„Miklu miklu verra“

Nicholas-Stern-008„Mér skjátlaðist varðandi loftslagsbreytingarnar – þetta er miklu miklu verra“, sagði Nicholas Stern í viðtali sem tekið var á efnahagsráðstefnunni í Davos fyrir helgi. Stern var höfundur skýrslu sem út kom árið 2006 og þótti marka nokkur tímamót í loftslagsumræðunni, þar sem þar var lagt hagfræðilegt mat á áhrif loftslagsbreytinga. Niðurstaða Sterns þótti sláandi á þeim tíma. Fleiri hafa talað tæpitungulaust í Davos, svo sem Jim Yong Kim, nýráðinn forseti Alþjóðabankans. Ef svo heldur sem horfir og meðalhitastig á jörðinni hækkar um allt að 4°C, telur hann að hvarvetna verði barist um vatn og fæðu. Góðu fréttirnar séu hins vegar þær að hægt sé að sveigja hagkerfið inn á rétta braut. Í grænu hagkerfi liggi gríðarleg tækifæri fyrir atvinnulífið.
(Sjá frétt The Guardian 26. janúar).

Coca Cola styrkir Norðurheimskautsverkefni WWF

Coca ColaCoca-Cola ætlar að styrkja alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin WWF um 3 milljónir evra (rúml. hálfan milljarð ísl. kr.) á næstu þremur árum. Féð verður notað til að hrinda af stað átaki um alla Evrópu til að vekja athygli á alvarlegum áhrifum loftslagsbreytinga á vistkerfi á Norðurheimskautssvæðinu. Athyglinni verður sérstaklega beint að ísbjörnum, en ör bráðnun heimskautaíssins neyðir birnina til að verja sífellt lengri tíma á landi, sjálfum sér og mannfólkinu til armæðu og tjóns. Þess er og að vænta að auglýsingar og umbúðir Coca Cola verði nýttar til að fræða neytendur um þá ógn sem bráðnun heimskautaíssins raunverulega er.
(Sjá frétt PlanetArk 18. janúar).

Loftslagsáhrif svarts kolefnis tvöfalt meiri en talið var

utsläppSvart kolefni (sót) hefur tvöfalt meiri áhrif á loftslag en áður var talið og á meiri þátt í hlýnun jarðar en metan. Aðeins koltvísýringur skiptir meira máli í því sambandi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem birt verður kl. 13:00 í dag og hefur að geyma niðurstöður úr fjögurra ára vísindarannsóknum. Sótið hefur mest áhrif til hlýnunar á Norðurheimskautssvæðinu, þar sem það dekkir ís og snjó og dregur úr endurkasti, en áhrif á úrkomu geta einnig verið töluverð, svo sem á Monsoon-svæðum. Tafarlausir aðgerðir til að draga úr losun sóts og annarra skammlífra loftslagsáhrifavalda eru samkvæmt þessu mun mikilvægari en áður var talið til að sporna við loftslagsbreytingum af mannavöldum.
(Sjá frétt á heimasíðu UNEP í dag).

Áform um vinnslu CO2 beint úr andrúmslofti

Carbon EngineeringKanadíska fyrirtækið Carbon Engineering hefur hafið tilraunir með vinnslu koltvísýrings beint úr andrúmsloftinu, og er stefnt að því að tilraunaverksmiðja til þessara nota verði tilbúin í Calgary fyrir árslok 2014. Enn ríkir mikil óvissa um kostnaðinn við vinnsluna, en talið er að hann verði á bilinu 20-2.000 dollarar á tonnið. Bent hefur verið á að þessi kostnaður gefi vísbendingu um sanngjarnt gjald fyrir að fá að sleppa koltvísýringi út í andrúmsloftið.
(Sjá frétt í New York Times 5. janúar).

Costa Rica kolefnishlutlaust 2021

TortugueroCosta Rica verður fyrsta kolefnishlutlausa landið í heiminum ef áætlanir þarlendra stjórnvalda ganga eftir. Þessu markmiði á að ná árið 2021. Í þessum tilgangi er m.a. verið að byggja þar upp markað fyrir losunarheimildir með stuðningi Alþjóðabankans. Á síðustu 25 árum hefur þjóðarframleiðsla í Costa Rica þrefaldast á sama tíma og skóglendi hefur tvöfaldast.
(Sjá frétt SustainableBusiness 4. janúar).

Koltvísýringslosun minnkar hægar í atvinnugreinum sem versla með losunarheimildir

handel_CO2Koltvísýringslosun minnkar hægar í atvinnugreinum sem versla með losunarheimildir en í greinum sem gera það ekki, að því er fram kemur í nýrri úttekt Umhverfisstofnunar Svíþjóðar (Naturvårdsverket). Á árunum 2005-2007 minnkaði koltvísýringslosun um 0,9% í þeim atvinnugreinum í Svíþjóð sem versla með losunarheimildir, en um 3,2% í öðrum greinum. Svipað er uppi á teningnum frá og með árinu 2008, en á því tímabili hefur samdrátturinn verið 1,0% í fyrrnefndu greinunum og 3,6% í þeim síðarnefndu.
(Sjá fréttatilkynningu Naturvårdsverkets í gær).

Ferli sem ber í sér dauða þjóða okkar

Kieren Keke„Það þarf miklu miklu meira til ef okkur á að takast að bjarga þessu ferli frá því að vera bara ferli ferlisins vegna, ferli sem bara býður upp á orð en engar aðgerðir, ferli sem ber í sér dauða þjóða okkar, fólksins okkar og barnanna okkar“. (Kieren Keke, utanríkisráðherra Nauru að loknu 18. þingi aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Doha í Katar á dögunum).
(Sjá frétt PlanetArk í gær).

Fjárfestar kalla eftir aðgerðum í loftslagsmálum

Hópur nokkurra stærstu fagfjárfesta heims hafa sent ríkisstjórnum leiðandi ríkja bréf, þar sem varað er við því að lífeyrissparnaður og fjárfestingar milljóna manna séu í hættu verði ekki gripið til markvissra aðgerða til að afstýra hættulegum afleiðingum loftslagsbreytinga. Í bréfinu er kallað eftir víðtæku samráði stjórnvalda og fjárfesta um stefnumótun í loftslagsmálum með það að markmiði m.a. að stórauka fjárfestingar í kolefnissnauðri tækni og setja metnaðarfull markmið um samdrátt í losun. Bréfið kemur í kjölfar svartrar skýrslu Alþjóðabankans um horfur í loftslagsmálum og nokkrum dögum fyrir 18. fund aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Doha.
(Sjá frétt Business Green 20. nóvember).

Al Gore skorar á Barack Obama að láta til sín taka í loftslagsmálum

Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, hefur skorað á Barack Obama að nýta færið sem nú gefst í upphafi nýs kjörtímabils til að grípa til róttækra aðgerða í loftslagsmálum, svo sem með álagningu kolefnisskatta. Þannig megi í senn þoka þjóðinni fjær fjárlagaþverhnípinu svokallaða (e. fiscal cliff) sem blasir við í lok þessa árs og loftslagsþverhnípinu (e. climate cliff). Líklegt er að aðgerðir af þessu tagi njóti meiri stuðnings meðal Bandaríkjamanna nú en áður, þar sem fellibylurinn Sandy virðist hafa vakið fólk harkalega til umhugsunar um áhrif manna á loftslag á jörðinni.
(Sjá frétt The Guardian í gær).

Kók í plöntuflöskum

Drykkjarvörurisinn Coca Cola hefur sett sér það markmið að árið 2020 verði allar plastflöskur fyrirtækisins búnar til úr plöntuafurðum í stað olíu. Meira en 10 milljarðar slíkra flaskna hafa þegar verið seldar frá því að framleiðsla þeirra hófst 2009, og þar með hafa sparast rúmlega 200.000 tunnur af olíu. Í ársbyrjun 2015 ætti framleiðsla á plöntuflöskum að geta margfaldast þegar tekin verður í notkun ný verksmiðja í Brasilíu, sem fyrirtækið JBF Industries byggir í samstarfi við Coca Cola. Verksmiðjan, sem verður sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, á að geta framleitt 500.000 tonn af lífglýkól á ári úr sykurreyr og úrgangi frá sykurvinnslu, en lífglýkól er notað sem hráefni í framleiðslu á plöntuflöskum.
(Sjá frétt EDIE 9. nóvember).