Sendibílafloti Evrópu notaði að meðaltali 4% minna eldsneyti árið 2013 en árið áður samkvæmt nýjustu tölum Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA), en þetta þýðir að flotinn er kominn undir markmið Evrópusambandsins í eldsneytisnýtingu fyrir árið 2017. Um 1,2 milljónir nýrra sendibíla voru skráðar í Evrópu árið 2013 og var koltvísýringslosun þeirra að meðaltali 173,3 g/km, en markmið ESB fyrir árið 2017 er 175 g/km. Meðallosunin er breytileg eftir löndum. Minnst er hún á Möltu, í Portúgal og í Frakklandi, en mest í Slóvakíu, Þýskalandi og Tékklandi. Sömu þróun má sjá í einkabílaflota Evrópu, en þar hefur losunin nú þegar náð markmiði ESB fyrir árið 2015.
(Sjá frétt EEA 21. maí).
Greinasafn fyrir flokkinn: Samgöngur
Flöskuvatn úr útblæstri vetnisbíla
Vatn sem verður til við brennslu vetnis á vetnisbílum er nú sett á flöskur og selt undir merkjum bílaframleiðandans Honda. Fyrirtækið hefur framleitt vetnisbíla undir vörumerkinu FCX-Clarity síðan 2008 og er flöskuvatnið leið til að vekja athygli á hreinleika útblásturs frá bílunum og undirstrika um leið staðfestu fyrirtækisins í að minnka umhverfisáhrif starfseminnar. Vatnið verður í boði á starfsstöðvum fyrirtækisins og er það von Honda að nýja vörumerkið, H2O, muni auka umræður um vetnisbíla og umhverfislegan ávinning þeirra.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Pappírslausar flugvélar
Með því að nota spjaldtölvur í stað útprentaðra farþegalista, flughandbóka, gátlista og annara skjala munu flugvélar flugfélagsins EasyJet léttast og með því sparast um 56 milljónir króna í eldsneyti árlega. Hver flugfarmur verður um 25 kg léttari, auk þess sem auðveldara verður að uppfæra skjöl. EasyJet er þekkt fyrir lág fargjöld og á síðustu misserum hefur félagið dregið verulega úr rekstrarkostnaði með því að seinka ræsingu véla, beita samfelldri aðflugstækni, minnka notkun aukarafstöðva á jörðu niðri, hanna léttari farþegasæti og nota léttari vagna í farþegarými svo eitthvað sé nefnt. EasyJet fullyrðir að kolefnisspor farþega flugfélagsins sé nú um 22% minna en hjá hefðbundnum flugfélögum.
(Sjá frétt EDIE 9. maí).
Hleðslustöð á hjólum
Hreyfanleg hleðslustöð fyrir rafbíla verður framvegis hluti af þeirri neyðarþjónustu sem fyrirtækið RAC í Bretlandi býður viðskiptavinum sínum. Þjónustubílar fyrirtækisins verða búnir 5 kW hleðslustöð til að hlaða rafbíla sem verða rafmagnslausir á miðri leið. Hálftíma hleðsla dugar fyrir 24 km akstur, sem ætti að koma viðskiptavininum heim eða á næstu hleðslustöð. Ef á þarf að halda er hægt að fylla geyminn á u.þ.b. 4 klst. RAC segir hleðslustöðina vera svar fyrirtækisins við ört stækkandi rafbílaflota Bretlands, en í dag eru rafbílanotendur í Bretlandi rúmlega 9.000 talsins.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Blýlaust bensín sannar mikilvægi sitt
Styrkur blýs í líkömum sænskra barna hefur minnkað sexfalt frá árinu 1994 þegar blýlaust bensín komst í almenna notkun þarlendis. Þetta kemur fram í sænskri handbók um eiturefnafræði málma (Handbook on the Toxicology of Metals). Sænski eiturefnafræðingurinn Staffan Skerfving segir þróunina frá blýblönduðu bensíni vera dæmi um farsælt verkefni sem hefur bætt heilsufar íbúa. Þróunin hefur verið svipuð í öðrum löndum eftir að bannað var að blanda blýi í bensín. Blýið er lengi til staðar í umhverfinu, en Staffan telur að á þeim 20 árum sem liðin eru hafi stór hluti þess bundist í jarðvegi og hafi því sífellt minni áhrif á heilsu manna. Á síðustu árum hafa mörg þróunarríki einnig hætt notkun blýblandaðs bensíns og er talið að það sé nú einungis selt í sex ríkjum. Blý getur m.a. haft skaðleg áhrif á þróun heilastarfsemi hjá börnum.
(Sjá frétt Sveriges Radio 20. mars).
Endurnýting reiðhjóla í góðgerðarskyni
Bretar geta skilað inn gömlum og biluðum hjólum, fengið 10% afslátt af nýjum og þannig hjálpað til við að auka hreyfanleika bágstaddra í Afríku! Þetta tilboð er hluti af söfnunarátaki bresku góðgerðarsamtakanna Re-Cycle sem hófst í dag. Reiðhjól eru talin mikilvægur liður í útrýmingu fátæktar þar sem þau auðvelda fjölskyldum í dreifbýli að nálgast þjónustu á borð við heilsugæslu, vinnustaði og skóla. Re-Cycle hefur staðið fyrir söfnun sem þessari árlega síðan 1997 og sent um 53 þúsund hjól til Mið- og Suður-Afríku um leið og þau hafa dregið úr magni úrgangs í Bretlandi. Gert er við hjólin áður en þau eru send áleiðis, en auk þess snýst hluti verkefnisins um þjálfun heimamanna í viðhaldi reiðhjóla.
(Sjá frétt EDIE í dag).
Honda setur upp vetnisstöð
Bílaframleiðandinn Honda hefur sett upp vetnisáfyllingarstöð við verksmiðjur sínar í Torrance í Kaliforníu. Þetta er liður í undirbúningi fyrirtækisins fyrir næstu kynslóð vetnisbíla, sem kynnt verður árið 2015 í Bandaríkjunum og Japan. Stöðin verður jafnframt sýnidæmi og prófunarstöð fyrir nýjan staðal í vetnisáfyllingu sem Honda vill að tekinn verði upp. Staðallinn nefnist MC Fill og byggir á 700 bara þrýstingi. Með þessari tækni á að vera hægt að stytta áfyllingartímann um allt að 45% frá því sem áður hefur þekkst, sem þýðir að það ætti ekki að taka meira en 3 mínútur að fylla geyma vetnisbíls við venjulegar aðstæður. Næsta kynslóð vetnisbíla frá Honda á að komast um 500 km á hverjum tanki og efnarafalarnir eiga að rúmast í venjulegu vélarrúmi.
(Sjá frétt Hybridcars.com 4. mars).
Umhverfismerktir hvarfakútar
Þýsku fyrirtækin HJS Emission Technology og LRT Automotive fengu á dögunum leyfi til að merkja hvarfakúta sem fyrirtækin framleiða með þýska umhverfismerkinu Bláa englinum. Umræddir kútar eru varahlutir sem gripið er til ef skipta þarf um hvarfakúta í bílum. Kútarnir eru seldir með 5 ára ábyrgð og til að fá Bláa engilinn þurfa þeir að standast strangar kröfur um hreinsun útblásturs allan þann tíma. Virkni kútanna skal prófuð sérstaklega einu sinni á ári til að staðfesta afköst þeirra og endingu. Umræddir kútar eru fyrstu umhverfismerktu hvarfakútarnir á markaðnum.
(Sjá fréttatilkynningu Bláa engilsins 10. febrúar).
Hjólreiðar bæta afkomu fyrirtækja vestanhafs
Framámenn í viðskiptalífinu vestanhafs sækjast í vaxandi mæli eftir því að reka fyrirtækin sín í miðborgum þar sem útbúnar hafa verið sérstakar akreinar fyrir hjólreiðafólk. Þessi þróun stafar þó ekki af auknum áhuga á umhverfismálum, heldur hefur reynslan sýnt að afkoma fyrirtækja er betri þar sem hjólasamgöngur eru greiðar. Hjólreiðafólk fer til að mynda hægar yfir og staldrar frekar við í verslunum, auk þess sem stórfé sparast við það að hægt er leggja mörgum hjólum í stæði sem rúmar aðeins einn bíl. Starfsfólk á auk heldur auðveldara með að komast til og frá vinnu, streita vegna ferðalaga minnkar, heilsufar batnar, afköst aukast, veikindadögum fækkar og fyrirtækjum reynist auðveldara að laða til sín hæft starfsfólk af yngri kynslóðinni.
(Sjá umfjöllun í The Guardian 4. febrúar).
99.999 Nissan Leaf seldir
Í síðustu viku seldist 99.999. rafbíllinn af gerðinni Nissan Leaf. Kaupandinn var Amy Eichenberger, 47 ára arkítekt frá Charlottesville í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Með þessu er ljóst að Nissan Leaf er orðinn söluhæsti rafbíllinn á heimsvísu frá upphafi. Takmörkuð drægni rafbíla veldur mörgum bílakaupendum áhyggjum, en Amy kveðst ekki hafa viljað láta slíkar áhyggjur verða til þess að hún missti af framsýnasta valkostinum á markaðnum, enda dygði bíllinn henni í 98% tilfella.
(Sjá frétt á Hybridcars.com 19. janúar).