Á næstu þremur árum verður fyrsta samhæfða vetniskerfi Bretlands byggt upp í London. Miðpunkturinn í kerfinu verða nokkrar áfyllingarstöðvar fyrir vetnisbíla, þar sem vetni af endurnýjanlegum uppruna verður afgreitt með 700 bara þrýstingi. Jafnframt verða eldri stöðvar uppfærðar í 700 bör til að mæta fyrirsjáanlegri þróun vetnisbíla. Uppbygging kerfisins er samstarf nokkurra aðila, en verkefnið gengur undir nafninu London Hydrogen Network Expansion (LHNE). Í verkefninu felst einnig útvegun vetnisbíla, m.a. fólksbíla af Hyundai-gerð og Revolve sendibíla. Með tilkomu kerfisins verða vetnisknúnir flutningar að raunhæfum möguleika í London. Aðstandendur verkefnisins vonast til að það nýtist sem sýnidæmi og fyrirmynd annarra vetniskerfa sem byggð verða upp í Bretlandi og annars staðar í Evrópu í framtíðinni.
(Sjá frétt EDIE 30. janúar).
Greinasafn fyrir flokkinn: Samgöngur
Sífellt fleiri deyja vegna loftmengunar
Um 3,2 milljónir manna dóu vegna loftmengunar á árinu 2010 að því er fram kemur í grein í læknatímaritinu Lancet, en árið 2000 var þessi tala aðeins 800 þúsund. Loftmengun er nú í fyrsta sinn orðin ein af 10 algengustu dánarorsökunum í heiminum. Þessi mikla fjölgun stafar öðru fremur af gríðarlegri aukningu bílaumferðar í fjölmennum borgum í Asíu. Heilsufarsáhrif af mengun samtímans eiga þó væntanlega eftir að koma fram af enn meiri þunga, svo sem vegna krabbameina sem gera ekki vart við sig fyrr en að allnokkrum árum liðnum.
(Sjá frétt The Guardian í gær).
Eldsneyti úr úrgangi á vélar British Airways
Breska flugfélagið British Airways hefur gengið frá 10 ára samningi við fyrirtækið Solena um kaup á eldsneyti sem unnið verður úr heimilisúrgangi í GreenSky vinnslustöðinni austantil í London. Þegar stöðin verður komin í fulla notkun á hún að geta tekið við 500.000 tonnum af úrgangi á ári og framleitt úr honum 50.000 tonn af visthæfu flugvélaeldsneyti, auk 50.000 tonna af lífdísel og 40 megawatta af orku. Vinnslustöðin verður sú fyrsta í Evrópu sem framleiðir flugvélaeldsneyti með þessum hætti.
(Sjá frétt EDIE í gær).
65% af almenningssamgöngum Stokkhólms án jarðefnaeldsneytis
Stokkhólmslén er það svæði í Svíþjóð þar sem mestur árangur hefur náðst í notkun endurnýjanlegs eldsneytis í almenningssamgöngum, en þar var hlutfall slíks eldsneytis komið í 65% árið 2011. Örebrolén var hins vegar fremst í flokki hvað varðar innkaup á lífrænum matvælum, en árið 2011 voru 35,4% af matarinnkaupum lénsins með lífræna vottun. Fimm önnur svæði höfðu þá náð markmiði sænska ríkisins um 25% hlutdeild lífrænna matvæla í opinberum innkaupum. Þessar tölur og margar fleiri koma fram í skýrslunni Miljönyckeltal för landsting och regioner 2012 sem kom út í vikunni.
(Sjá skýrsluna Miljönyckeltal för landsting och regioner 2012).
Hverfur 2CV af götum Parísar?
Ýmis flaggskip franskrar bílasögu munu hverfa af götum Parísar ef tillögur borgarstjórans Bertrand Delanoe ná fram að ganga. Þar er gert ráð fyrir banni við akstri bifreiða eldri en árgerð 1997, en mengunarvarnir í þessum bílum standast ekki kröfur nútímans. Slíkt bann myndi hins vegar verða mikið áfall fyrir bílaáhugamenn og efnaminna fólk sem ekki hefur ráð á nýlegum ökutækjum. Tillögurnar taka ekki gildi fyrr en þær hafa verið samþykktar af yfirvöldum á landsvísu. Verði sú raunin munu bílar á borð við Citroen DS og Citroen 2CV ekki framar aka um götur Parísar.
(Sjá frétt PlanetArk í gær).
Sjálflýsandi vegir og rafhleðslureinar
Fyrstu sjálflýsandi akbrautirnar í Evrópu gætu orðið að veruleika á næsta ári að mati hollenskra hönnuða. Þessum áhrifum er hægt að ná fram með efni sem drekkur í sig dagsbirtuna og lýsir síðan í myrkri. Með þessu móti má spara verulega orku til lýsingar. Sömuleiðis er hægt að nota málningu sem bregst við hitabreytingum og getur þannig gefið ökumönnum skilaboð um ísingu o.fl. Innan 5 ára gæti líka opnast möguleiki á að byggja sérstakar akreinar sem sjá rafbílum fyrir hleðslu á meðan þeim er ekið eftir reinunum.
(Sjá frétt EDIE 2. nóvember).
Tveir jafngrænir bílar
Volkswagen Passat TSI Ecofuel og tengiltvinnbíllinn Volvo V60 urðu efstir og jafnir í vali samtakanna Gröna bilister í Svíþjóð á umhverfisvænsta (s. miljöbästa) bílnum 2013. Samtökin hafa valið grænasta bílinn á hverju ári frá 1994, en þetta er í fyrsta sinn sem tveir bílar deila með sér toppsætinu. Samtals voru 43 bílar tilnefndir að þessu sinni. Valið var í höndum fjögurra dómnefnda. Ein var skipuð barnafjölskyldum, önnur fólki 65 ára og eldra, sú þriðja bílablaðamönnum og sú fjórða umhverfisstjórum. Til að vera með í valinu þurfa bílar að uppfylla skilgreiningu stjórnvalda á visthæfum bílum, vera með hæstu einkunn í öryggisprófunum (Euro NCAP) og vera tilbúnir til afgreiðslu 1. janúar 2013. Listi Gröna bilister er sagður hafa mikil áhrif á bílasölu, bæði í Svíþjóð og í öðrum löndum.
(Sjá nánar á heimasíðu Gröna bilister 28. september).
Nissan og Fortum setja upp 50 hraðhleðslustöðvar
Bílaframleiðandinn Nissan og orkufyrirtækið Fortum hafa gengið frá samstarfssamningi um uppbyggingu innviða fyrir hraðhleðslu rafbíla. Settar verða upp 50 stöðvar á vel völdum stöðum við aðalvegi milli höfuðborga Norðurlandanna. Gert er ráð fyrir að á þessum stöðvum verði hægt að hlaða rafbíl á borð við Nissan LEAF upp í 80% á 20 mínútum. Verkefnið er liður í þróun Charge-and-drive hugmyndarinnar sem Fortum hefur unnið að um nokkurt skeið.
(Lesið fréttatilkynningu á vefsíðu Dagens Industri í gær).
Viskíúrgangur verður að eldsneyti
Hliðarafurðum úr viskíframleiðslu verður breytt í eldsneyti samkvæmt nýju samkomulagi viskýframleiðandans Tullibardine og sprotafyrirtækisins Celtic Renewables, sem þróað hefur tækni til að vinna bútanól úr lífrænum úrgangi. Verkefnið er hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Zero Waste Scotland styrkir verkefnið um 155.000 sterlingspund (um 31 milljón ísl. kr.), en enn hærri upphæð sparast árlega í lægri förgunargjöldum. Stefnt er að framleiðslu á allt að 10.000 lítrum af bútanóli, sem er þó aðeins örlítið brot af því sem gæti orðið ef allir skoskir viskýframleiðendur legðu saman.
(Sjá frétt EDIE í gær).
Leigubílar á grænu eldsneyti fá forgang á Arlanda
Frá því í júlí 2011 hafa allir leigubílar sem aka frá Arlandaflugvelli við Stokkhólm þurft að uppfylla skilgreiningu stjórnvalda á grænum bílum. Nú hyggst Swedavia sem sér um rekstur flugvallarins hins vegar ganga skrefi lengra til að ýta undir orkuskipti í samgöngum. Framvegis fá leigubílar sem ganga fyrir visthæfu eldsneyti forgang í biðröðinni utan við flugvöllinn, umfram hina „grænu leigubílana“.
(Sjá nánar í fréttatilkynningu Swedavia 21. sept. sl).