Loftmengun í því magni sem þekkist í Peking truflar starfsemi hjarta- og æðakerfis, lungna og öndunarfæra og eykur auk þess líkur á offitu, ef marka má nýja rannsókn frá Duke University. Rannsóknin var gerð á músum á tilraunastofu þar sem hópur af músum bjó í Peking-lofti og samanburðarhópur í hreinu lofti. Eftir um 20 daga var orðinn mikill munur á líkamlegu ástandi músanna. Mýsnar sem höfðu verið í menguðu lofti voru almennt þyngri en hinar þrátt fyrir sömu matarskammta. Þær höfðu einnig 50% hærra lágþéttnikólesteról, 46% meira þríglýseríð, 97% hærra samanlagt kólesterólmagn og meira insúlínþol, sem er undanfari sykursýki 2. Þessar niðurstöður eru í takt við fyrri rannsóknir sem gefa til kynna að loftmengun auki insúlínþol og breyti efnaskiptum í fituvef. Samkvæmt þessu má ætla að barátta gegn loftmengun geti skipt miklu máli til að sporna gegn offitu hjá fólki, en offita er nú þegar mikil ógn við lýðheilsu.
(Sjá frétt Science Daily 19. febrúar).
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: febrúar 2016
Lindex framleiðir strigaskó úr gömlum gallabuxum
Sænska verslunarkeðjan Lindex hefur hafið framleiðslu á strigaskóm úr gömlum gallabuxum sem skilað hefur verið í söfnunargáma Myrorna. Talsmaður Myrorna segir að samtökin taki þátt í verkefninu þar sem þeim finnist spennandi að finna nýja markaði og endurvinnslufarvegi fyrir notaðan fatnað, auk þess sem uppvinnsla (e. upcycling) textílefna feli í sér nýsköpun í handverki og meðferð textílúrgangs. Með uppvinnslu gallabuxnanna lengist líftími vörunnar og neyslumynstur breytist, sem aftur hefur í för með sér minna álag á umhverfið og minni auðlindanotkun. Myrorna safna nú um 21 tonni af textílúrgangi í Svíþjóð á degi hverjum og stefna að því að tvöfalda söfnunina á næstu tveimur árum. Lindex ætti því að hafa nægilegt hráefni í framleiðsluna.
(Sjá frétt á heimasíðu Myrorna 17. febrúar).
Engin úrgangur urðaður frá brugghúsum MillerCoors
Bjórframleiðandinn MillerCoors, sem framleiðir m.a. Miller bjórinn, tilkynnti á dögunum að sá árangur hefði náðst að ekkert af þeim úrgangi sem fellur til í brugghúsum fyrirtækisins í Bandaríkjunum sé urðaður. Fyrirtækið ákvað árið 2009 að hefja aðgerðir til að minnka úrgang og hefur nú náð úrgangsmagninu niður um 89%. Á sama tíma hafa þau unnið að því að finna endurvinnslufarveg fyrir þann úrgang sem verður til í brugghúsunum og nú fara næstum 100% alls úrgangs í efnisendurvinnslu en lítill hluti er sendur í orkuvinnslu. Fyrirtækið mun nú leggja áherslu á að gera aðra hluta framleiðslukeðjunnar urðunarlausa til að draga úr umhverfisáhrifum fyrirtækisins í heild.
(Sjá frétt CNBC 17. febrúar).
Stærsti fljótandi sólarorkugarður Evrópu í bígerð
Vinna við uppsetningu stærsta fljótandi sólarorkugarðs í Evrópu er hafin á uppistöðulóni Queen Elizabeth II stíflunnar á Thames. Alls verður rúmlega 23.000 sólarsellum með samanlagt uppsett afl upp á 6,3 MW komið fyrir á lóninu og munu þær þekja um 10% af yfirborði þess. Garðurinn er í eigu Thames Water sem er veitufyrirtæki í London sem sér um rekstur veitukerfa fyrir neysluvatn og skólp á svæðinu. Fyrirtækið hefur einsett sér að mæta 33% af orkuþörf sinni fyrir árið 2020 með eigin framleiðslu á endurnýjanlegri orku og er uppsetning sólarorkugarðsins liður í þeirri viðleitni. Um leið vill fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að uppfylla Parísarsamninginn og draga úr losun.
(Sjá fréttatilkynningu Thames Water 15. febrúar).
Hormónaraskandi efni í vítamíni fyrir börn
Hormónaraskandi efni fannst í þremur tegundum af vítamínum fyrir börn sem könnuð voru í nýlegri rannsókn dönsku neytendasamtakanna Tænk, en samtals voru 12 vörur af þessu tagi teknar til skoðunar. Efnið sem um ræðir nefnist BHT (bútýlhýdroxýtólúen). Vitað er að efnið hefur áhrif á hormónastarfsemi dýra og er því einnig talið hormónaraskandi í fólki. Notkun efnisins sem aukaefnis í matvælum er lögleg en ekki æskileg, en efnið er yfirleitt merkt sem E321 í innihaldslýsingum. Áhrif vítamínsins eins og sér á hormónastarfsemina eru lítil en það getur átt sinn þátt í kokteiláhrifum þar sem fleiri hormónaraskandi efni eru til staðar í daglegu umhverfi barna.
(Sjá frétt Tænk 17. febrúar).
Hlýnun sjávar eykur líkur á farsóttum í sjávardýrum
Hækkandi hitastig sjávar eykur líkur á smitsjúkdómum í sjávarlífverum og stuðlar jafnvel að hruni stofna, ef marka má tvær nýjar rannsóknir Cornell Háskólans í Bandaríkjunum. Í annarri rannsókninni voru áhrif hlýnunar sjávar á krossfiska við vesturströnd Bandaríkjanna skoðuð og kom þar fram að hægt var að rekja dauða um 90% krossfiskastofna á svæðinu frá Mexíkó að Alaska til hitabylgju á árunum 2013-2014. Í hinni rannsókninni kom fram að hitastig getur haft áhrif á farsóttir í stofnum skjaldbaka, kórala, humars, skelfisks og marhálms. Þannig er Ameríkuhumar mjög viðkvæmur fyrir breytingum á hitastigi, en humarinn er mikilvægur fyrir efnahag Maine-ríkis nyrst á austurströnd Bandaríkjanna. Erfitt er að koma í veg fyrir smit vegna hækkandi hitastigs, en höfundar rannsóknanna benda á mikilvægi þess að flytja ekki lífverur milli svæða, auk þess sem fylgjast þarf með sveiflum í hitastigi til að geta séð hitabylgjur fyrir.
(Sjá frétt Science Daily 16. febrúar).
Líftími raftækja styttist með hverju ári
Líftími raftækja styttist með hverju árinu sem líður samkvæmt nýrri rannsókn frá Umhverfisstofnun Þýskalands. Bilanatíðni hefur aukist á sama tíma og tískustraumar og nýjar útgáfur stýra markaðnum og raftækjum er í auknum mæli skipt út þó að þau séu nýleg og vel nothæf. Þetta hefur í för með sér aukið álag á auðlindir heimsins og eykur umhverfisáhrif raftækjanna. Hlutfall stórra raftækja sem bila fyrstu 5 árin hækkaði úr 3,5% í 8,3% á árunum 2004-2013. Þrátt fyrir þetta eru neytendur ánægðir með endingu raftækja. Forstjóri Umhverfisstofnunar Þýskalands kallar eftir lögbundnum lágmarkskröfum um líftíma raftækja, merkingum sem sýna líftíma vörunnar og að lögð sé áhersla á að auðvelt sé að gera við vöruna og skipta út hlutum.
(Sjá frétt EurActiv 16. febrúar).
Sainsbury’s hættir með „tveir-fyrir-einn“ tiboð
Risaverslunarkeðjan Sainsbury’s hefur ákveðið að draga úr svokölluðum „tveir-fyrir-einn“ tilboðum og leggja þannig áherslu á almennt lægra vöruverð og minni sóun. Talsmenn keðjunnar segja að neysluvenjur fólks hafi breyst mikið og að viðskiptavinir kvarti nú yfir að slík tilboð hafi í för með sér mikla sóun á mat og drykk, þar sem þau hvetji til óhóflegrar neyslu og óþarfra innkaupa. Þá hafi tilboð af þessu tagi í för með sér vandamál á heimilum þar sem geymslupláss verður of lítið og úrgangsmagn eykst. Yfirvöld hafa sömuleiðis gagnrýnt slík tilboð, m.a. vegna þess að þau gilda oftar en ekki um vöruflokka sem innihalda mikinn sykur og eru því ógn við lýðheilsu. Hætt verður að mestu með þessi tilboð í verslunum Sainsbury’s í ágúst 2016.
(Sjá frétt the Guardian 11. febrúar).
Eftirlit með bílaflotanum minnkar losun um 22%
Breski byggingarverktakinn J.Murphy & Sons hefur dregið úr losun fyrirtækisins um 22% með því að koma fyrir tækjabúnaði í bílaflotanum til að fylgjast með aksturshegðun ökumanna fyrirtækisins. Um 1.900 mælum var komið við í bílaflota fyrirtækisins og skráði búnaðurinn hraða, lausagang og ferðaleiðir. Eftir að mælingartímanum lauk voru niðurstöðurnar teknar saman og kynntar bílstjórum og þeim sýndar leiðir til hagkvæmari og öruggari aksturs. Aukin vitund bílstjóranna um áhrif akstursmynsturs á losun gróðurhúsalofttegunda, bensíneyðslu og öryggi hafði í för með sér þessa stórbættu nýtingu.
(Sjá frétt Planning & Building Control Today 15. febrúar).
Statoil stofnar tugmilljarða sjóð fyrir græna orku
Norski olíurisinn Statoil setti í dag á stofn sérstakan fjárfestingasjóð sem ætlað er að fjárfesta í verkefnum á sviði endurnýjanlegrar orku fyrir 1,7 milljarða norskra króna (rúmlega 25 milljarða ísl. kr.) á næstu 4-7 árum. Gert er ráð fyrir að þetta fé verði einkum lagt í uppbyggingu vindorku á landi og á hafi, sólarorku, orkugeymslu, orkuflutning, orkusparnað og snjallnetslausnir fyrir raforku.
(Sjá frétt á heimasíðu Statoil í dag).