Meira en helmingur nýrrar orku endurnýjanleg

5763-160Á árinu 2015 var uppsett afl nýrra orkuvera sem framleiða endurnýjanlega orku í fyrsta sinn meira en nýrra orkuvera sem byggja á brennslu jarðefnaeldsneytis. Nettóviðbótin í endurnýjanlega orkugeiranum var 153 GW, sem er 15% aukning frá árinu áður. Dr Fatih Birol, framkvæmdastjóri Alþjóða orkumálastofnunarinnar (IEA), segir að heimsbyggðin sé að verða vitni að orkuskiptum sem muni gerast mjög hratt. Horfur séu á að Evrópubúar séu að tapa frumkvæðinu á þessu sviði til Kínverja og að líkja megi Evrópu við maraþonhlaupara sem hafi fengið dágóða forgjöf í startinu, verið langfyrstur eftir hálft maraþon en sé nú farinn að þreytast, þannig að hinir hlaupararnir séu að síga fram úr hægt og örugglega.
(Sjá frétt The Guardian í dag).

Endurnýjanleg orka við tærnar á okkur!

xudong-wang-floor-power-775x517-160Vísindamenn við Háskólann í Wisconsin-Madison (UW) hafa þróað ódýrt, endurnýjanlegt og endingargott gólfefni sem getur framleitt raforku úr fótataki þeirra sem um gólfið ganga. Uppistaðan í efninu eru nanótrefjar úr sellulósa sem nóg er af í viðarúrgangi og fleiri aukaafurðum úr jurtaríkinu og byggir raforkuframleiðslan á snertingu sérstaklega meðhöndlaðra trefja við ómeðhöndlaðar trefjar. Hver eining getur verið allt niður í 1 mm að þykkt og er hægt að byggja gólfefnið upp úr mörgum slíkum lögum. Aðferðin hentar einkar vel í stórmörkuðum og á öðrum fjölförnum stöðum, en þar ætti að vera hægt að framleiða umtalsvert magn af raforku með þessum hætti. Næsta verk vísindamannanna er að prófa efnið við raunverulegar aðstæður.
(Sjá frétt á heimasíðu UW í dag).

Statoil stofnar tugmilljarða sjóð fyrir græna orku

VindmøllerNorski olíurisinn Statoil setti í dag á stofn sérstakan fjárfestingasjóð sem ætlað er að fjárfesta í verkefnum á sviði endurnýjanlegrar orku fyrir 1,7 milljarða norskra króna (rúmlega 25 milljarða ísl. kr.) á næstu 4-7 árum. Gert er ráð fyrir að þetta fé verði einkum lagt í uppbyggingu vindorku á landi og á hafi, sólarorku, orkugeymslu, orkuflutning, orkusparnað og snjallnetslausnir fyrir raforku.
(Sjá frétt á heimasíðu Statoil í dag).

Koltvísýringi breytt í metanól

160202143949_1_540x360Vísindamönnum við Háskólann í Suður-Kaliforníu (USC) hefur tekist, fyrstum manna, að framleiða metanól úr koltvísýringi eins og hann kemur fyrir í andrúmsloftinu. Hingað til hefur metanól einungis verið framleitt úr koltvísýringi í háum styrk og við hátt hitastig. Hin nýja aðferð felst í að dæla andrúmslofti í gegnum vatnslausn af pentaetýlenhexamíni (PEHA) að viðbættum efnahvata sem fær vetni til að bindast koltvísýringi undir þrýstingi. Þessi lausn er síðan hituð upp í 125-165°C sem er mun lægra hitastig en notað hefur verið í fyrri aðferðum. Lægra hitastig útheimtir augljóslega minni orku, auk þess sem það eykur endingu efnahvatans. Með þessu móti hefur vísindamönnunum tekist að breyta 79% af koltvísýringnum í metanól. Þannig eru slegnar tvær flugur í einu höggi. Koltvísýringur er fjarlægður úr andrúmsloftinu og til verður endurnýjanlegt eldsneyti sem getur komið í stað jarðefnaeldsneytis sem orkugjafi og hráefni í efnaiðnaði. Að minnsta kosti 5-10 ár munu þó líða áður en þetta eldsneyti verður orðið samkeppnisfært í verði.
(Sjá frétt ScienceDaily 2. febrúar).

Endurnýjanleg orka úr 15.000 tonnum af jólamat

Biogen-Xmas-food-waste (160x80)Meira en 15.000 tonn af matarafgöngum frá nýafstöðnum jólum voru nýtt af fyrirtækinu Biogen í Bretlandi til að framleiða hátíðlega endurnýjanlega orku, en magnið samsvarar þyngd 45 Boeing 747 flugvéla. Þar sem um 30% meira af matarúrgangi fellur til yfir hátíðarnar en á öðrum tímum ákvað fyrirtækið að haga málum þannig að hægt væri að nýta stærstan hluta úrgangsins til raforkuframleiðslu og framleiðslu á jarðvegsbæti. Þetta var m.a. gert með auknu samstarfi við stóra viðskiptavini á borð við sveitarfélög, smásala og veitingahúsakeðjur, en þar að auki unnu starfsmenn yfir jólin við að meðhöndla þann úrgang sem til féll. Með því að nýta úrganginn var hægt að koma í veg fyrir losun gróðurhúsalofttegunda við urðun, auk þess sem fyrirtækið gat aukið framleiðslu sína og þar með hagnað.
(Sjá frétt Sustainable Review 11. janúar).

IKEA sjálfu sér nægt um orku á Norðurlöndunum

WindIKEA_160Með opnun þriðja vindorkulundar IKEA í Svíþjóð í gær er fyrirtækið orðið óháð öðrum um orku fyrir starfsemi sína á Norðurlöndunum, þar sem raforkuframleiðsla fyrirtækisins á svæðinu er orðin meiri en heildarnotkunin. IKEA hefur sett sér það markmið að vera sjálfu sér nægt um orku á heimsvísu árið 2020 og segir talsmaður fyrirtækisins að stórum áfanga hafi verið náð í gær. IKEA hefur til þessa fjárfest fyrir um 1,5 milljarða sænskra króna (SEK) (um 24 milljarða ísl. kr.) í endurnýjanlegri orku í Svíþjóð og í árslok verður heildarfjárfesting þeirra á þessu sviði á heimsvísu væntanlega komin í 14 milljarða SEK (um 222 milljarða ísl. kr.). Fyrirtækið á nú 46 vindmyllur í Svíþjóð og að sögn fulltrúa Orkustofnunar Svíþjóðar er árangur fyrirtækisins dæmi um þann árangur sem atvinnulífið getur náð með frumkvæði og ábyrgð í eigin rekstri.
(Sjá frétt á heimasíðu IKEA 27. maí).

Álrafhlöður næsta bylting í orkugeymslu

aluminiumbattery_160Vísindamenn við Háskólann í Stanford hafa þróað hraðhleðslurafhlöðu úr áljónum sem talin er geta orðið fýsilegur valkostur við geymslu á endurnýjanlegri orku í dreifikerfum. Geymsla á umframorku, t.d. frá vindorkuverum, er ein helsta forsenda þess að hægt verði að auka hlut endurnýjanlegrar orku í dreifikerfum í Evrópu. Einn helsti kostur nýju álrafhlöðunnar er endingin, en hægt er að hlaða rafhlöðuna um 7.500 sinnum án þess að geymslugetan minnki. Til samanburðar er hægt að hlaða venjulegar litíumrafhlöður um 1.000 sinnum. Rafhlaðan hefur einnig þann kost að hægt er að hlaða hana mjög hratt og eins getur hún skilað orku hratt inná dreifikerfið. Ál er auk þess mun ódýrara en t.d. litíum. Álrafhlaðan nýtist ekki eingöngu til geymslu í dreifikerfum heldur telja vísindamenn að hún muni verða vinsæll kostur í fartölvum og snjallsímum vegna þess hversu skamman tíma hleðslan tekur.
(Sjá frétt EDIE 7. apríl).

Hagvöxtur jókst 2014 án aukinnar losunar

IEA_wind_160Árið 2014 var sögulegt að því leyti að hagvöxtur jókst án þess að mælanleg aukning yrði á losun gróðurhúsalofttegunda, að því er fram kemur í tilkynningu frá Alþjóðaorkumálastofnuninni (IEA). Síðustu 40 ár hefur aukinn hagvöxtur alltaf skilað sér í aukinni losun gróðurhúsalofttegunda, en losunin stóð í stað á milli áranna 2013 og 2014 þrátt fyrir 3% hagvöxt. Losun hefur stundum minnkað milli ára, en samdrátturinn hefur þá alltaf tengst fjármálakreppum. IEA telur þessa þróun mála 2014 benda til að áhersla á endurnýjanlega orku sé farin að skila sér í aftengingu hagvaxtar og losunar. Stofnunin bendir þó á að losun gróðurhúsalofttegunda sé enn mjög há og mikilvægt sé að ríkisstjórnir leggi aukna áherslu á umbreytingu orkuframleiðslunnar.
(Sjá frétt The Verge 13. mars).

Breska ríkisstjórnin svíkur grænt loforð

investing_in_coal_160Á valdatíma núverandi ríkisstjórnar í Bretlandi hafa þarlend stjórnvöld veitt 300 sinnum meira fé til stuðnings við vinnslu og nýtingu jarðefnaeldsneytis erlendis en til þróunar sjálfbærra orkugjafa. Yfirvöld hafa þannig rofið hið svokallaða „græna fyrirheit“ í stjórnarsáttmálanum frá 2010, þar sem ríkisstjórnin hét því að ýta undir þróun sjálfbærra orkugjafa erlendis og velja slíka orkugjafa umfram aðra. Í sáttmálanum kom einnig fram að ríkisstjórnin vildi vera leiðandi í útflutningi þekkingar og tækni sem tengist sjálfbærri orku. Stuðningur við óendurnýjanlega orkugjafa er kominn í samtals um 1,13 milljarða punda (um 229 milljarða ísl. kr.) það sem af er, aðallega í formi lána og lánatrygginga vegna verkefna í Brasilíu og Rússlandi. Hins vegar hafa aðeins um 3,6 milljónir punda (um 728 milljónir ísl. kr.) farið í uppbyggingu endurnýjanlegrar orku erlendis, og var þeirri upphæð nánast allri varið í uppbyggingu vindorkuvers í Þýskalandi.
(Sjá frétt the Guardian í dag).

Milljörðum sóað í illa staðsett orkuver

Solar panels are seen under a cloudy sky in Bad HersfeldUm 100 milljarðar bandaríkjadala (um 13.000 milljarðar ísl. kr.) hefðu sparast á síðustu árum ef stjórnvöld í Evrópu hefðu skipulagt staðsetningar endurnýjanlegra raforkuvera betur, að því er fram kemur í skýrslu sem kynnt var á efnahagsráðstefnunni í Davos í vikunni. Í skýrslunni kemur einnig fram að spara hefði mátt 40 milljarða bandaríkjadala (um 5.000 milljarða ísl. kr.) til viðbótar með aukinni samræmingu og öflugri rafstrengjum milli nágrannalanda. Betra skipulag hefði komið í veg fyrir byggingu sólarorkuvera í sólarlitlum löndum og vindorkuvera á skjólsælum stöðum. Sem dæmi má nefna að Spánn fær um 65% meiri orku frá sólinni en Þýskaland, en þó hefur Þýskaland byggt upp sólarorkuver með 600% meiri afkastagetu en Spánn á síðustu árum.
(Sjá frétt Planet Ark 21. janúar).