Útflutningur á lífrænt vottuðum vörum frá Danmörku hefur aukist um 12% á einu ári, en árið 2014 var verðmæti þessa útflutnings samtals um 1.721 milljón danskra króna (um 32,5 milljarðar ísl. kr.). Útflutningurinn hefur sjöfaldast á síðustu 10 árum. Að sögn markaðsstjóra samtakanna Økologisk Landsforening má rekja aukna sölu til þeirrar miklu reynslu af lífrænni ræktun sem byggst hefur upp í Danmörku og þess að danskir framleiðendur bjóða oft upp á vörur og vöruflokka sem ekki eru framleiddir lífrænt í innflutningslöndunum. Stærstu vöruflokkarnir eru mjólkurvörur og egg, en þessir vöruflokkar eru samtals um 51% lífræns útflutnings. Lífrænt vottaðar tilbúnar matvörur, svo sem frosið grænmeti og hafragrautur, hafa einnig náð miklum vinsældum. Þýskaland er stærsta innflutningslandið en þangað fara um 48% af þeim lífrænu vörum sem fluttar eru út frá Danmörku.
(Sjá frétt á heimasíðu Økologisk Landsforening 7. desember).
Greinasafn fyrir flokkinn: Umhverfismerki
Fairtrade jólastjarnan frumsýnd
Fyrsta Fairtrademerkta jólastjarnan er komin á markað í Svíþjóð, en blómið er einnig fyrsta pottablómið sem fær Fairtrademerkingu þar í landi. Jólastjörnurnar hefja líf sitt í Eþíópíu en eru þaðan sendar til Svíþjóðar sem græðlingar, þar sem síðasti hluti ræktunarinnar fer fram í gróðrarstöðinni Tågerups Trädgård. Framkvæmdastjóri gróðrarstöðvarinnar segir að fyrirtækið vilji tryggja góð vinnuskilyrði og mannréttindi fyrir ræktendur auk þess sem hann segir mikil viðskiptatækifæri liggja í vottuninni þar sem eftirspurn eftir Fairtradevörum er mikil í Svíþjóð. Þar hafa Fairtrademerkt blóm m.a. náð miklum vinsældum og í dag er um þriðjungur allra rósa í Svíþjóð vottaðar. Með því að velja Fairtrademerktar jólastjörnur umfram aðrar vinnur maður gegn barnaþrælkun og tryggir að grundvallarmannréttindi séu virt í framleiðsluferlinu.
(Sjá frétt Fairtrade í Svíþjóð 23. nóvember).
Fyrstu Svansmerktu einnotaáhöldin
Svansmerkt einnotaáhöld eru nú fáanleg í fyrsta sinn, en dansk-norska fyrirtækið Greenway fékk á dögunum leyfi til að merkja nokkrar af vörum sínum með Norræna svaninum. Einnotaáhöldin frá Greenway eru búin til úr pálmablöðum og brotna auðveldlega niður í náttúrunni. Um er að ræða áhöld á borð við diska, skálar og matarföt, en til að fá vottun Svansins þarf að uppfylla strangar kröfur um efnainnihald og sitthvað fleira. Áhöldin mega t.d. ekki innihalda flúorsambönd eða þalöt og mega ekki vera úr endurunnum hráefnum þar sem efnaleifar kunna að leynast í þeim. Stór hluti hráefnanna þarf hins vegar að vera endurnýjanlegur, auk þess sem gerðar eru strangar kröfur um orkunotkun í framleiðslunni og um að hægt sé að jarðgera áhöldin eða endurvinna þau með öðrum hætti. Með því að fá Svansmerkingu á vörurnar er Greenway að bregðast við vaxandi eftirspurn viðskiptavina, svo sem frá mötuneytum, hótelum og dagvöruverslunum.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Danmörku í dag).
Öll bómull hjá IKEA orðin „sjálfbærari“
Öll bómull sem húsgagnarisinn IKEA notar í vörur sínar stenst nú kröfur samtakanna Better Cotton Initiative, en að eigin sögn er IKEA fyrsti smásöluaðilinn sem nær þessu markmiði. Better Cotton Initiative var sett á stofn árið 2010 með þáttöku IKEA, WWF og fleiri aðila með það að markmiði að draga úr neikvæðum áhrifum bómullarræktar á umhverfi og samfélag. Upphaflega voru 500 bómullarræktendur í Pakistan með í samstarfinu, en það nær nú til 110.000 ræktenda. Til að uppfylla kröfur samtakanna þarf að draga úr efnanotkun, nýta vatn betur og sækja námskeið um umhverfismál, vinnuumhverfi o.fl. Í fréttatilkynningu frá IKEA kemur fram að umrædd bómull sé „sjálfbærari“ en flest önnur bómull, en hún uppfylli þó ekki kröfur lífrænnar vottunar. Markaðshlutdeild lífrænt vottaðrar bómullar er aðeins um 1% og því nær útilokað fyrir stóra aðila að nýta hana eingöngu sem hráefni í vörur sínar.
(Sjá frétt Miljöaktuellt 16. nóvember).
Nýtt vottunarkerfi fyrir aðfangakeðjur
Fyrirtækið Carbon Trust kynnti í dag nýjan staðal fyrir vottun á aðfangakeðjum fyrirtækja með tilliti til kolefnislosunar. Til að fá vottun þurfa fyrirtæki að koma á samstarfi við birgja um minnkun kolefnislosunar og sýna fram á að tekist hafi að draga úr losun í einstökum hlutum aðfangakeðjunnar. Með staðlinum, sem er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum, er komið til móts við fyrirtæki sem hafa áttað sig á að bein umhverfisáhrif innan fyrirtækisins eru yfirleitt aðeins brot af þeim áhrifum sem verða til ofar í aðfangakeðjunni, svo sem við vinnslu hráefna, framleiðslu íhluta o.s.frv. Vottun aðfangakeðjunnar er því mikilvægur liður í að draga úr heildaráhrifum hinnar endanlegu vöru á umhverfið.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Sala á Fairtrade-vörum í Svíþjóð jókst um 37% milli ára
Sala á Faitrade-vottuðum vörum jókst um 37% í Svíþjóð milli áranna 2013 og 2014 samkvæmt markaðskönnun Fairtrade-samtakanna. Sé litið á fjóra stærstu vöruflokkana sést að sala á bönunum jókst um 95% milli ára, sala á víni um 42%, sala á blómum um 40% og sala á kaffi um 24%. Sala á Faitrade-vottuðum vörum í Svíþjóð nemur nú um 2,7 milljörðum sænskra króna á ári (um 42 milljörðum ísl. kr.). Aukin sala á Fairtrade-vörum helst í hendur við aukna eftirspurn eftir lífrænt vottuðum vörum, en um 65% af Fairtrade-vörunum sem seldar voru í Svíþjóð 2014 voru einnig með lífræna vottun. Tölurnar gefa til kynna að neytendur leggi æ meira áherslu á sjálfbæran uppruna vöru og að bændum í þróunarlöndunum séu tryggðar ásættanlegar vinnuaðstæður.
(Sjá frétt sænsku Faitrade samtakanna 23. apríl).
Svansmerktar íbúðir í Kaupmannahöfn fá Óskarsverðlaun byggingariðnaðarins
Verktakafyrirtækið NCC tók fyrir helgi við MIPIM-byggingarverðlaununum fyrir Svansmerktar íbúðir sem fyrirtækið hefur byggt við Krøyers Plads í Christianshavn í Kaupmannahöfn. Verðlaunin eru veitt í Cannes einu sinni á ári og eru oft kölluð Óskarsverðlaun byggingariðnaðarins. NCC fékk verðlaun í flokknum „Þróun íbúðahverfis“ bæði fyrir áherslur sínar á sjálfbærni verkefnisins og arkitektúr, en meðal keppinautanna voru verkefni frá Dubai, Sydney og Stavanger.
(Sjá frétt NCC 13. mars).
Fyrsta umhverfismerkta bókaforlagið í Þýskalandi
Þýska bókaforlagið Reclam Verlag fékk í dag afhenta staðfestingu á því að það hefði staðist kröfur Bláa engilsins, umhverfismerkis Þýskalands, og er þar með orðið fyrsta umhverfismerkta forlagið þar í landi. Vottunin gildir fyrir kiljuútgáfu forlagsins, en þarna er um að ræða elsta og stærsta kiljuforlagið í Þýskalandi með samtals um 3.000 útgefnar kiljur. Mikil áhersla hefur verið lögð á umhverfismál í forlaginu síðustu 10 ár og síðan 2004 hefur þar eingöngu verið notaður endurunnin pappír. Nú hefur forlagið einnig þróað leið til að nota endurunnin pappír í kápur. Blái engillinn gerir strangar kröfur um notkun efnavöru, sjálfbæra nýtingu skóga og lágmörkun loftslagsáhrifa í allri umhverfismerktri starfsemi.
(Sjá frétt Der Blaue Engel í dag).
Skólaeldhús notar 100% lífrænt vottað
Skólaeldhús Byskolans í Södra Sandby í Svíþjóð notar nú eingöngu lífrænt vottaða matvöru, en kostnaður við hverja máltíð hefur þó ekki hækkað frá því sem áður var. Á sama tíma hafa gæði máltíða aukist og matarsóun minnkað. Að sögn kokkanna í eldhúsinu réðu nokkur undirstöðuatriði úrslitum um að svo vel tókst til, þ.á.m. að hætt var að kaupa aðsendan mat frá stóreldhúsum. Í framhaldi af því var lögð mikil vinna í að finna framleiðendur og birgja sem seldu lífrænt vottaða vöru. Þá hefur sveigjanleiki skipt miklu máli, þ.e. að láta framboð á lífrænum vörum á hverjum tíma stýra matseðlinum. Einnig þarf eldhúsið að sjá um hluta framleiðslunnar, svo sem að búa til lífrænar pylsur þar sem slík vara fæst ekki á markaðnum.
(Sjá frétt á heimasíðu KRAV 16. janúar).
Siðgæðisvottaðir trúlofunarhringar
Fairtrade samtökin í Bretlandi hófu í gær átaksverkefnið „I Do“ sem hvetur fólk í giftingarhugleiðingum til að velja siðgæðisvottaða trúlofunar- og giftingarhringa. Siðgæðisvottað gull tryggir vinnuöryggi, eykur fræðslu, bætir heilsugæslu og tryggir lífsviðurværi verkamanna í gullnámum heimsins. Laun námuverkamanna geta verið allt niður i 1 bandaríkjadollar á dag (um 131 ísl. kr.), auk þess sem verkamennirnir starfa oft við hættulegar aðstæður í daglegri snertingu við efni á borð við kvikasilfur, sýaníð og saltpéturssýru. Verkefnisstjóri „I Do“ segir verkefnið einstaklega mikilvægt vegna þess að „gull er svo falleg vara sem fólk tengir við rómantík og birtu. Með því að nota Fairtrade til að tryggja gegnsæi og sýna uppruna gullsins, verður varan enn sérstakari“.
(Sjá frétt Fairtrade í Bretlandi 13. janúar).