Mikilvægt er að stjórnvöld víða um heim búi sig undir fólksflutninga sem munu eiga sér stað vegna loftslagsbreytinga og byggi upp innviði til að bregðast við þeim. Miðstöðin Internal Displacement Monitoring Centre (IDMC) bendir á að hækkandi yfirborð sjávar, hitabylgjur, þurrkar og flóð hreki milljónir manna frá heimilum sínum árlega og að á næstu árum muni um 3-10 sinnum fleiri þurfa að yfirgefa heimili sín vegna náttúruhamfara en vegna stríðsátaka. Þannig misstu til dæmis um 22 milljónir manna heimili sín af völdum náttúruhamfara árið 2013, eða um þrefalt fleiri en þurftu að yfirgefa heimili sín vegna stríðsátaka. Málefni innflytjenda eru mjög viðkvæm um þessar mundir þar sem bágborið efnahagsástand þjóða hefur dregið úr gestrisni þeirra og meiri neikvæðni ríkir nú en áður í garð flóttamanna í löndum Evrópu.
(Sjá frétt Planet Ark 9. janúar).
Greinasafn eftir: stefangisla
Hvaða eldsneyti er „óbrennanlegt“?
Um þriðjungur þekktra olíulinda, um helmingur jarðgass og meira en 80% af kolaforða heimsins er „óbrennanlegt kolefni“, sem þarf að liggja ósnert ef koma á í veg fyrir að hitastig jarðar hækki um meira en 2°C. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem sagt var frá í grein í Nature á dögunum, en í rannsókninni var leitast við að greina „óbrennanlegt kolefni“ eftir svæðum og tegundum eldsneytis. Samkvæmt þessu telst meirihluti af kolaforða Kína, Rússlands og Bandaríkjanna „óbrennanlegur“, svo og um 260 milljónir olíutunna úr lindum í Mið-Austurlöndum og um 60% jarðgass á sömu slóðum. Rannsóknin undirstrikar einnig að vinnsla jarðefnaeldsneytis á Norðurheimskautssvæðinu samrýmist ekki viðleitninni til að sporna gegn loftslagsbreytingum. Aðalhöfundur greinarinnar, Dr Christophe McGlade, hefur haft á orði að stjórnvöld sem hyggi á frekari vinnslu þessara auðlinda þurfi að svara þeirri spurningu hvaða eldsneytislindir á öðrum svæðum eigi að liggja ósnertar í staðinn.
(Sjá frétt Science Daily 7. janúar).
Einkaleyfi Toyota á vetnisbílum opnuð öðrum
Japanski bílaframleiðandinn Toyota tilkynnti á dögunum að fyrirtækið hygðist gera 5.680 einkaleyfi sem tengjast þróun og framleiðslu vetnisbíla og efnarafala aðgengileg fyrir aðra framleiðendur. Tilkynningin kemur í framhaldi af kynningu fyrirtækisins á vetnisbílnum Toyota Mirai sem settur verður á markað á árinu. Með þessu fylgir Toyota í fótspor Tesla sem opnaði á síðasta ári einkaleyfi sín sem tengdust framleiðslu rafbíla. Með því að deila þessum upplýsingunum vill Toyota flýta fyrir þróun umhverfisvænna samgangna og hvetja um leið önnur bílafyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Samstarf innan greinarinnar er einnig mikilvægt til að tryggja að sömu innviðir henti sem flestum bílategundum. Samhliða þróun Mirai bílsins hefur Toyota stutt við uppbyggingu vetnisstöðva í Kaliforníu og í norðausturríkjum Bandaríkjanna.
(Sjá frétt EDIE 7. janúar).
Snyrtivörur geta mengað sundlaugarvatn
Ýmis skaðleg efni úr snyrtivörum og lyfjum sem sundlaugargestir nota geta borist í sundlaugarvatn og hugsanlega hvarfast við klór og myndað þannig sótthreinsiefni með lítt þekkta virkni. Vísindamenn frá Háskólanum í Purdue í Indíana mældu nýlega nokkrar tegundir efnasambanda í sundlaugarvatni og fundu meðal annars DEET sem er virka efnið í sumu skordýraeitri, koffín og eldvarnarefnið tríklóróetýlfosfat (TCEP). Sum efni af þessu tagi geta gufað upp og komist þannig inn í öndunarveginn eða borist í líkamann í gegnum húð eða um meltingarfæri. Rannsóknin náði einungis til 32 efna, en vísindamennirnir telja að efnin geti skipt þúsundum. Losun efnanna í sundlaugar er í raun stjórnlaus og fátt vitað um hugsanlegar afleiðingar.
(Sjá frétt ENN 6. janúar).
Bruðlað með „ósýnilegt vatn“
Brýnt er að draga úr „ósýnilegri vatnsneyslu“ við matvælaframleiðslu að mati Heimssamtaka efnaverkfræðinga (IChemE), en með „ósýnilegri vatnsneyslu“ er átt við það vatn sem notað er í framleiðsluferlinu. Samtökin áætla að hver einstaklingur neyti um 1,8 milljónar lítra af ósýnilegu vatni árlega eða um 2.000-5.000 lítra á dag. Horfur eru á að vatnsnotkun muni aukast um meira en 50% fram til ársins 2050 vegna fólksfjölgunar og aukinnar áherslu á vestrænt neyslumynstur, en um 70% af öllu ferskvatni eru nú þegar nýtt í landbúnaði. Með hliðsjón af þessu hafa samtökin lagt til að stefnt verði að 20% samdrætti til ársins 2050 til að auka fæðuöryggi og minnka álag á vatnslindir heimsins.
(Sjá frétt ENN 5. janúar).
Lífræn vottun í Danmörku í 25 ár
Danska Ø-merkið fyrir lífræna vottun fagnar nú 25 ára afmæli. Merkið hefur átt stóran þátt í að gera Dani að þeirri þjóð sem kaupir mest lífrænt, en um 8% af öllum matarinnkaupum í Danmörku eru nú lífrænt vottuð. Síðan vottunin var sett á laggirnar hefur danska þjóðin komið í veg fyrir að rúmlega þrjár milljónir tonna af eiturefnum sleppi út í náttúruna og á sama tíma verndað um 4.300 milljarða lítra af grunnvatni fyrir mengun af völdum varnarefna með því einu að kaupa lífrænt vottaðar vörur. Aðstandendur vottunarinnar telja að velgengni Ø-merkisins megi rekja til þess trausts sem merkingin hefur unnið sér á dönskum markaði. Um 98% danskra neytenda þekkja til merkisins og um 80% treysta því fullkomlega. Nú kaupa um 45% danskra neytenda lífrænt vottaðar vörur vikulega og um 70% mánaðarlega. Danir áætla að sala á lífrænt vottuðum vörum muni tvöfaldast á næstu 25 árum.
(Sjá frétt Økologisk Landsforening í dag).
Jólafrí
Fyrsta „samfélagsbúðin“ opnuð í London
Í vikunni var fyrsta „samfélagsbúðin“ opnuð í London, en þar er um að ræða verslun sem selur afgangsmat frá verslunum og heildsölum með 70% afslætti til fólks sem ekki á til hnífs og skeiðar og er háð fjárhagsaðstoð. Verkefnið hefur verið nefnt Community Shop en að því standa nokkrar matvælakeðjur, m.a. með stuðningi Boris Johnson, borgarstjóra í London. Tilgangurinn er að draga úr matarsóun í birgjakeðjunni og aðstoða fólk sem býr við fátæktarmörk. Einstaklingar sem uppfylla tiltekin skilyrði geta skráð sig í verkefnið og öðlast þannig rétt til að kaupa í matinn í verslunum þess. Verkefnið er sérstaklega ætlað fólki í atvinnuleit á meðan það kemur undir sig fótunum og er stefnt að því að opna 20 slíkar verslanir á Bretlandi á næstu árum. Talið er að um 3,5 milljónum tonna af mat sé hent árlega í Bretlandi áður en hann kemst í innkaupakörfur neytenda. Ástæður þessa má oftast rekja til rangra merkinga eða skemmdra umbúða.
(Sjá frétt EDIE 16. desember).
Gríðarleg loftmengun í Mekka
Mikil loftmengun mælist í Mekka dagana sem Hajj stendur yfir, en árlega flykkjast þá milljónir múslima í pílagrímsferð til borgarinnar. Hópur vísindamanna sem mælt hefur loftmengun í 75 borgum víðsvegar um heiminn segir að loftmengunin í Mekka sé engu lík á þessum tíma, enda komi þá 3-4 milljónir manna til þéttbýllar borgar þar sem loftgæði eru slæm fyrir. Verst verður ástandið í göngum sem liggja að Masjid al-Haram, sem er stærsta moska í heimi, en þar hefur styrkur kolmónoxíðs t.d. mælst allt að 57.000 ppb (57 milljónustupartar) sem er um 300 sinnum hærra en eðlilegur styrkur efnisins í Sádi-Arabíu. Kolmónoxíð eykur líkur á hjartaáfalli auk þess sem það getur valdið höfuðverk, svima og ógleði. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) áætlar að árið 2012 hafi um 4,3 milljónir manna látið lífið vegna innanhúsloftmengunar og um 3,7 milljónir vegna loftmengunar utandyra. Um eitt af hverjum átta dauðsföllum í heiminum má rekja til loftmengunar.
(Sjá frétt Science Daily 15. desember).
Ástralía stendur sig verst!
Ástralía stendur sig verst iðnríkja í að sporna við loftslagsbreytingum samkvæmt nýrri skýrslu sem gefin var út í tengslum við loftslagsráðstefnuna í Lima. Höfundar skýrslunnar segja ástæðuna fyrir slæmri einkunn Ástrala vera að nýja íhaldsstjórnin hafi dregið til baka þær aðgerðir í loftslagsmálum sem samþykktar voru af fyrri ríkisstjórn. Með þessu hefur Ástralía tekið við af Kanada sem það iðnríki sem stendur sig verst, en Ástralía er jafnframt í næstneðsta sæti af öllum ríkjum heims, þar sem Sádi-Arabía vermir botnsætið. Í skýrslunni er Dönum hrósað fyrir gott starf í loftslagsmálum en þeir eru taldir standa sig best allra ríkja. Svíar eru þar í öðru sæti og Bretar í því þriðja.
(Sjá frétt EDIE 9. desember).
