Endurnýting reiðhjóla í góðgerðarskyni

26043_160Bretar geta skilað inn gömlum og biluðum hjólum, fengið 10% afslátt af nýjum og þannig hjálpað til við að auka hreyfanleika bágstaddra í Afríku! Þetta tilboð er hluti af söfnunarátaki bresku góðgerðarsamtakanna Re-Cycle sem hófst í dag. Reiðhjól eru talin mikilvægur liður í útrýmingu fátæktar þar sem þau auðvelda fjölskyldum í dreifbýli að nálgast þjónustu á borð við heilsugæslu, vinnustaði og skóla. Re-Cycle hefur staðið fyrir söfnun sem þessari árlega síðan 1997 og sent um 53 þúsund hjól til Mið- og Suður-Afríku um leið og þau hafa dregið úr magni úrgangs í Bretlandi. Gert er við hjólin áður en þau eru send áleiðis, en auk þess snýst hluti verkefnisins um þjálfun heimamanna í viðhaldi reiðhjóla.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Verður plastflöskuvatn bannað í San Fransiskó?

Apr09 035crweb160Í þessari viku greiða borgaryfirvöld í San Fransiskó atkvæði um tillögu um að innleiða bann við sölu á flöskuvatni í plastflöskum. Verði tillagan samþykkt mun áhrifa hennar byrja að gæta í haust, en þá verður stofnunum borgarinnar óheimilt að kaupa plastflöskuvatn, auk þess sem þessi varningur verður bannaður á öllum innanhússamkomum í húsnæði borgarinnar. San Fransiskó yrði með þessu fyrsta stóra borgin sem tekur þetta skref. Talsmenn bannsins benda á að notkun á plastflöskum undir vatn feli í sér mikla sóun auðlinda og að plastflöskur þurfi allt að 1.000 árum til að brotna niður í náttúrunni. Aðrir óttast að bannið beini neyslu fólks frá flöskuvatni yfir í gosdrykki, ef þeir verða áfram seldir í plastflöskum.
(Sjá frétt PlanetArk 6. mars).

App til að skrá rusl í fjörum

plastáfjörumEEAUmhverfisstofnun Evrópu (EEA) hefur útbúið sérstakt snjallsímaforrit („App“) sem fólk getur notað til að skrá rusl sem það finnur á fjörum í sérstakan gagnagrunn. Þannig verða smátt og smátt til upplýsingar sem gera mönnum auðveldara fyrir að átta sig á umfangi vandans og taka vel ígrundaðar ákvarðanir um aðgerðir.
(Sjá frétt á heimasíðu EEA 3. mars).

Everestfarar skyldaðir til að hreinsa fjallið

EverestFrá og með aprílmánuði þurfa Everestfarar að taka með sér 8 kg af rusli á leið sinni niður af fjallinu, umfram sinn eigin farangur. Þetta er liður í viðleitni stjórnvalda í Nepal til að hreinsa hlíðar fjallsins, en þar hefur safnast upp gríðarlegt magn af úrgangi á síðustu árum, þ.m.t. súrefnis- og gaskútar, kaðlar, tjöld, gleraugu, bjórdósir, plastrusl og mannvistarleifar af ýmsu tagi. Þeir sem hlýða ekki þessum nýju reglum verða sektaðir eða þeim refsað á annan hátt.
(Sjá frétt The Guardian 3. mars).

Skotar stofna 720 milljarða króna endurvinnslusjóð

25943 160Skosk stjórnvöld hafa sett á laggirnar sérstakan lánasjóð með stofnfé upp á 3,8 milljarða sterlingspunda (um 720 milljarða ísl. kr) til að styðja við ný verkefni sem ætlað er að auðvelda fyrirtækjum að þróa tækni og byggja upp aðstöðu fyrir flokkun, viðgerðir og endurvinnslu textílúrgangs, hjólbarða, plasts, glers, matarleifa, raftækjaúrgangs, gifsplatna o.fl. Með þessu vonast stjórnvöld til að úrgangi verði í auknum mæli breytt í verðmætari efni, á sama tíma og dregið er úr losun gróðurhúsalofttegunda.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Gallabuxur úr plastrusli úr hafinu

Pharell WilliamsTónlistarmaðurinn Pharrell Williams hefur tekið upp samstarf við fataframleiðandann G-Star RAW undir yfirskriftinni „Raw for the Oceans„. Ætlunin er að safna plastrusli úr hafinu og vinna úr því þráð til framleiðslu á gallabuxum. Fyrstu flíkurnar líta væntanlega dagsins ljós 15. ágúst nk.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Svanurinn bannar míkróplast

SvanuréturplastNorræna umhverfismerkjanefndin (NMN) hefur ákveðið að hér eftir megi Svansmerktar snyrtivörur ekki innihalda míkróplast, þ.e.a.s. óleysanlegar plastagnir sem brotna seint niður í náttúrunni og eru minni en 1 mm í þvermál. Míkróplast er notað í nokkrum mæli í vörur á borð við „skrúbbkrem“ og tannkrem fyrir hvítar tennur. Agnirnar skolast út í hafið með fráveituvatni og komast þar inn í lífkeðjuna, gjarnan með eiturefnum sem loða við þær. Á sumum hafsvæðum er jafnvel talið að meira sé af míkróplasti en svifi, en þess ber að geta að míkróplast verður einnig til þegar stærri plastagnir brotna niður. Sjaldgæft er að kröfum Svansins sé breytt áður en tími er kominn á reglubundna endurskoðun, en í þessu tilviki þótti tilefnið svo brýnt að ekki væri fært að bíða með breytinguna.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Noregi 13. febrúar).

Veitingahús í París breyta leifum í lífgas

71056Um 80 veitingahús í París hafa tekið höndum saman um að vinna metan og jarðvegsbæti úr tilfallandi matarleifum. Metanið verður brennt til raforkuframleiðslu og til upphitunar, en bændur í nágrenninu njóta góðs af jarðvegsbætinum. Með þessu eru veitingahúsin m.a. að bregðast við stigvaxandi lagakröfum um endurvinnslu lífræns úrgangs. Frá og með þessu ári nær endurvinnsluskyldan til fyrirtækja þar sem meira en 40 tonn af lífrænum  úrgangi falla til á ári, en árið 2016 lækka þessi mörk niður í 10 tonn. Þar með munu lögin ná til veitingahúsa sem selja um og yfir 150 skammta á dag, en í þann flokk fellur um fimmtungur af öllum matsölustöðum Frakklands. Þeir sem ekki hlýða lögunum geta átt von á sektum allt að 75.000 evrum (hátt í 12 milljónir ísl. kr).
(Sjá frétt PlanetArk 13. febrúar).

ESB kynnir Rikka Rusl til sögunnar

Rikki RuslFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) birti á dögunum stutt myndband sem ætlað er að hvetja fólk til að líta á úrgang sem verðmæti. Myndbandið, sem er hluti af átakinu „Generation Awake“, er sett fram sem stikla (e. trailer) fyrir kvikmynd þar sem ruslatunnan Rikki Rusl (e. Richard Rubbish) rís upp (eða er öllu heldur réttur við) gegn því virðingarleysi sem honum og hans innri gildum hefur verið sýnt. Átakinu „Generation Awake“ var upphaflega hleypt af stokkunum árið 2011, en því er einkum ætlað að höfða til fólks á aldrinum 25-40 ára og fá það til að tileinka sér leiðir til að nota auðlindir á skynsamlegan hátt í stað þess að leyfa þeim að verða að úrgangi.
(Sjá frétt EDIE 7. febrúar).

Bleklaus prentari margfaldar endingartíma pappírs

Eyðupappír TUVísindamenn við háskólann í Jilin í Kína hafa fundið aðferð sem gerir það mögulegt að prenta margoft á sömu pappírsörkina. Þá er notaður sérstakur pappír með litarefni sem kemur í ljós þegar pappírinn blotnar en hverfur þegar pappírinn þornar aftur. Hægt er að prenta á slíkan pappír í venjulegum bleksprautuprentara sem notar hreint vatn í staðinn fyrir blek. Litarefnið í pappírnum dofnar með tímanum, en þolir þó í öllu falli nokkra tugi umferða í gegnum prentarann. Vísindamennirnir telja að með þessu móti megi lækka prentkostnað um 99% miðað við að hver örk sé notuð 50 sinnum. Letur sem prentað er með þessu móti hverfur á tæpum sólarhring við stofuhita, en fyrr ef pappírinn er hitaður.
(Sjá frétt í Teknisk ukeblad 5. febrúar).