Japanski bílaframleiðandinn Toyota tilkynnti á dögunum að fyrirtækið hygðist gera 5.680 einkaleyfi sem tengjast þróun og framleiðslu vetnisbíla og efnarafala aðgengileg fyrir aðra framleiðendur. Tilkynningin kemur í framhaldi af kynningu fyrirtækisins á vetnisbílnum Toyota Mirai sem settur verður á markað á árinu. Með þessu fylgir Toyota í fótspor Tesla sem opnaði á síðasta ári einkaleyfi sín sem tengdust framleiðslu rafbíla. Með því að deila þessum upplýsingunum vill Toyota flýta fyrir þróun umhverfisvænna samgangna og hvetja um leið önnur bílafyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Samstarf innan greinarinnar er einnig mikilvægt til að tryggja að sömu innviðir henti sem flestum bílategundum. Samhliða þróun Mirai bílsins hefur Toyota stutt við uppbyggingu vetnisstöðva í Kaliforníu og í norðausturríkjum Bandaríkjanna.
(Sjá frétt EDIE 7. janúar).