 1.125 milljarða ísl. kr.) verður færð úr jarðefnaeldsneyti í aðrar greinar. Þessi fjárlosun er hluti af málefnasamningi nýs meirihluta græningja, jafnaðarmanna og vinstri manna í borgarstjórn. Áður hafa 45 borgarstjórnir víða um heim tekið sambærilega ákvörðun um fjárlosun, en sem fyrr segir er Osló fyrsta höfuðborgin sem stígur þetta skref.
(Sjá frétt EcoWatch 19. október).
Hættuleg efni í pizzukössum
Pizzukassar geta innihaldið ýmis hættuleg efni að því er fram kemur í nýrri rannsókn dönsku neytendasamtakanna TÆNK. Í rannsókninni voru skoðaðir þrenns konar kassar og reyndust þeir allir innihalda heilsuspillandi flúorsambönd langt yfir viðmiðunarmörkum. Það sem kom þó meira á óvart var að í öllum kössunum fundust efni á borð við þalöt, BPA og nónýlfenól, sem ýmist eru talin geta verið hormónaraskandi eða krabbameinsvaldandi. Talið er líklegt að þessi efni séu ættuð úr endurunnu hráefni sem notað er við framleiðslu á kössunum. Þessar fréttir koma í kjölfar rannsóknar Tænk fyrr á árinu, sem leiddi í ljós að allir pokar utan um örbylgjupopp innihéldu flúorsambönd. Umræddar rannsóknir taka aðeins til matarumbúða og segja því ekki endilega til um hvort efnin berist í matvæli. Tænk ráðleggur fólki þó að borða ekki pizzur beint úr umbúðunum, geyma þær ekki í umbúðunum yfir nótt, forðast örbylgjupopp, kaupa svansmerktan bökunarpappír og geyma mat aðeins í umbúðum sem eru til þess ætlaðar.
(Sjá frétt á heimasíðu Tænk 14. október).
Fjöldamálsóknir vegna Roundup undirbúnar vestra
Lögfræðistofur víða um Bandaríkin safna nú liði fyrir fjöldamálsóknir gegn efnavörurisanum Monsanto á þeim forsendum að plöntueitrið Roundup sem fyrirtækið framleiðir hafi valdið krabbameini í sækjendum, þ.á.m. non-Hodgkin eitlafrumukrabba (NHL). Ætlunin er að sýna fram á það fyrir dómi að Monsanto hafi ranglega haldið því fram að virka efnið í Roundup (glýfosat) væri skaðlaust, þó að fyrirtækinu hafi þá þegar verið ljóst að það gæti valdið krabbameini. Málaferlin koma í kjölfar yfirlýsingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í marsmánuði síðastliðnum um að glýfosat væri líklegur krabbameinsvaldur. Roundup er notað um allan heim í landbúnaði og garðrækt og hefur skapað Monsanto tekjur upp á 4,8 milljarða dollara (um 600 milljarða ísl. kr.) á síðustu 12 mánuðum. Um þessar mundir stendur Monsanto einnig frammi fyrir a.m.k. 700 málsóknum vegna ásakana um að PCB sem fyrirtækið framleiddi á sínum tíma hafi valdið non-Hodgkin eitlafrumukrabbameini.
(Sjá frétt PlanetArk 16. október).