Í Svíþjóð jókst sala á lífrænt vottuðum matvælum um 13% milli áranna 2012 og 2013. Þetta er mesta aukning sem sést hefur í nokkur ár og langt umfram spár sem gerðu ráð fyrir 5% aukningu. Lífræn matvæli seldust fyrir samtals 11,6 milljarða sænskra króna (um 206 milljarða ísl. kr.), sem samsvarar um 4,3% markaðshlutdeild á matvörumarkaði. Árið áður var þetta hlutfall 3,8%.
(Sjá fréttatilkynningu KRAV í dag)
Greinasafn fyrir flokkinn: Neytendur
H&M býður föt úr notuðu gallaefni
Í næsta mánuði mun fataframleiðandinn H&M setja á markað fimm gerðir af fatnaði sem gerður er úr notuðu gallaefni. Hráefnið er fengið úr söfnun H&M á notuðum fötum, sem hleypt var af stokkunum á öllum markaðssvæðum fyrirtækisins fyrir ári síðan. Samtals hafa safnast hátt í 3.500 tonn af fötum.
(Sjá frétt EDIE í dag).
99.999 Nissan Leaf seldir
Í síðustu viku seldist 99.999. rafbíllinn af gerðinni Nissan Leaf. Kaupandinn var Amy Eichenberger, 47 ára arkítekt frá Charlottesville í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Með þessu er ljóst að Nissan Leaf er orðinn söluhæsti rafbíllinn á heimsvísu frá upphafi. Takmörkuð drægni rafbíla veldur mörgum bílakaupendum áhyggjum, en Amy kveðst ekki hafa viljað láta slíkar áhyggjur verða til þess að hún missti af framsýnasta valkostinum á markaðnum, enda dygði bíllinn henni í 98% tilfella.
(Sjá frétt á Hybridcars.com 19. janúar).
Minni mengun frá flugeldum
Hægt er að draga verulega úr mengun frá flugeldum með því að nota nanótækni við framleiðslu þeirra. Með því móti er hægt að framkalla jafnmikinn ljósagang og hávaða þótt magn efna sé minnkað um þrjá fjórðu frá því sem nú tíðkast. Áður en slíkir flugeldar verða settir á markað þarf þó að huga nánar að þeirri áhættu sem kann að fylgja notkun nanóagna í þessum iðnaði, sem ekki er þekktur fyrir að setja öryggismál á oddinn.
(Sjá frétt á heimasíðu Alþjóðasamtaka efnaverkfræðinga IChemE í gær).
Réttlætismerking viðurkennd í opinberum innkaupum
Stjórnvöld í löndum Evrópusambandsins geta hér eftir tekið fullt tillit til réttlætismerkinga („fairtrade vottunar“) í innkaupum sínum eftir að Evrópuþingið samþykkti nýja tilskipun um opinber innkaup í síðustu viku. Með þessu er staðfest sú niðurstaða Evrópudómstólsins í svonefndu Norður-Hollandsmáli að leyfilegt sé að láta „fairtrade uppruna“ gilda til stiga í opinberum útboðum.
(Sjá frétt á heimasíðu Fairtrade International 17. janúar).
Hættuleg efni í barnafötum
Hættuleg efni fundust í 76 af 82 barnaflíkum sem skoðaðar voru í nýrri könnun Greenpeace. Styrkur efnanna var yfirleitt undir hættumörkum, en Greenpeace bendir á að eiturefni eigi ekkert erindi í barnaföt, enda nóg til af öðrum skaðminni efnum sem hægt sé að nota í staðinn. Vissulega skolast mikið af þessum efnum úr fötunum í fyrsta þvotti, en þá berast þau út í umhverfið þar sem þau geta skaðað lífríkið.
(Sjá fréttatilkynningu Greenpeace 14. janúar).
Varað við hárlitun
Norsku neytendasamtökin (Forbrukerrådet) vara fólk við því að láta lita á sér hárið, sérstaklega þegar í hlut eiga börn, ófrískar konur og mæður með börn á brjósti. Aðvörunin kemur í kjölfar efnagreiningar samtakanna á 12 tegundum hárlita. Allar tegundirnar innihéldu öfluga ofnæmisvalda og í 10 þeirra fundust auk þess hormónaraskandi efni. Samtökin benda á að ofnæmi fyrir efnum í hárlitum fylgi fólki allt lífið, en þeir sem vilji eftir sem áður fá lit í hárið ættu að kaupa þá þjónustu á „grænum hárgreiðslustofum“. Að sögn talsmanns samtakanna gerir almenningur sér ekki grein fyrir því að hárlitir eru „botnvörur“ (n. versting-produkter) í heilsufarslegu tilliti. Samtökin lýsa eftir aðgerðaáætlun stjórnvalda um eiturlausan hversdag, en slíkar áætlanir hafa lengi verið til í Danmörku og Svíþjóð.
(Sjá fréttatilkynningu Forbrukerrådet 9. janúar).
Sturta sem endurvinnur vatnið jafnóðum
Sænski hönnuðurinn Mehrdad Mahdjoubi hefur kynnt nýja gerð af sturtu sem hreinsar baðvatnið jafnóðum og það kemur í niðurfallið og sendir það aftur upp í sturtuhausinn. Með þessu móti á að vera hægt að komast af með 5 lítra af vatni í 10 mínútna sturtu í stað 150 lítra eins og algengt mun vera. Þessu fylgir ekki aðeins mikill vatnssparnaður, heldur einnig orkusparnaður, þar sem vatnið kólnar lítið í ferlinu. Endurvinnslusturta Mehrdads byggir á svipaðri tækni og notuð er í geimferðum, en eftir er að sjá hvort takast megi að gera hana fýsilega til notkunar á venjulegum heimilum.
(Sjá frétt EDIE 6. janúar).
Jólafrí
Vefsíðan 2020.is er komin í langt jólafrí og verður næst uppfærð þriðjudaginn 7. janúar 2014. Síðan þakkar fyrir samfylgdina á árinu, óskar lesendum sínum gleðilegrar og efnislítillar jólahátíðar, minnir þá á að geyma nýtilegan jólapappír til næstu jóla, og vonar að næsta ár verði þeim öllum farsælt og friðsamt.
Tamiflu í umhverfinu stuðlar að lyfjaónæmi
Vísindamenn við háskólana í Umeå og Uppsölum í Svíþjóð hafa sýnt fram á að leifar af inflúensulyfinu Tamiflu, sem fundist hafa í vötnum bæði í Japan og í Evrópu, stuðla að þróun lyfjaónæmra veirustofna í öndum sem halda sig nálægt útrásum fráveitumannvirkja. Tamiflu er mest notaða inflúensulyf í heimi, en í framhaldi af þessari uppgötvun óttast menn að lyfið kunni að verða gagnslaust í framtíðinni.
(Sjá fréttatilkynningu Háskólans í Umeå 9. desember).