Í dag úthlutaði Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet) 98 milljónum norskra króna (rúmlega 1,3 milljörðum ísl. kr.) til samtals 142 loftslagsverkefna í 89 þarlendum sveitarfélögum, en samtals bárust stofnuninni 332 umsóknir um styrki af þessu tagi. Þarna er um að ræða svonefnt „Klimasats-fé“ sem var sérstaklega eyrnamerkt í fjárlögum til að styðja við aðgerðir sveitarfélaga sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vísa veginn til kolefnishlutlausrar framtíðar. Verkefnin sem í hlut eiga eru margvísleg, en sem dæmi má nefna útblásturslaus byggingarsvæði, nýtingu timburs sem byggingarefnis í stað stáls og steinsteypu, hleðslustöðvar fyrir bíla í eigu sveitarfélaga, tilraunir með rafknúnar vinnuvélar, innviði fyrir rafhjól, reiðhjólahótel við lestarstöðvar og skipulagsverkefni með sérstakri áherslu á loftslagsmál. Auk loftslagsáherslunnar eru mörg verkefnanna til þess fallin að bæta loftgæði og þar með heilsu fólks á viðkomandi svæðum.
(Sjá frétt á heimasíðu Miljødirektoratet í dag).
Greinasafn fyrir merki: loftslagsbreytingar
5% samdráttur í vínframleiðslu vegna loftslagsbreytinga
Gera má ráð fyrir að vínframleiðsla í heiminum verði 5% minni á þessu ári en hún var í fyrra. Ástæðan eru loftslagsbreytingar sem hafa leikið vínbændur grátt, einkum í Suður-Ameríku. Alþjóðasamtök vínræktenda (OIV) hafa reiknað út að heildarframleiðsla ársins verði 259,5 milljónir hektólítra, sem gerir árið 2016 af einu lakasta vínræktarári síðustu tveggja áratuga. Gert er ráð fyrir 35% samdrætti í Argentínu, 21% í Síle, 19% í Suður-Afríku og 12% í Frakklandi. Hins vegar er gert ráð fyrir 5% aukningu í Ástralíu og 35% aukningu á Nýja-Sjálandi. Ítalía stefnir í að verða mesta vínræktarland ársins.
(Lesið frétt The Guardian í gær).
Endurheimt skóga í hlíðum Kilimanjaro gæti bætt úr vatnsskorti í Austur-Afríku
Brýnt er að endurheimta skóga í hlíðum Kilimanjaro til að bæta vatnsbúskap svæðisins, að því er fram kemur í skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag á fjallaráðstefnunni World Mountain Forum í Uganda. Á síðustu 40 árum hafa um 13.000 hektarar af skóglendi fjallsins eyðst vegna loftslagsbreytinga, m.a. í skógareldum, en áætlað er að þessir skógar hafi verið uppspretta drykkjarvatns fyrir milljón manns. Endurheimt skógarins bætir ekki aðeins vatnsstöðu og ræktunarmöguleika, heldur myndi hún einnig auðvelda uppbyggingu vatnsaflsvirkjana og styðja við ferðaþjónustu sem er gríðarlega mikilvæg fyrir hagkerfi nærliggjandi svæða.
(Sjá fréttasíðu Sameinuðu þjóðanna í dag).
Afneitun loftslagsbreytinga tengist félagslegri drottnunargirni
Einstaklingar sem haldnir eru félagslegri drottnunargirni (e. social dominance orientation (SDO)) eru líklegri en aðrir til að afneita loftslagsvísindum. Afneitunin tengist karllægum viðhorfum og persónuleikaeinkennum á borð við lága samkennd, valdahneigð og þröngsýni. Einkenni félagslegrar drottnunargirni eru m.a. þau að viðkomandi telur mismunun félagslegra hópa réttlætanlega eða æskilega og finnst maðurinn ráða yfir náttúrunni. Afneitunin gæti tengst ólíkri félagslegri stöðu þeirra sem eru öðrum fremur valdir að loftslagsbreytingum og þeirra sem verða einkum fyrir barðinu á þeim. Allt þetta og margt fleira kemur fram í doktorsritgerð Kirsti Jylhä sem stundað hefur rannsóknir við Háskólann í Uppsölum á hugmyndafræðilegum rótum afneitunar í loftslagsmálum.
(Sjá fréttatilkynningu Háskólans í Uppsölum 29. september).
Osló stefnir að helmingssamdrætti á fjórum árum
Borgaryfirvöld í Osló kynntu á dögunum „loftslagsfjárlög“ næstu ára þar sem fram kemur hvernig ná skuli losun gróðurhúsalofttegunda í borginni niður fyrir 600.000 tonn árið 2020 í samræmi við markmið sem borgin setti sér fyrr á þessu ári. Árið 2014 nam losunin 1,4 milljón tonna og er ekki vitað til að nokkur borg eða ríki hafi áður tekið svo róttæka ákvörðun um samdrátt í losun. Enn fremur er stefnt að því að Osló verði orðin kolefnishlutlaus árið 2030. Þessum skjóta árangri á m.a. að ná með því að hækka veggjöld á bíla sem aka inn í borgina, fækka bílastæðum, útrýma olíukyndingu á heimilum og skrifstofum, skipta út almenningsfarartækjum sem brenna jarðefnaeldsneyti og fjölga enn hjólreiðastígum. Nýlunda þykir að flétta aðgerðir til að draga úr losun inn í fjárhagsáætlun borga eins og gert er í Osló, en einn af aðstoðarborgarstjórum borgarinnar orðar það svo að „þau ætli að telja kolefni eins og aðrir telja peninga“. Ef markmiðið næst vonast borgaryfirvöld til að árangur Oslóar verði öðrum borgum hvatning.
(Sjá frétt PlanetArk 29. september).
Milljónir trjáa deyja vestanhafs
Á síðustu misserum hafa milljónir trjáa drepist í Bandaríkjunum. Trjádauðinn er ekki bundinn við einstök ríki, heldur hefur hans orðið vart víða um land. Ástæðurnar eru ólíkar, svo sem þurrkur, sjúkdómar, skordýr og skógareldar, en þær má í raun allar rekja til loftslagsbreytinga. Jafnvel elsta hvíta eikin í Bandaríkjunum gæti orðið þessum plágum að bráð, en eikin sú hefur staðið sem fastast í New Jersey í 600 ár og var búin að skjóta rótum áður en Kólumbus kom vestur um haf. Á Síerra Nevada svæðinu í Kaliforníu hafa 66 milljónir trjáa drepist síðan árið 2010, að því er talið er vegna þurrka og hraðrar útbreiðslu barrbjöllutegunda. Í norðurhluta Kaliforníu hefur sveppasjúkdómurinn „Sudden Oak Death“ náð talsverðri útbreiðslu í ýmsum trjátegundum, en sveppurinn þrífst best í bleytu. Í suðvesturríkjum Bandaríkjanna gætu öll sígræn barrtré verið horfin innan 100 ára að mati sumra sérfræðinga.
(Sjá frétt ENN í dag).
Ný heimasíða sýnir áhrif hækkandi yfirborðs sjávar
Samtökin Coastal Risk Australia hafa búið til heimasíðu með hjálp Google Maps þar sem notast er við reiknilíkön fyrir breytingar á yfirborði sjávar til ársins 2100 til að sýna hvaða hús og hverfi muni fara undir sjó vegna loftslagsbreytinga. Einstaklingar og fyrirtæki í Ástralíu geta slegið inn heimilisfangið sitt og séð hvaða áhrif loftslagsbreytingar muni hafa á húsin þeirra og þannig áætlað breytingar á fasteignaverði og tryggingariðgjöldum. Byggt er á gögnum frá Vísindanefnd SÞ um loftslagsbreytingar (IPCC), en af þeim má ráða að margar frægustu strandir Ástralíu hverfi fyrir næstu aldamót. Einn af aðstandendum síðunnar segir að markmið síðunnar sé ekki að ýta undir móðursýki heldur að reyna að fá fólk til að hætta að stinga höfðinu í sandinn.
(Sjá frétt the Guardian í dag).
Unglingar kæra ríkið fyrir að vernda þá ekki fyrir loftslagsbreytingum
Hópur unglinga í Oregon-ríki í Bandaríkjunum hefur höfðað mál gegn alríkisstjórninni fyrir að brjóta á réttindum þeirra til lífs, frelsis, eignarhalds og jafnréttis með því að aðhafast ekkert til að vernda þau fyrir áhrifum loftslagbreytinga. Héraðsdómur Oregon þarf nú að ákveða hvort unglingarnir verði fyrir skaða sem rekja megi til aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum og þ.a.l. hvort málið haldi áfram á næsta dómsstig. Málið er rekið af samtökunum Our Children’s Trust og er eitt margra slíkra sem höfðuð hafa verið víðsvegar í Bandaríkjunum að undanförnu. Lögfræðingur hópsins segir málið ekki einungis snúast um athafnaleysi heldur vinni stjórnvöld gagngert gegn hagsmunum barna, m.a. með því að gefa út leyfi til olíu- og gasvinnslu. Ólíklegt þykir að málið komist upp úr héraðsdómi en það þrýstir engu að síður á stjórnvöld að búa til og fylgja aðgerðaáætlun til að sporna við loftslagsbreytingum.
(Sjá frétt the Guardian 10. mars).
28% fjárfestinga Alþjóðabankans í loftslagsaðgerðir
Alþjóðabankinn (World Bank) mun hér eftir láta 28% af fjárfestingum sínum renna til loftslagsverkefna, auk þess allar ákvarðanir um fjármögnun verkefna munu taka mið af loftslagsmálum. Alþjóðabankinn er stærsti aðilinn sem veitir fé til þróunarríkja og því getur þessi áherslubreyting haft gríðarleg áhrif á möguleika þróunarríkjanna til að sporna við loftslagsbreytingum. Þegar þessi áherslubreyting var kynnt sagði Jim Yong Kim, forseti Alþjóðabankans m.a.: „Við erum að bregðast skjótt við til að hjálpa löndum til að auka nýtingu endurnýjanlega orkugjafa, draga úr kolefnisháðum orkugjöfum, þróa sjálfbær samgöngukerfi og byggja sjálfbærar, íbúavænar borgir fyrir sífellt fleiri þéttbýlisbúa. Þróunarríkin vilja hjálp frá okkur við að hrinda landsáætlunum sínum í lofslagsmálum í framkvæmd og við ætlum að gera allt sem við getum til að hjálpa þeim“.
(Sjá frétt the Guardian 7. apríl).
Rafbílar ódýrari en hefðbundnir bílar árið 2022
Rafbílar verða orðnir ódýrari en hefðbundnir bílar árið 2022 samkvæmt nýrri greiningu Bloomberg New Energy Finance (BNEF) á rafbílamarkaðnum. Stærsti einstaki liðurinn í að lækka verð á rafbílum er þróun ódýrarri rafhlaðna, en verð á litíum rafhlöðum hefur lækkað um 65% frá árinu 2010. Þrátt fyrir að eldsneytisnotkun bílaflotans minnki um 3,5% á ári munu ódýrari rafhlöður lækka kaupverð það mikið að bætt olíunýting hefðbundinna bíla mun ekki vega það upp. Rafbílavæðing er mikilvægur þáttur í að draga úr loftslagsbreytingum og bæta loftgæði, en þrátt fyrir ríkisstyrki er aðeins um 1% af seldum bílum í dag rafbílar. Samkvæmt greiningunni mun hlutfall nýrra rafbíla ekki ná yfir 5% fyrr en árið 2022 þegar þeir verða orðnir ódýrari kostur, en eftir það er líklegt að hlutfallið hækki mjög hratt. Samkvæmt greiningunni munu rafbílar verða 35% af seldum bílum árið 2040 og bílaflotinn þá orðinn 25% rafvæddur. Þessi þróun ráðist þó mjög af þróun á olíuverði.
(Sjá frétt the Guardian 25. febrúar).