Óþekkt's avatar

Um stefangisla

Umhverfisstjórnunarfræðingur, atvinnurekandi, fjölskyldufaðir og maraþonhlaupari í Borgarnesi

Jákvæð þróun í raftækjaframleiðslu

ewaste_160Raftækjaframleiðendur sýna aukinn vilja til að minnka umhverfis- og samfélagsáhrif framleiðslu og notkunar raftækja samkvæmt nýrri skýrslu Greenpeace sem ber heitið Green Gadgets: Designing the Future. Þannig hafa mörg fyrirtæki heitið að draga úr eða hætta notkun skaðlegra PVC-efna og brómaðra eldvarnarefna (BFR). Þessi efni brotna ekki niður og hafa því neikvæð umhverfis- og heilsuáhrif við meðhöndlun raftækjaúrgangs, en eitraður raftækjaúrgangur er talinn muni nema um 65 milljónum tonna árið 2017. Þrátt fyrir aukna umhverfisáherslur í raftækjaframleiðslu telur Greenpeace að fyrirtækin geti gert betur með því að beita sér fyrir banni á notkun slíkra efna, leggja áherslu á sjálfbæra stjórnun birgjakeðja og auka hlutfall endurnýjanlegrar orku í framleiðslunni.
(Sjá frétt Greenpeace 3. september).

Saurgerlar framleiða eldsneyti

Specialist Jelena Kovalkova works to isolate the Escherichia coli (E.coli) bacteria strain in RigaBreskir og finnskir vísindamenn hafa þróað aðferð til að láta E. coli bakteríuna framleiða própangas, en E. coli er mjög algengur saurgerill sem finnst í meltingarfærum manna. Própan er aðaluppistaðan í fljótandi jarðolíugasi (LPG) sem notað er sem eldsneyti á bíla, til upphitunar og sem gas fyrir grillið. Framleiðsla própans er hagkvæm að því leyti að víða er til staðar dreifikerfi fyrir efnið. Própan er tiltölulega hreint eldsneyti með lágt kolefnisinnihald og er aukaafurð við hreinsun olíu og vinnslu á jarðgasi. E. coli aðferðin er enn á þróunarstigi, en hún byggir á því að láta bakteríurnar framleiða própan úr fitusýrum sem annars væru notaðar sem byggingarefni í frumuhimnu. Vísindamennirnir vonast til að eftir 5-10 ár verði hægt að nota tæknina til framleiðslu á samkeppnishæfu endurnýjanlegu eldsneyti sem komið getur í stað jarðefnaeldsneytis.
(Sjá frétt PlanetArk í gær)

Sjálfbærnistarfi sænskra skóverslana mjög áfátt

skor_160Enginn af fjórum stærstu skóverslunarkeðjunum í Svíþjóð vinnur markvisst að því að tryggja heilbrigt vinnuumhverfi og viðunandi laun í löndum þar sem skórnir eru framleiddir, að því er fram kemur í skýrslunni „Í sömu sporum“ sem sænsku samtökin Fair Trade Center (FTC) gáfu út á dögunum. Samtökin benda sérstaklega á að verslunarkeðjurnar láti hjá líða að fylgjast með aðferðum og vinnuumhverfi við sútun leðurs. Það ferli geti verið mjög skaðlegt bæði fyrir umhverfið og heilsu starfsmanna enda mikið notað af efnavörum í sútuninni. Það þykir furðu sæta að skóverslanirnar séu ekki komnar lengra í umhverfisstarfinu og þá sérstaklega í sjálfbærri stjórnun aðfangakeðjunnar, enda standa fyrirtæki í tískugeiranum í Svíþjóð sig almennt vel í þeim efnum. Verkefnisstjóri FTC segir málið ekki snúast um að sýna gott fordæmi heldur einfaldlega um að fylgja þeim alþjóðasamningum sem fyrirtækin segist vinna eftir.
(Sjá frétt á heimasíðu Fair Trade Center 26. ágúst).

Framleiðendur hætti notkun óþarfra flúorsambanda

fluor_160Hópur alþjóðlegra vísindamanna hefur skorað á framleiðendur að hætta notkun óþarfra flúorsambanda þar til meira verði vitað um möguleg heilsuskaðleg áhrif þeirra. Áskorunin er afrakstur alþjóðlegrar vísindaráðstefnu um flúorsambönd og hefur verið nefnd Helsingør yfirlýsingin. Flúorsamböndin sem um ræðir eru manngerð efni sem hrinda frá sér vatni, fitu og óhreinindum og hafa því þótt henta vel til notkunar í ýmsar neytendavörur, svo sem matarílát úr pappír. Efnin brotna hægt niður og safnast upp í lífverum auk þess sem talið er að þau geti valdið krabbameini, aukið kólesterólmagn, veikt ónæmiskerfið og haft áhrif á hormónaframleiðslu. Strangar reglur gilda um notkun tiltekinna flúorsambanda og telja höfundar yfirlýsingarinnar að þeim sé oft skipt út fyrir önnur flúorsambönd sem lítið sé vitað um. Því skora vísindamennirnir á framleiðendur að beita Varúðarreglunni við innleiðingu nýrra flúorsambanda og gæta þess jafnframt að efnin séu ekki notuð að óþörfu.
(Sjá frétt á heimasíðu Tækniháskóla Danmerkur (DTU) 27. ágúst).

Heilbrigt matarræði dregur úr loftslagsbreytingum

meat_160Heilbrigðara matarræði og minni matarsóun eru mikilvægir liðir í að tryggja fæðuöryggi og draga úr áhrifum loftslagsbreytinga samkvæmt nýrri rannsókn Háskólans í Cambridge sem sagt er frá í nýjasta hefti Nature Climate Change. Með sama áframhaldi gæti losun gróðurhúsalofttegunda frá matvælaframleiðslu einni og sér jafnvel verið orðin meiri árið 2050 en sem nemur áætlaðri heildarlosun á þeim tíma. Útbreiðsla vestrænnar matarmenningar sem einkennist af mikilli kjötneyslu hefur gert það að verkum að sífellt meira land þarf undir framleiðsluna. Þetta hefur í för með sér mikla skerðingu líffræðilegrar fjölbreytni, eyðingu skóga og mikla metanlosun. Um 42% meira land gæti þurft undir matvælaframleiðslu árið 2050 en nú er, notkun tilbúins áburðar gæti aukist um 45% á sama tíma og losun gróðurhúsalofttegunda frá matvælaframleiðslu um 80%. Höfundarnir telja brýnt að auka áherslu á heilbrigðisfræðslu til að ýta undir fjölbreyttara matarræði og minni kjötneyslu.
(Sjá frétt á heimasíðu Cambridge háskólans í dag).

Hröð uppsveifla í endurnýjanlegri orku

Wind turbines in ChinaUm 22% af allri framleiddri orku í heiminum kemur nú frá endurnýjanlegum orkugjöfum að því er fram kemur í nýjustu samantekt Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Meiri vöxtur er í greininni en nokkru sinni fyrr og námu fjárfestingar í henni um 150 milljörðum breskra punda árið 2013 (um 29 þús. milljörðum ísl. kr.). Á síðustu árum hafa stjórnvöld margra ríkja endurskoðað og dregið úr hagrænum hvötum sem hafa verið ein helsta undirstaða uppbyggingar í greininni. IEA telur þó að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkuframleiðslu heimsins ætti að geta náð 26% árið 2020, enda fer stofn- og rekstrarkostnaður lækkandi. Um leið bendir stofnunin á að 27% markmiðið sem alþjóðasamfélagið hefur sett sér fyrir 2030 sé ekki nógu metnaðarfullt. Hlutfallið verði komið í 30% árið 2030 ef svo heldur sem horfir.
(Sjá frétt the Guardian í dag).

Leggja þarf vegi með gát

A woman rides a bicycle outside HanoiBæta þarf undirbúning að lagninu nýrra vega ef komast á hjá verulegum neikvæðum áhrifum á náttúruna og afkomumöguleika komandi kynslóða. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem sagt var frá í grein í tímaritinu Nature í gær, þar sem getum er að því leitt að á næstu 35 árum verði byggðir vegir sem ná myndu 600 sinnum í kringum jörðina. Í greininni kemur fram að uppbygging vegakerfis sé mjög mikilvæg í þróunarríkjum þar sem lélegt aðgengi bænda að mörkuðum og heildsölum sé ein helsta hindrun í vegi aukinnar fæðuframleiðslu og byggðaþróunar. Stysta leiðin milli áfangastaða sé gjarnan valin í sparnaðarskyni, en með því séu búsvæði dýra og plantna oftar en ekki slitin í sundur. Þetta hafi verið raunin m.a. á Amazon-svæðinu, í Nýju-Gíneu, Síberíu og Kongó. Á mörgum þessara svæða sé lífríkið afar fjölbreytt og svæðin því mikilvægur hlekkur í að viðhalda sérstæðum vistkerfum auk þess sem svæðin hægi á loftslagsbreytingum með upptöku og geymslu kolefnis. Því sé ódýrasta leiðin ekki endilega sú hagkvæmasta ef horft er til framtíðar.
(Sjá frétt Planet Ark í dag).

Loftslagsaðgerðir borga sig í lægri heilbrigðiskostnaði

heilbrigdiskerfi_160Kostnaður við að lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda getur skilað sér í sparnaði í heilbrigðiskerfinu ef marka má nýja rannsókn frá Tækniháskólanum í Massachusetts (MIT). Lægri tíðni astma og annarra kvilla sem tengjast loftmengun eru meðal algengra jákvæðra aukaverkana af aðgerðum sem ætlað er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, þar sem slíkar aðgerðir leiða gjarnan jafnframt til samdráttar í losun annarra efna og bæta þannig loftgæði. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að sparnaður í heilbrigðiskerfinu vegna lægri sjúkrakostnaður og fleiri þátta sem tengjast betri loftgæðum geti numið allt að tíföldum kostnaði stjórnvalda vegna loftslagsaðgerða. Rannsóknin gefur einnig til kynna að aðgerðir sem beinast að losun gróðurhúsalofttegunda geti bætt loftgæði jafn mikið eða meira en aðgerðir sem beinast sérstaklega að bættum loftgæðum, enda hafi aukin áhersla á minni notkun jarðefnaeldsneytis sjálfkrafa í för með sér minni losun svifryks og lækkaðan styrk yfirborðsósons og fleiri heilsuskaðlegra efna.
(Sjá frétt Science Daily 24. ágúst).

Ótrúlegur orkusparnaður í Empire State

EmpireState_160Nýstárleg aðgerðaáætlun um orkusparnað í Empire State byggingunni sparaði húseigendum um 3 milljónir bandaríkjadala (um 350 millj. ísl. kr.) á árinu 2013. Frá árinu 2009 hefur verið unnið að endurbótaverkefni til að draga úr orkunotkun byggingarinnar. Á þeim tíma hefur m.a. verið skipt um 6.514 glugga, einangrun komið fyrir bak við ofna og nýtt stýrikerfi tekið í notkun fyrir bygginguna. Þegar öllum endurbótum er lokið er gert ráð fyrir að árlegur orkukostnaður hafi lækkað um 4,4 milljónir bandaríkjadala (um 515 millj. ísl. kr.) sem jafngildir allt að 38% samdrætti í orkunotkun. Þar sem byggingar í Bandaríkjunum nota um 42% allrar orku sem neytt er þarlendis felur þetta tiltekna verkefni í sér mikilvægt dæmi um þann árangur sem hægt er að ná, bæði í fjárhagslegu og umhverfislegu tilliti, ekki síst þegar haft er í huga að þarna á í hlut 103 hæða skýjakljúfur, sem jafnframt er frægasta skrifstofubygging í heimi.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Akrýlamíð í kartöfluflögum og frönskum kartöflum

snakk_160Mikið magn akrýlamíðs fannst í nýrri rannsókn Norsku neytendasamtakanna (Forbrukerrådet) á frönskum kartöflum og kartöfluflögum þrátt fyrir að hægt sé að lágmarka magn efnisins í matvöru með tiltækri tækni. Frá árinu 2002 hefur verið stefnt að því innan Evrópusambandsins að draga úr magni akrýlamíðs í mat, enda er efnið talið krabbameinsvaldandi auk þess sem mikið magn efnisins getur haft neikvæð áhrif á taugakerfi, fósturþroska og sæðisframleiðslu. Matvælastofnun Noregs segir það áhyggjuefni hversu hægt gengur að minnka akrýlamíð í matvöru og telur matvælaframleiðendur ekki taka vandamálið nógu alvarlega. Evrópusambandið hefur ekki sett hágmarksgildi fyrir akrýlamíð, en viðmiðunargildi sambandsins eru 600-1000 míkrógrömm á hvert kíló matvöru. Hæsta gildið í rannsókn Forbrukerrådet var 2.232 míkrógrömm. Akrýlamíð myndast m.a. þegar kolvetnarík fæða er hituð yfir 120°C.
(Sjá frétt Forbukerrådet 20. ágúst).