Osló stefnir að helmingssamdrætti á fjórum árum

74814-160Borgaryfirvöld í Osló kynntu á dögunum „loftslagsfjárlög“ næstu ára þar sem fram kemur hvernig ná skuli losun gróðurhúsalofttegunda í borginni niður fyrir 600.000 tonn árið 2020 í samræmi við markmið sem borgin setti sér fyrr á þessu ári. Árið 2014 nam losunin 1,4 milljón tonna og er ekki vitað til að nokkur borg eða ríki hafi áður tekið svo róttæka ákvörðun um samdrátt í losun. Enn fremur er stefnt að því að Osló verði orðin kolefnishlutlaus árið 2030. Þessum skjóta árangri á m.a. að ná með því að hækka veggjöld á bíla sem aka inn í borgina, fækka bílastæðum, útrýma olíukyndingu á heimilum og skrifstofum, skipta út almenningsfarartækjum sem brenna jarðefnaeldsneyti og fjölga enn hjólreiðastígum. Nýlunda þykir að flétta aðgerðir til að draga úr losun inn í fjárhagsáætlun borga eins og gert er í Osló, en einn af aðstoðarborgarstjórum borgarinnar orðar það svo að „þau ætli að telja kolefni eins og aðrir telja peninga“. Ef markmiðið næst vonast borgaryfirvöld til að árangur Oslóar verði öðrum borgum hvatning.
(Sjá frétt PlanetArk 29. september).

Áframhaldandi samdráttur í koltvísýringslosun nýrra bíla

image_xlargeEvrópskir fólksbílar verða sífellt sparneytnari að því er fram kemur í tölum frá Umhverfisstofnun Evrópu (EEA). Fólksbílar sem skráðir voru á árinu 2015 í löndum ESB losuðu að meðaltali 119,6 grömm af koltvísýringi á hvern ekinn kílómetra, sem er 3% minna en árið áður og vel undir markmiði ESB fyrir árið 2015 þar sem gert var ráð fyrir meðallosun upp á 130 g/km. ESB er nú tveimur árum á undan áætlun í þessum efnum, en næsta markmið er að meðallosun fari undir 95 g/km árið 2021. Við þetta má þó bæta að sala nýrra bíla jókst um 9% milli ára. Aðeins um 1,3% nýrra bíla voru tvinn- eða rafbílar en í einstökum löndum var hlutfallið mun hærra, t.d. 12% í Hollandi. Þrátt fyrir litla markaðshlutdeild fjölgaði nýjum rafbílum um 50% milli áranna 2014 og 2015.
(Sjá frétt Umhverfisstofnun Evrópu 14. apríl).

Meira en 1.000 mengunarsíulausir díselbílar í Bretlandi

2464Frá því á árinu 2014 hafa bifreiðaskoðunarstöðvar í Bretlandi fundið meira en 1.000 díselbíla sem ekki eru með lögbundnar mengunarsíur. Síðan 2009 hafa mengunarsíur verið lögbundnar í nýjum díselbílum til að draga úr svifryksmengun í útblæstri. Síurnar eiga það hins vegar til að stíflast með tilheyrandi vandræðum og því hafa margir bíleigendur brugðið á það ráð að borga verkstæðum fyrir að fjarlægja síurnar. Sum verkstæði bjóða einnig upp á þá þjónustu að fjarlægja hluta af síunni þannig hún verði óvirk og stíflist ekki. Þessi breyting sést ekki við hefðbundna bifreiðaskoðun og telur Samgöngustofa Bretlands líklegt að tugir eða hundruð þúsunda bíla aki nú um með gagnslausar síur. Samkvæmt breskri löggjöf er ekki ólöglegt að fjarlægja síur en akstur síulausra bíla er ólöglegur. Áætlað er að árlega deyi um 29.000 manns í Bretlandi fyrir aldur fram úr sjúkdómum sem rekja má til svifryksmengunar. Þarlend yfirvöld hafa því miklar áhyggjur af áhrifum ólöghlýðni bíleigenda á lýðheilsu.
(Sjá frétt the Guardian 17. apríl).

100 svansmerktar bílaþvottastöðvar í Danmörku

100_bilvaskehaller_745_442 (160x95)Á dögunum náði fjöldi svansmerktra bílaþvottastöðva í Danmörku hundraðinu, en til að fá vottun Svansins þurfa stöðvarnar að nota mun minna af vatni og skaðlegum efnum en gengur og gerist í atvinnugreininni. Þannig má svansmerkt bílaþvottastöð nota í mesta lagi 70 lítra af fersku vatni í hvern þvott, en reyndar getur vatnsnotkunin farið allt niður í 35-40 lítra. Þessi litla notkun byggir á því að stöðvarnar eru búnar hringrásarkerfi sem hreinsar vatnið þannig að hægt er að endurnota stóran hluta þess. Svansmerktar stöðvar mega ekki nota hreinsiefni með nanóögnum, skaðlegum flúorsamböndum eða efnum sem talin eru upp á lista ESB yfir hugsanlega hormónaraskara. Tiltekinn hluti hreinsiefnanna verður líka að vera svansmerktur. Olíufélagið OK hefur lagt mikla áherslu á að fá Svansvottun á bílaþvottastöðvar sínar í Danmörku, en OK rekur 99 af þeim 100 stöðvum sem komnar eru með vottun. Hvatinn að þessu er ekki aðeins umhverfislegur, heldur segja forsvarsmenn OK að svansmerktu stöðvarnar komi betur út í rekstri.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Danmörku 29. janúar).

Aukin samnýting bíla í London

car_share_160Á dögunum var kynnt ný áætlun um aukna samnýtingu bílaflotans í London, en þar er stefnt að því að milljón borgarbúar verði orðnir aðilar að samnýtingar- eða samakstursfélögum fyrir árið 2025. Í aðgerðaráætluninni, sem gengur undir nafninu Car Club Action Plan, er lögð áhersla á að deilihagkerfið verði haft í huga við þróun samgangna í borginni, en í dag deila um 145.000 Lundúnabúa bíl með öðrum eða notast við deilibíla. Sem dæmi um aðgerðir samkvæmt áætluninni má nefna bætt aðgengi að samnýtingarbílum með upplýsingatækni og aukinni nálægð við bílamiðstöðvar, fjölgun samnýtingarbílastæða og aukna áherslu á rafbíla innan félaganna. Samkvæmt rannsóknum RAC Foundation notar dæmigerður borgarbúi bílinn sinn aðeins um 4,6 klst á viku sem þýðir að bíllinn stendur ónotaður um 97% vikunnar á sama tíma og þrengsli og mengun í stórborgum eykst ört með stækkandi bílaflota. Með samnýtingu má fækka bílum og nýta hvern þeirra betur.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Tesla slær sölumet á fyrsta ársfjórðungi

tesla_160Rafbílaframleiðandinn Tesla setti sölumet á fyrsta ársfjórðungi 2015, en þá seldi fyrirtækið samtals 10.030 bíla. Þetta er 55% aukning frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Aukninguna má að mestu rekja til Tesla Model S sem hefur fengið frábærar viðtökur og hefur m.a. verið valinn bíll ársins tvö ár í röð af tímaritinu Consumer Reports. Um 25% af öllum nýskráðum rafbílum í Bandaríkjunum á fyrstu mánuðum ársins voru Model S. Mikil aukning varð almennt í sölu rafbíla á síðasta ári en um 320.000 rafbílar voru nýskráðir í heiminum árið 2014. Þetta eru um 43% af öllum rafbílum sem nú eru í umferð. Elon Musk, stofnandi Tesla, hefur tilkynnt að fyrirtækið muni kynna nýja vöru síðar í þessum mánuði og er frekari tilkynninga beðið með mikilli eftirvæntingu.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Sparneytnari sendibílar

sendiferdabillSendibílafloti Evrópu notaði að meðaltali 4% minna eldsneyti árið 2013 en árið áður samkvæmt nýjustu tölum Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA), en þetta þýðir að flotinn er kominn undir markmið Evrópusambandsins í eldsneytisnýtingu fyrir árið 2017. Um 1,2 milljónir nýrra sendibíla voru skráðar í Evrópu árið 2013 og var koltvísýringslosun þeirra að meðaltali 173,3 g/km, en markmið ESB fyrir árið 2017 er 175 g/km. Meðallosunin er breytileg eftir löndum. Minnst er hún á Möltu, í Portúgal og í Frakklandi, en mest í Slóvakíu, Þýskalandi og Tékklandi. Sömu þróun má sjá í einkabílaflota Evrópu, en þar hefur losunin nú þegar náð markmiði ESB fyrir árið 2015.
(Sjá frétt EEA 21. maí).

Flöskuvatn úr útblæstri vetnisbíla

honda H2OVatn sem verður til við brennslu vetnis á vetnisbílum er nú sett á flöskur og selt undir merkjum bílaframleiðandans Honda. Fyrirtækið hefur framleitt vetnisbíla undir vörumerkinu FCX-Clarity síðan 2008 og er flöskuvatnið leið til að vekja athygli á hreinleika útblásturs frá bílunum og undirstrika um leið staðfestu fyrirtækisins í að minnka umhverfisáhrif starfseminnar. Vatnið verður í boði á starfsstöðvum fyrirtækisins og er það von Honda að nýja vörumerkið, H2O, muni auka umræður um vetnisbíla og umhverfislegan ávinning þeirra.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Hleðslustöð á hjólum

26188Hreyfanleg hleðslustöð fyrir rafbíla verður framvegis hluti af þeirri neyðarþjónustu sem fyrirtækið RAC í Bretlandi býður viðskiptavinum sínum. Þjónustubílar fyrirtækisins verða búnir 5 kW hleðslustöð til að hlaða rafbíla sem verða rafmagnslausir á miðri leið. Hálftíma hleðsla dugar fyrir 24 km akstur, sem ætti að koma viðskiptavininum heim eða á næstu hleðslustöð. Ef á þarf að halda er hægt að fylla geyminn á u.þ.b. 4 klst. RAC segir hleðslustöðina vera svar fyrirtækisins við ört stækkandi rafbílaflota Bretlands, en í dag eru rafbílanotendur í Bretlandi rúmlega 9.000 talsins.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Honda setur upp vetnisstöð

Honda H2stodBílaframleiðandinn Honda hefur sett upp vetnisáfyllingarstöð við verksmiðjur sínar í Torrance í Kaliforníu. Þetta er liður í undirbúningi fyrirtækisins fyrir næstu kynslóð vetnisbíla, sem kynnt verður árið 2015 í Bandaríkjunum og Japan. Stöðin verður jafnframt sýnidæmi og prófunarstöð fyrir nýjan staðal í vetnisáfyllingu sem Honda vill að tekinn verði upp. Staðallinn nefnist MC Fill og byggir á 700 bara þrýstingi. Með þessari tækni á að vera hægt að stytta áfyllingartímann um allt að 45% frá því sem áður hefur þekkst, sem þýðir að það ætti ekki að taka meira en 3 mínútur að fylla geyma vetnisbíls við venjulegar aðstæður. Næsta kynslóð vetnisbíla frá Honda á að komast um 500 km á hverjum tanki og efnarafalarnir eiga að rúmast í venjulegu vélarrúmi.
(Sjá frétt Hybridcars.com 4. mars).