Norska ríkið styrkir loftslagsverkefni sveitarfélaga

md-byggplass-160x78Í dag úthlutaði Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet) 98 milljónum norskra króna (rúmlega 1,3 milljörðum ísl. kr.) til samtals 142 loftslagsverkefna í 89 þarlendum sveitarfélögum, en samtals bárust stofnuninni 332 umsóknir um styrki af þessu tagi. Þarna er um að ræða svonefnt „Klimasats-fé“ sem var sérstaklega eyrnamerkt í fjárlögum til að styðja við aðgerðir sveitarfélaga sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vísa veginn til kolefnishlutlausrar framtíðar. Verkefnin sem í hlut eiga eru margvísleg, en sem dæmi má nefna útblásturslaus byggingarsvæði, nýtingu timburs sem byggingarefnis í stað stáls og steinsteypu, hleðslustöðvar fyrir bíla í eigu sveitarfélaga, tilraunir með rafknúnar vinnuvélar, innviði fyrir rafhjól, reiðhjólahótel við lestarstöðvar og skipulagsverkefni með sérstakri áherslu á loftslagsmál. Auk loftslagsáherslunnar eru mörg verkefnanna til þess fallin að bæta loftgæði og þar með heilsu fólks á viðkomandi svæðum.
(Sjá frétt á heimasíðu Miljødirektoratet í dag).

Ný aðferð við rafgreiningu lofar góðu

bubble-news-web-160Vísindamenn við Ríkisháskólann í Washington (Washington State University (WSU)) hafa fundið nýja leið til að framleiða vetni með rafgreiningu vatns. Aðferðin byggir á því að nota nanóagnir úr kopar sem efnahvata í samspili við kóbalt, en hingað til hafa menn yfirleitt notað mun dýrari málma, svo sem platínu eða rúten. Nýja aðferðin er ekki einungis mun ódýrari en fyrri aðferðir, heldur skilar hún jafngóðum eða betri árangri í rafgreiningu. Þessi uppgötvun er talin geta flýtt fyrir þróun vetnisframleiðslu, sem er í senn fjárhagslega hagkvæm, umhverfisvæn og orkunýtin. Þetta kann því að vera mikilvægt framfaraskref í orkugeymslu og nýtingu endurnýjanlegrar orku.
(Sjá frétt á heimasíðu WSU 25. október).

Meira en helmingur nýrrar orku endurnýjanleg

5763-160Á árinu 2015 var uppsett afl nýrra orkuvera sem framleiða endurnýjanlega orku í fyrsta sinn meira en nýrra orkuvera sem byggja á brennslu jarðefnaeldsneytis. Nettóviðbótin í endurnýjanlega orkugeiranum var 153 GW, sem er 15% aukning frá árinu áður. Dr Fatih Birol, framkvæmdastjóri Alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA), segir að heimsbyggðin sé að verða vitni að orkuskiptum sem muni gerast mjög hratt. Horfur séu á að Evrópubúar séu að tapa frumkvæðinu á þessu sviði til Kínverja og að líkja megi Evrópu við maraþonhlaupara sem hafi fengið dágóða forgjöf í startinu, verið langfyrstur eftir hálft maraþon en sé nú farinn að þreytast, þannig að hinir hlaupararnir séu að síga fram úr hægt og örugglega.
(Sjá frétt The Guardian í dag).

Fyrsta Svansmerkta bílaþvottastöðin í Noregi

bilvaskwentopp_width_448-160x90Síðastliðinn föstudag varð bílaþvottastöð Shell við Solbråveien í Asker fyrsta svansmerkta bílaþvottastöðin í Noregi. Samtals eiga Norðmenn nú um 2,5 milljónir einkabíla og er áætlað að árlega fari um 10 milljónir rúmmetra af vatni og 100.000 tonn af hreinsiefnum í að þvo alla þessa bíla. Mest af þessu rennur út í nærliggjandi vötn og firði, blandað með tjöruleifum og öðrum óhreinindum af bílunum, auk þess sem eitthvað safnast fyrir í seyru í skólphreinsistöðvum og er síðan gjarnan notað til áburðar á akra. Til að fá Svaninn þurfa bílaþvottastöðvar að uppfylla strangar kröfur um hreinsiefni, vatnsnotkun og hreinsun frárennslis, svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að svansmerktar bílaþvottastöðvar noti um 75% minna vatn en aðrar stöðvar og að þar sé hreinsun fráveituvatns um 90% betri en annars staðar.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Noregi 21. október).

5% samdráttur í vínframleiðslu vegna loftslagsbreytinga

2935-160Gera má ráð fyrir að vínframleiðsla í heiminum verði 5% minni á þessu ári en hún var í fyrra. Ástæðan eru loftslagsbreytingar sem hafa leikið vínbændur grátt, einkum í Suður-Ameríku. Alþjóðasamtök vínræktenda (OIV) hafa reiknað út að heildarframleiðsla ársins verði 259,5 milljónir hektólítra, sem gerir árið 2016 af einu lakasta vínræktarári síðustu tveggja áratuga. Gert er ráð fyrir 35% samdrætti í Argentínu, 21% í Síle, 19% í Suður-Afríku og 12% í Frakklandi. Hins vegar er gert ráð fyrir 5% aukningu í Ástralíu og 35% aukningu á Nýja-Sjálandi. Ítalía stefnir í að verða mesta vínræktarland ársins.
(Lesið frétt The Guardian í gær).

Endurnýjanleg orka við tærnar á okkur!

xudong-wang-floor-power-775x517-160Vísindamenn við Háskólann í Wisconsin-Madison (UW) hafa þróað ódýrt, endurnýjanlegt og endingargott gólfefni sem getur framleitt raforku úr fótataki þeirra sem um gólfið ganga. Uppistaðan í efninu eru nanótrefjar úr sellulósa sem nóg er af í viðarúrgangi og fleiri aukaafurðum úr jurtaríkinu og byggir raforkuframleiðslan á snertingu sérstaklega meðhöndlaðra trefja við ómeðhöndlaðar trefjar. Hver eining getur verið allt niður í 1 mm að þykkt og er hægt að byggja gólfefnið upp úr mörgum slíkum lögum. Aðferðin hentar einkar vel í stórmörkuðum og á öðrum fjölförnum stöðum, en þar ætti að vera hægt að framleiða umtalsvert magn af raforku með þessum hætti. Næsta verk vísindamannanna er að prófa efnið við raunverulegar aðstæður.
(Sjá frétt á heimasíðu UW í dag).

Endurheimt skóga í hlíðum Kilimanjaro gæti bætt úr vatnsskorti í Austur-Afríku

340776-kilimanjaro-160Brýnt er að endurheimta skóga í hlíðum Kilimanjaro til að bæta vatnsbúskap svæðisins, að því er fram kemur í skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag á fjallaráðstefnunni World Mountain Forum í Uganda. Á síðustu 40 árum hafa um 13.000 hektarar af skóglendi fjallsins eyðst vegna loftslagsbreytinga, m.a. í skógareldum, en áætlað er að þessir skógar hafi verið uppspretta drykkjarvatns fyrir milljón manns. Endurheimt skógarins bætir ekki aðeins vatnsstöðu og ræktunarmöguleika, heldur myndi hún einnig auðvelda uppbyggingu vatnsaflsvirkjana og styðja við ferðaþjónustu sem er gríðarlega mikilvæg fyrir hagkerfi nærliggjandi svæða.
(Sjá fréttasíðu Sameinuðu þjóðanna í dag).

Miljøstyrelsen styrkir umhverfisvottaða fataframleiðslu

ecolabels_samlet_logo-160Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen) auglýsti á dögunum eftir umsóknum frá dönskum fyrirtækjum sem vilja framleiða umhverfismerkt föt og aðrar textílvörur. Styrkina geta fyrirtækin notað til að kaupa sérfræðiráðgjöf vegna undirbúnings umhverfisvottunar samkvæmt kröfum Norræna svansins eða Umhverfismerkis ESB. Tilgangurinn með styrkveitingunni er að byggja upp reynslu innanlands í framleiðslu á umhverfisvottuðum klæðnaði og auðvelda fyrirtækjum að kynna sér kosti umhverfismerkjanna. Hæsti styrkur til einstakra fyrirtækja getur numið 99.000 dönskum krónum (tæplega 1,7 milljónum ísl. kr.).
(Sjá frétt á heimasíðu Miljøstyrelsen 14. október).

Fjárfestar þrýsta á bílaframleiðendur að gera betur í loftslagsmálum

4096-160Hópur 250 alþjóðlegra fjárfesta, sem samtals ræður yfir hlutabréfum að andvirði meira en 24.000 milljarðar dollara (um 3 milljónir milljarða ísl. kr.) hefur skorað á bílaframleiðendur að flýta aðlögun sinni að kolefnisgrönnum heimi. Kröfur stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fari vaxandi og hefðbundin bílaframleiðsla muni þurfa að takast á við miklar áskoranir vegna breyttrar eftirspurnar og samkeppni frá aðilum á borð við Tesla og Google sem hafi tekið forystu í þróun og framleiðslu rafbíla og sjálfkeyrandi bíla. Brýn þörf sé á að móta stefnu fyrirtækjanna til langs tíma til að þau verði áfram álitlegur fjárfestingarkostur.
(Sjá frétt The Guardian 12. október).

Skýrari hugsun í umhverfisvottuðum byggingum

109buildings-160Fólk sem starfar í umhverfisvottuðum byggingum virðist skýrara í kollinum en þeir sem vinna í sambærilegum byggingum sem ekki uppfylla skilyrði umhverfisvottunar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna í Harvard sem kynnt var á árlegri ráðstefnu Vistbyggðaráðs Bandaríkjanna sem haldin var í Los Angeles á dögunum. Rannsóknin náði til 109 einstaklinga í 10 byggingum í 5 borgum í Bandaríkjunum. Fólkið í umhverfisvottuðu byggingunum fékk að meðaltali 26% hærri einkunnir í prófum sem reyna á starfsemi hugans en þeir sem unnu í hinum byggingunum. Fólkið í fyrrnefnda hópnum reyndist hafa mun meiri hæfni til að bregðast við áreiti, hélt athyglinni betur, bjó við betri heilsu og svaf betur á næturnar, svo eitthvað sé nefnt. Umhverfisvottun bygginga virðist sem sagt ekki bara koma umhverfinu að gagni, heldur stuðlar hún jafnframt að meiri framleiðni og betri líðan.
(Sjá frétt United Technologies 5. október).