Breskir vísindamenn hafa kallað eftir banni við sölu á glimmer, þar sem það sé oftar en ekki gert úr plasti og hafi því sömu neikvæðu áhrif á umhverfið og annað örplast. Talið er að nú þegar fljóti allt að 51 þúsund milljarðar örplastagna um heimshöfin. Áhrif þessarar mengunar á lífríkið og þar með á heilsu manna eru ekki fullljós, en þau kunna að verða víðtæk og alvarleg þegar fram í sækir. Frá og með næsta ári verður bannað að bæta örplasti í snyrtivörur sem framleiddar eru í Bretlandi en ekki hafa verið settar sérstakar skorður hvað glimmer varðar. Glimmer er reyndar ekki allt framleitt úr plasti, heldur einnig úr áli. Sömuleiðis er hægt að framleiða glimmer úr umhverfisvænni efnum sem brotna auðveldlega niður í náttúrunni.
(Sjá frétt Independent 16. nóvember).
Norska ríkið fyrir rétt vegna olíuborana
Á morgun hefjast söguleg réttarhöld í Osló, þar sem tekist verður á um það hvort ný leyfi sem norsk stjórnvöld hafa veitt til olíuvinnslu í Barentshafi standist 112. grein norsku stjórnarskrárinnar um rétt komandi kynslóða til heilsusamlegs og öruggs umhverfis. Dómsmálið, sem er hið fyrsta sinnar tegunar, er höfðað af samtökunum Greenpeace og Nature and Youth. Samtökin halda því fram að með því að leyfa þessa starfsemi stefni norsk stjórnvöld fólki og umhverfi í verulega hættu, auk þess sem leyfisveitingarnar stríði gegn Parísarsamkomulaginu. Meðal þeirra sem komnir eru til Oslóar til að fylgjast með réttarhöldunum eru fulltrúar Fiji, sem er í hópi þeirra eyþjóða sem stafar mest ógn af loftslagsbreytingum. Fiji er einmitt í forsæti loftslagsráðstefnunnar (COP23) sem nú stendur yfir í Bonn.
(Sjá frétt Aktuell hållbarhet í dag).
Bátur úr endurunnu plasti sjósettur í London
Á dögunum sjósettu umhverfissamtökin Hubbub bát sem er að 99 hundraðshlutum gerður úr endurunnu plasti. Báturinn, sem nefndur hefur verið Poly-Mer, verður notaður til að safna plastrusli af hafnarsvæðum Lundúna og vekja fólk í leiðinni til vitundar um mikilvægi þess að umgangast plast af ábyrgð og varúð þannig að það lendi ekki í sjónum. Poly-Mer er fyrsti báturinn í heiminum sem smíðaður er úr plastúrgangi.
(Sjá frétt á heimasíðu Recycling & Waste World 2. nóvember).
„Oxo-degradable“ plast verði bannað
Rúmlega 150 samtök og fyrirtæki, þ.á.m. Marcs & Spencer, Unilever og Pepsi, hafa sameinast um áskorun Ellen MacArthur stofnunarinnar til stjórnvalda um heim allan að banna notkun á ildislífbrjótanlegu plasti (e. oxo-degradable plastics), í það minnsta þar til óháðir rannsakendur hafi sýnt fram á að umrætt plast brotni fyllilega niður við ólíkar aðstæður á nógu skömmum tíma til að koma í veg fyrir uppsöfnun plastagna í umhverfinu. Plast af þessu tagi er notað í vaxandi mæli í plastpoka og aðrar umbúðir, en vísbendingar eru uppi um að staðhæfingar um niðurbrot þess eigi ekki við rök að styðjast. Að sögn talsmanns Ellen MacArthur stofnunarinnar er þetta efni hvorki endingargott né nothæft í endurvinnslu eða jarðgerð, og því eigi það ekki heima í hringrásarhagkerfinu. Þess má geta að ildislífbrjótanlegt plast hefur verið bannað í Frakklandi frá árinu 2015.
(Sjá frétt GreenBiz.com 7. nóvember).
Dreifbýlið og sjórinn næra sálina
Dvöl á strandsvæðum og á náttúrulegum svæðum utan þéttbýlis hafa meiri jákvæð áhrif á andlega líðan fólks en dvöl á grænum svæðum innan borgarmarka, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem sagt er frá í tímaritinu Environment & Behavior. Þá virðast heimsóknir í þjóðgarða og önnur friðuð svæði hafa jákvæðari áhrif ef aðgangur að þeim er ókeypis og öllum opinn. Áður hefur verið sýnt fram á að náttúruupplifun dragi úr streitu og bæti líðan fólks, en þetta er í fyrsta sinn sem greint er á milli áhrifa mismunandi svæða.
(Sjá frétt Science Daily 31. október).
Fyrsti Svansmerkti leikskóli Noregs opnaður
Á dögunum var fyrsti Svansmerkti leikskóli Noregs opnaður í Overhalla í Norður-Þrændalögum. Svansvottun tekur til alls lífsferils viðkomandi vöru eða þjónustu og fyrir leikskóla þýðir þetta m.a. að gerðar eru strangar kröfur bæði til byggingarinnar og rekstrarins. Sem dæmi má nefna að í Svansmerktum byggingum mega hvergi finnast bakteríudrepandi efni, enda geta þau aukið hættuna á þróun lyfjaónæmra baktería. Orkunotkun þarf að vera afar lítil og í leikskólanum í Overhalla er því m.a. náð með sólarsellum, góðri einangrun, endurnýtingu varma úr loftræsi- og fráveitukerfum, orkunýtnum heimilistækjum og lýsingu. Svansmerktir leikskólar þurfa einnig að uppfylla kröfur um hljóðvist til að lágmarka hávaða innan dyra. Þegar Svansleyfið var afhent sagði Per Olav Tyldum, forseti sveitarstjórnar Overhalla, að sveitarfélagið vildi vera í fararbroddi í umhverfismálum og að þetta væri sérlega mikilvægt þegar börn ættu í hlut, þar sem þau væru jú framtíðin okkar.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Noregi 2. nóvember).
Trufla mengunarefni líkamsklukkuna?
Svo virðist sem mengunarefni í umhverfinu geti truflað líkamsklukkuna, en slík truflun er talin geta stuðlað að krabbameini, sykursýki, offitu, hjartasjúkdómum og þunglyndi. Vísbendingar um þetta komu fram í rannsókn Rensselaer háskólans (Rensselaer Polytechnic Institute) sem sagt er frá í tímaritinu Ecology and Evolution. Í rannsókninni var rýnt í hegðun vatnaflóa af tegundinni Daphnia pulex, en þessar flær eiga auðvelt með að aðlagast saltara vatni. Í ljós kom að eftir því sem saltstyrkur vatnsins hækkar umfram náttúrulegan styrk breytist dagsveifla hegðunarinnar, þar til öll merki um eðlilega dagsveiflu hverfa. Virkni líkamsklukkunnar ræðst af tjáningu svonefndra PERIOD-gena (PER-gena), en líkamsklukka manna og flestra annarra dýra byggir á svipuðu kerfi. Höfundar rannsóknarinnar telja því hugsanlegt að mengunarefni í umhverfinu hafi sambærileg áhrif á líkamsklukku manna.
(Sjá frétt á heimasíðu Rensselaer háskólans í dag).
Meira örplast á ökrum en í hafinu
Seyra sem dreift er á akra og tún í Evrópu og Norður-Ameríku inniheldur gríðarmikið magn af plastögnum sem fráveitukerfi hafa ekki náð að hreinsa úr skólpi. Samkvæmt nýrri rannsókn Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar (SLU) og Norsku vatnsrannsóknastofnunarinnar (NIVA) er 110-730 þúsund tonnum af örplasti dreift með þessum hætti á ræktað land í þessum heimsálfum. Þetta er talið vera meira en það sem lendir í sjónum. Strangar reglur gilda um þungmálma og önnur hættuleg efni í seyru, en enn sem komið er gilda engin slík ákvæði um örplast.
(Sjá frétt Aktuell Hållbarhet í dag).
Endurnýjanlegt þotueldsneyti í þróun
Vísindamenn við Háskólann í Delaware eru komnir áleiðis í viðleitni sinni til að framleiða samkeppnishæft þotueldsneyti úr lífmassa, nánar tiltekið úr beðmi og tréni úr viðarkurli og maískólfum. Einn helsti vandinn við nýtingu þessa hráefnis er sá hversu kolefniskeðjurnar eru orðnar stuttar og hlaðnar súrefnisfrumeindum þegar búið er að breyta lífmassanum úr föstu efni í fljótandi. Til að búa til nothæft þotueldsneyti, sem m.a. þarf að halda eiginleikum sínum í miklu frosti, þurfa einkum tvenns konar efnaferli að eiga sér stað. Þar er annars vegar átt við afoxun sameindanna og hins vegar samtengingu þeirra. Nýjungin í aðferðum vísindamannanna í Delaware felst einkum í nýjum efnahvötum, svokölluðum „efnageitum“, sem m.a. eru framleiddar úr einföldu grafeni. „Geiturnar“ gera það mögulegt að keyra nauðsynleg efnahvörf við mun lægri þrýstingi og lægra hitastig en áður (um 60°C í stað 350°C), auk þess að skila mjög góðri nýtingu hráefnisins. Efnahvörfin taka auk heldur skemmri tíma en fyrri aðferðir og efnahvatarnir eru endurvinnanlegir.
(Sjá umfjöllun Science Daily 30. október).
Sjálfkeyrandi sendibíll dreifir vörum í verslanir
Verslunarkeðjan Lidl í Svíþjóð stefnir að því að taka rafknúinn sjálfkeyrandi sendibíl í notkun í Halmstad næsta haust. Um er að ræða tilraunaverkefni og er ætlunin að bíllinn (sem kallast T-pod) flytji vörur um 4 km leið frá vöruhúsi Lidl út í verslanir bæjarins. Samið hefur verið við fyrirtækið Einride um hina tæknilegu hlið verkefnisins. Bíllinn mun einkum verða á ferðinni á næturnar, en leið hans liggur m.a. um tvö hringtorg, tvennar krossgötur og eina hægri beygju. Starfsmenn vöruhússins fylla á bílinn í lok dags og síðan tæma starfsmenn verslunar bílinn morguninn eftir. Bíllinn verður búinn kæli- og frystitækjum og tekur u.þ.b. 15 vörubretti í hverri ferð. Fyrst um sinn verður aðeins farin ein ferð á sólarhring. Sótt verður um rekstrarleyfi til Samgöngustofu Svíþjóðar (Transportstyrelsen) í nóvember 2017.
(Sjá frétt TransportNytt 25. október).