Yfirvöld á Gíbraltar hafa ákveðið að hætta að sleppa blöðrum á þjóðhátíðardegi höfðans, en hefð hefur verið fyrir slíku síðastliðin 24 ár. Gíbraltar hefur árum saman státað af einni stærstu blöðruhátíð í heimi, þar sem árlega er sleppt þúsundum hvítra og rauðra blaðra á þjóðhátíðardeginum. Áhrif blaðranna á lífríki sjávar hafa valdið mörgum íbúum áhyggjum og hafa grasrótarhreyfingar beitt sér fyrir því að þessi siður verði aflagður. Með því að hætta blöðrusleppingum vilja yfirvöld draga úr plastmengun í hafinu og neikvæðum áhrifum hennar á lífríki sjávar, um leið og aðgerðin felur í sér áminningu til ríkja heims um mikilvægi verndunar.
(Sjá frétt the Guardian 7. apríl).
Gjald á plastpoka hefur margvísleg áhrif
Fimm pensa gjald (um 9 ísl. kr.) sem lagt var á plastpoka í breskum verslunum fyrir hálfu ári hefur haft margvísleg áhrif að því er fram kemur í nýrri samantekt The Guardian:
1. Plastpokanotkun í Bretlandi hefur dregist saman um 80% frá því að gjaldið var tekið upp.
2. Góðgerðarfélög í Bretlandi hafa hagnast mikið á gjaldinu.
3. Gjaldið hefur ekki haft áhrif á fjölda þjófnaða í verslunum.
4. Gjaldið hefur í einhverjum tilfellum leitt af sér slæma hegðun viðskiptavina svo sem stuld á kerrum, pokaþjófnað og að viðskiptavinir sniðgangi verslanir sem innheimta gjaldið.
5. Smásalar hafa fundið leiðir til að sleppa við gjaldið (sem er lögbundið), m.a. með því að klippa handföng af pokum þannig að þeir falli ekki undir lögin.
6. Ringulreið sem smásalar vöruðu við að verða myndi í kjölfar gjaldtökunnar hefur ekki gert vart við sig.
Sjá frétt the Guardian 6. apríl).
Sólarsellur með grafenfilmu gætu framleitt raforku í rigningu
Filma úr efninu grafen, sem hægt er að vinna úr grafíti, gæti gert það mögulegt að framleiða raforku í sólarsellum í rigningu. Grafen er tvívítt form kolefnis sem hefur þann eiginleika að leiða vel rafmagn og innihalda mikið af rafeindum sem geta ferðast óbundnar um efnið. Regnvatn inniheldur sölt sem leysast upp í jákvætt og neikvætt hlaðnar jónir. Þegar regndroparnir snerta yfirborð grafenfilmunnar tekur grafenið til sín óbundnar rafeindir en vatnið verður þeim mun ríkara af jákvætt hlöðnum jónum, svo sem natríum, kalsíum og ammóníumjónum. Þannig myndast tvöfalt lag rafeinda og jákvætt hlaðinna jóna og skilyrði skapast til að mynda spennu og rafstraum. Frekari þróun tækninnar getur aukið afköst sólarsella þar sem hægt verður að framleiða rafmagn þótt sólar njóti ekki.
(Sjá frétt Science Daily í dag).
ESB bannar MI í snyrtivörum!
Evrópusambandið (ESB) hefur bannað rotvarnarefnið MI (metýlísóþíasólínón) í svokölluðum „leave-on“ húðvörum, þ.e.a.s. vörum á borð við hvers kyns krem og svitarlyktareyði, sem ætlað er að liggja lengi á húðinni. Dönsk yfirvöld hafa lengi kallað eftir slíku banni, en MI er ofnæmisvaldandi og telja dönsk yfirvöld efnið vera eina helstu ástæðuna fyrir fjölgun ofnæmistilfella í Danmörku. Í framhaldinu mun ESB ákveða hámarksviðmið fyrir MI í öðrum snyrtivörum, en efnið er m.a. notað í sjampó og raksápu.
(Sjá frétt Miljøstyrelsen í dag).
Einnota skálar úr laufblöðum
Hópur vísindamanna við tælenska Naresuan háskólann hefur þróað einnota, vatnsþéttar og lífbrjótanlegar matarskálar úr laufblöðum. Laufblöð tekktrjáa reyndust best til þessara nota samkvæmt athugunum hópsins og sterkja var notuð til að gefa skálunum gljáa. Skálunum er ætlað að koma í stað frauðplastumbúða sem m.a. eru notaðar í miklum mæli undir skyndimat á matarhátíðum. Það gefur auga leið að skálarnar brotna auðveldlega niður í náttúrunni og hafa því yfirburði framyfir ill-niðurbrjótanlegar einnota umbúðir. Háskólinn bíður nú eftir einkaleyfi til að hægt verði að hefja markaðssetningu skálanna af fullum krafti.
Sjá frétt Bangkok Post 31. mars).
Míkróplast úr flísefnum áberandi í sjávarlífverum
Í hvert skipti sem flík úr flísefni er þvegin sleppa um 2.000 míkróagnir út í frárennslið samkvæmt nýrri kanadískri rannsókn á vatnssýnum úr nágrenni borgarinnar Vancouver í Bresku-Kólumbíu. Mikið af þessum ögnum berst í dýrasvif í sjónum og síðan áfram upp fæðukeðjuna. Rannsóknin gefur svipaðar vísbendingar og aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið á áhrifum útivistarfatnaðar (aðallega úr flísefni og Gore-Tex) á lífríki sjávar, en norskar rannsóknir hafa m.a. sýnt fram á svipuð áhrif. Í norsku rannsóknunum kom fram að hægt væri að rekja um 100 milljónir plastagna í firðinum við Longyearbyen á Svalbarða til þvottavéla í öðrum löndum, en plastagnirnar ferðast um hafið með hafstraumum.
(Sjá frétt Canadian Geographic 29. mars).
Risaframleiðandi gallaefnis veðjar á Svaninn
Tyrkneski denímframleiðandinn ISKO, sem framleiðir um 250 milljón metra af gallaefni á ári, hefur fengið Svansvottun fyrir 6 af gallaefnum fyrirtækisins. Fyrirtækið framleiðir m.a. gallabuxnaefni fyrir Diesel, Bik Bok og Replay og vegna þess hve umsvifin eru mikil hefur vottunin í för með sér verulegan umhverfislegan sparnað og stórt skref í átt að sjálfbærari tískuframleiðslu. Framleiðslukeðjur í tískugeiranum geta verið mjög flóknar og því er mikil vinna að fá vottun sem tekur tillit til alls lífsferils vörunnar. Til að fá slíka vottun þurfa fyrirtæki að huga að öllum framleiðsluferlinum, allt frá því að ræktun bómullarinnar hefst. Einnig þarf að skoða félagslega þætti svo sem öryggi og aðbúnað starfsmanna í framleiðslukeðjunni, notkun eiturefna við litun og lokameðferð vörunnar o.s.frv.
(Sjá frétt Miljømærkning Danmark 17. mars).
Þörungaplast kemur í stað umbúðaplasts
Nýtt plastefni úr þörungum gæti komið í stað hefðbundins plasts í umbúðum, en hópur hönnuða hefur unnið að þróun efnisins undanfarin ár. „Plastið“ er unnið úr hlaupkenndum agar sem finna má í rauðþörungum og hefur sama efni verið notað í læknavísindum. Hönnuðurnir vinna nú að frumgerð sem keppir til úrslita í Lexus Design hönnunarkeppninni og verður í framhaldi af því sýnd í hönnunarvikunni í Mílanó. Hugmyndin er að framleiða fyrst plastpoka og litlar plastumbúðir úr efninu, t.d. fyrir hótel. Efnið brotnar auðveldlega niður í náttúrunni og hefur ekki áhrif á vistkerfi sjávar, auk þess sem niðurbrot þess í jörðu eykur vatnsheldni jarðvegs.
(Sjá frétt Plastics Today 15. mars).
Breytingar á virðisaukaskatti ýta undir aukna endurnotkun
Fjármálaráðuneyti Svíþjóðar kynnti á dögunum tillögu að breytingum á virðisaukaskatti sem miðar að því að lengja líftíma vöru m.a. með því að gera viðgerðir ódýrari. Aðgerðirnar eru í þremur liðum. Í fyrsta lagi er stefnt að því að lækka virðisaukskatt á minni háttar viðgerðum og fyrirbyggjandi viðhaldi úr 25% í 12% og lækka þar með kostnað vegna viðgerða á hjólum, skóm, fatnaði, leðurvörum, húsgögnum o.fl. Í öðru lagi á að veita skattafrádrátt vegna viðgerða á heimilistækjum á borð við þvottavélar, ísskápa, uppþvottavélar og eldavélar. Og í þriðja lagi fá minnstu fyrirtækin (með ársveltu undir 30.000 sænskum krónum (um 450.000 ísl.kr.)) undanþágu frá skilum á virðisaukaskatti. Þessar aðgerðir eiga að auðvelda neytendum að láta gera við bilaðar vörur í stað þess að kaupa nýjar, auk þess sem þær auðvelda smáfyrirtækjum að komast inn á markaðinn. Áformað er að breytingarnar taki gildi 1. júní 2017.
(Sjá fréttatilkynningu Regeriengskansliet 24. mars).
Páskafrí
Umhverfisfróðleikssíðan 2020.is er í páskafríi. Næsti fróðleiksmoli birtist á síðunni þriðjudaginn 29. mars 2016. Upplagt er að nýta tímann þangað til til að lesa eldri fróðleiksmola. Jafnframt er ærin ástæða til að forðast matarsóun um páskana. Gleðilega hátíð!