Fólksbílar sem seldir voru í löndum Evrópusambandsins (ESB) á síðasta ári voru að meðaltali 9% sparneytnari en næstu þrjú ár þar á undan samkvæmt nýrri skýrslu frá Umhverfisstofnun Evrópu (EEA). Tækniframfarir, fjölgun dísilbíla og efnahagsþrengingar eru taldar eiga stærstan hlut í þessu. Meðalbíllinn sem seldur var 2012 losaði 132,2 g CO2/km, en samkvæmt reglum ESB þarf meðallosunin að vera komin niður í 130 g/km 2015 og 95 g/km 2020. Héðan í frá er heimilt að beita bílaframleiðendur sektum ef þeir standast ekki þessar kröfur.
(Sjá frétt á heimasíðu EEA 30. apríl).
Greinasafn fyrir flokkinn: Loftslagsmál
Bresk börn hafa áhyggjur af loftslagsmálum
Þrjú af hverjum fjórum 11-16 ára börnum í Bretlandi hafa áhyggjur af áhrifum loftslagsbreytinga á líf þeirra sjálfra og á líf barna í fátækari löndum og vilja að stjórnvöld grípi til aðgerða til að bregðast við þessari ógn. Aðeins 1% breskra barna á þessum aldri segjast ekki vita neitt um loftslagsbreytingar. Þessar niðurstöður koma fram í nýrri könnun UNICEF, sem birtist á svipuðum tíma og upplýst var um áform stjórnvalda um að taka loftslagsmál út úr námsskrám fyrir börn 14 ára og yngri.
(Sjá frétt The Guardian í dag).
Sparneytnari bílar og meiri atvinna
Um 400.000 ný störf gætu skapast í Evrópu ef samkomulag næst innan Evrópusambandsins um hertar reglur um orkunýtni bifreiða, en fyrsta atkvæðagreiðslan um tillögu í þessa veru fer fram á Evrópuþinginu í dag. Í skýrslu sem breskir ráðgjafar hafa unnið fyrir sambandið kemur einnig fram að með innleiðingu nýju reglnanna myndu íbúar Evrópusambandsríkja spara 57-79 milljarða evra (9-13 þúsund milljarða ísl. kr.) í eldsneytiskaupum á ári hverju, með samsvarandi aukningu kaupmáttar á öðrum sviðum. Í umræddum tillögum er gert ráð fyrir að koltvísýringslosun nýrra bíla verði að meðaltali 95 g/km árið 2020, samanborið við 130 g/km sem stefnt er að fyrir árið 2015.
(Sjá frétt PlanetArk í gær).
Vikulegt grænt flug yfir Atlantshafið
Hollenska flugfélagið KLM tilkynnti á dögunum að hér eftir verði boðið upp á flug milli New York og Amsterdam einu sinni í viku, þar sem eingöngu verður brennt endurnýjanlegu flugvélaeldsneyti úr notaðri matarolíu. Auk KLM hafa flugfélögin BA, Delta og Virgin Airlines lagt mikið fé í þróun endurnýjanlegs eldsneytis. Sérstaklega er horft til möguleika sem taldir eru liggja í framleiðslu eldsneytis úr þörungum.
(Sjá frétt BusinessGreen í gær).
Eldsneyti úr sólarljósi og CO2
Miklar vonir eru bundnar við nýja tækni til að framleiða eldsneyti úr koltvísýringi með aðstoð sólarljóssins, en hópur vísindamanna undir stjórn Heriot-Watt háskólans í Edinborg vinnur að þessu. Hópurinn fékk nýlega styrk upp á 1,2 milljónir sterlingspunda (um 226 millj. ísl. kr.) til að auka skilvirkni í framleiðslunni og gera hana samkeppnishæfa á markaði. Afurðin úr ferlinu getur t.d. verið metan eða metanól, og ef vel gengur ætti þetta að geta minnkað kolefnislosun út í andrúmsloftið um 700 milljón tonn á ári, sem er meira en öll árleg losun Bretlands.
(Sjá frétt EDIE í gær).
Ör vöxtur í sorpbrennslu
Gert er ráð fyrir að fjárfesting í evrópskum sorporkuverum verði komin í 5 milljarða dollara (tæplega 650 milljarða ísl. kr.) árið 2016. Þetta er afleiðing af viðleitni stjórnvalda til að draga úr urðun og losun gróðurhúsalofttegunda. Á næstu árum þarf fyrirsjáanlega að leggja mikið fé í endurbætur á eldri stöðvum til að þær nái að uppfylla nýjustu kröfur um hreinsun útblásturslofts. Árið 2012 féllu til um 265 milljónir tonna af óflokkuðum heimilisúrgangi í Evrópu, en á heimsvísu var magnið nálægt 1,3 milljörðum tonna. Gert er ráð fyrir að þessi tala verði komin í 2,2 milljarða tonna árið 2025, og að þá verði árlegur kostnaður vegna úrgangsmeðhöndlunar um 375 milljarðar dollara (um 47.000 milljarðar ísl.kr.), sem er um 83% hækkun frá því sem nú er.
(Sjá frétt EDIE 27. febrúar).
Keppt í sjálfbærni á EM í Gautaborg
Sjálfbærni verður ný keppnisgrein á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem haldið verður í Gautaborg 1.-3. mars nk. Þar er ætlunin að fá a.m.k. 6.000 manns, þ.e.a.s. jafnmarga sætunum í frjálsíþróttahöllinni, til að undirrita sérstakt loftslagsheit í 10 liðum. Sænsku náttúruverndarsamtökin(Naturskyddsföreningen) með þekktasta starfsmann sinn, Carólínu Klüft, í broddi fylkingar, hafa unnið að undirbúningi verkefnisins með Evrópska frjálsíþróttasambandinu. Sams konar keppni verður háð á fjórum öðrum Evrópumeistaramótum (félagsliða, ungmenna og í víðvangshlaupi) síðar á árinu, en öll þessi mót eru aðilar að samstarfi um umhverfismál undir yfirskriftinni „Green inspiration„.
(Sjá frétt á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Evrópu 22. febrúar).
Norðurheimskautssvæðið þarf meiri vernd
Umhverfissstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) telur þörf á að verja Norðurheimskautssvæðið betur en gert er gegn ágengni í náttúruauðlindir á borð við málma, olíu og gas, sem nú verða sífellt aðgengilegri samfara bráðnun heimskautsíssins. Að mati UNEP gegnir Norðurskautsráðið lykilhlutverki í að tryggja ábyrga umgengni um þessar auðlindir. Allar ákvarðanir um nýtingu þeirra verði að byggja á mati á áhrifum nýtingarinnar á vistkerfi og stofna.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
Samkeppni um bestu loftslagsverkefnin
Í fyrradag hleypti Connie Hedegaard, umhverfisstjóri Evrópusambandsins, formlega af stokkunum sérstakri samkeppni um besta loftslagsverkefnið. Tilgangurinn er að fá fram góð dæmi um aðgerðir einstaklinga og samtaka til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Frestur til að senda inn upplýsingar um verkefni er til 11. maí, og í maí og júní getur almenningur kosið um bestu verkefnin á þar til gerðri vefsíðu. Þrjú bestu verkefnin verða síðan verðlaunuð á Sustainiahátíðinni í Kaupmannahöfn í október. Samkeppnin er liður í átakinu A world you like. With a climate you like sem hófst í október 2012 og hefur vakið talsverða athygli, m.a. á Facebook.
(Sjá frétt á heimasíðu A world you like 11. febrúar).
Ljósin slökkt í Frakklandi
Frá og með 1. júlí nk. verða verslanir og skrifstofur í Frakklandi að slökkva öll inniljós einni klst. eftir að síðasti starfsmaður yfirgefur bygginguna. Jafnframt verða ljós í búðargluggum að vera slökkt eftir kl. 1 eftir miðnætti. Þessar reglur eru hluti af nýrri löggjöf sem ætlað er að draga úr ljósmengun, auk þess sem losun koltvísýrings mun minnka um 250.000 tonn á ári. Orkan sem sparast dugar fyrir 750.000 frönsk heimili.
(Sjá frétt The Guardian 30. janúar).