Í nýrri könnun dönsku upplýsingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu kom í ljós að 11 tannkremstegundir af 57 sem skoðaðar voru, innihéldu parabena sem taldir eru geta raskað hormónastarfsemi líkamans. Parabenar hafa verið notaðir sem rotvarnarefni í ýmsar snyrtivörur, en óleyfilegt er að nota nokkra þeirra í snyrtivörur fyrir börn undir þriggja ára aldri. Tvær tannkremstegundir innihéldu parabena af þessum bannlista, þ.e.a.s. Viofluor Mint Gel og Sensodyne Rapid. Til að forðast parabena í tannkremi er ráðlegt að kaupa Svansmerkt tannkrem eða lesa innihaldslýsinguna vandlega áður en kaupin eru gerð.
(Sjá frétt á forbrugerkemi.dk 4. janúar).
Greinasafn fyrir flokkinn: Neytendur
Gleðileg jól
Vefsíðan 2020.is óskar lesendum sínum gleðilegrar og efnislítillar jólahátíðar, minnir þá á að geyma nýtilegan jólapappír til næstu jóla, og vonar að næsta ár verði þeim öllum farsælt og friðsamt. Næsti umhverfisfróðleiksmoli síðunnar birtist mánudaginn 7. janúar 2013.
Levi’s lýsir yfir afeitrun
Gallabuxnaframleiðandinn Levi Strauss & Co. hét því sl. fimmtudag að fara í afeitrun, þ.e.a.s. að hætta að nota umhverfis- og heilsuspillandi efni í framleiðslu sinni. Með þessu bregst Levi’s við áskorunum nokkur hundruð þúsunda einstaklinga sem þrýst hafa á fyrirtækið síðustu 2 vikur að undirlagi umhverfisverndarsamtakanna Greenpeace undir yfirskriftinni „Go Forth and Detox“. Levi’s, sem er stærsti gallabuxnaframleiðandi í heimi, gengur með þessu í lið með 10 öðrum leiðandi fyrirtækjum í framleiðslu og sölu á fatnaði sem þegar höfðu brugðist við þessu kalli almennings. Í þeim hópi eru Zara, sem er stærsta fataverslunarkeðja í heimi, Nike, Adidas, Puma, H&M, Marks&Spencer, C&A, Li-Ning, Mango og Esprit.
(Sjá frétt á heimasíðu Greenpeace 13. desember).
Triclosan finnst enn í tannkremi
Tvær af 57 tannkremstegundum sem Danska upplýsingamiðstöðin um umhverfi og heilsu skoðaði nýlega reyndust innihalda tríklósan. Efnið er bakteríudrepandi, en jafnframt hormónaraskandi og skaðlegt umhverfinu. Tannkremstegundirnar sem um ræðir eru Colgate Total Original og Colgate Total Advanced Whitening, en þessar sömu tegundir voru jafnframt þær einu sem reyndust innihalda tríklósan í sambærilegri könnun sem gerð var 2008. Þá þegar vissu menn sitthvað um skaðsemi efnisins, en fleira hefur bæst við síðan. Þannig leikur grunur á að efnið stuðli að vexti ónæmra baktería.
(Sjá frétt á forbrugerkemi.dk 12. desember).
Hættulegir jólaúðabrúsar
Sex af hverjum tíu úðabrúsum með jólasnjó, glimmer og skrautflögum (d. konfetti) sem efnaeftilit Umhverfisstofnunar Danmerkur (Miljøstyrelsen) tók til skoðunar á dögunum reyndust innihalda ólögleg efni. Í flestum tilvikum var um að ræða gróðurhúsalofttegundir sem ekki er heimilt að nota í brúsum af þessu tagi eða þá mjög eldfim efni, svo sem lífræn leysiefni, sem geta skapað mikla hættu sé þeim úðað innanhúss. Gerð hefur verið krafa um að ólöglegu brúsarnir verði þegar í stað teknir af markaði. Sé fólk í vafa ætti það að nota brúsana utandyra og láta efnin þorna þar, láta brúsana ekki í hendur börnum, forðast nálægð við andlit, klæðast hönskum og gæta þess að opinn eldur sé hvergi nærri.
(Sjá fréttatilkynningu Miljøstyrelsen 10. desember).
H&M tekur við notuðum fötum
Frá og með febrúar á næsta ári mun H&M verslunarkeðjan taka við notuðum og gölluðum fötum til endurvinnslu í öllum þeim 48 löndum þar sem keðjan er starfandi, óháð vörumerkjum og því hvar fötin voru upphafleg keypt. Þessi nýbreytni er liður í viðleitni fyrirtækisins til að stuðla að sjálfbærri þróun. Þeir sem skila inn fötum fá afsláttarmiða frá H&M í staðinn.
(Sjá frétt á heimasíðu Svenska dagbladet í gær).
Varnarefni geta skaðað ófædda drengi
Tilraun sem vísindamenn við Tækniháskóla Danmerkur (DTU) gerðu nýverið á rottum bendir til að drengir sem hafa fengið í sig mismunandi varnarefni á fósturskeiði séu líklegri en aðrir til að glíma við námsörðugleika og skerta sæðisframleiðslu síðar á lífsleiðinni, jafnvel þótt styrkur varnarefnanna hafi verið innan viðmiðunarmarka fyrir hvert efni um sig. Í tilrauninni var notað óverulegt magn af 5 varnarnefnum, sem flest eru notuð sem sveppaeitur í kornrækt og eiga það öll sameiginlegt að geta truflað hormónastarfsemi líkamans. Ulla Hass, prófessor við DTU sem stjórnaði rannsókninni, segir niðurstöðurnar gefa tilefni til að lækka viðmiðunarmörk fyrir umrædd efni, þar sem samlegðaráhrif þeirra („kokkteiláhrif“) hafi að öllum líkindum verið vanmetin.
(Sjá umfjöllun Information 30. nóvember).
Flúorsambönd í möffinsformum
Í rannsókn neytendablaðsins Tænk í Danmörku kom í ljós að tvö af tíu möffinsformum sem skoðuð voru reyndust innihalda flúrsambönd, sem óttast er að geti verið skaðleg umhverfi og heilsu. Umrædd efnasambönd eru notuð til að gera formin fitu- og vatnsfráhrindandi. Þau geta safnast upp í líkamanum og hugsanlega stuðlað að krabbameinsvexti, ófrjósemi, ADHD o.fl. Ekki hefur verið sýnt fram á að flúorsambönd í matarumbúðum berist í matinn, en Dönsku neytendasamtökin (Forbrugerrådet) álíta engu að síður að efni af þessu tagi eigi ekkert erindi í matarumbúðir. Um er að ræða efnasambönd á borð við teflon, en flúor í tannkremi er allt annars eðlis.
(Sjá frétt á heimasíðu Tænk 30. nóvember).
Svansmerktar snyrtivörur í meirihluta hjá Irma
Danska verslunarkeðjan Irma selur nú meira af Svansmerktum snyrtivörum en öðrum vörum til sömu nota. Hlutfall Svansmerktu varanna er komið í 56% af heildarsölunni, en salan á þessum vörum hefur aukist um 7% á einu ári. Trúverðugleiki Svansins og samkeppnishæft verð eru sagðar vera helstu ástæður þessarar miklu aukningar.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Danmörku 27. nóvember).
Með mengun í blóðinu
Í rannsókn sem gerð var nýlega á fjórum ungum konum sem þekktar eru úr sviðsljósi norskra fjölmiðla kom í ljós að allar höfðu þær nokkurt magn mengunarefna í blóðinu. Rannsóknin var gerð í samvinnu við Svaninn og tímaritið Cygnus. Þó að styrkur efnanna hafi í flestum tilvikum verið lágur, vekur þetta upp spurningar um hugsanleg áhrif, þ.á.m. samverkandi áhrif til langs tíma. Vaxandi magn ýmissa mengunarefna í blóði fólks kann m.a. að stuðla að minnkandi frjósemi og aukinni tíðni ofnæmis og krabbameins. Mörg þessara efna safnast upp í líkamanum á langri ævi og skila sér auk þess til ungbarna með móðurmjólkinni. Ekki er auðvelt að greina uppruna efnanna, en þau getur m.a. verið að finna í vörum sem fólk notar þegar það þvær hendur sínar og hár, farðar sig eða burstar tennur.
(Sjá frétt í Dagbladet 23. nóvember).