Nýjungar í rafvæðingu samgangna

EVFimmtíu áhugaverðar nýjungar í rafvæðingu samganga eru kynntar í nýrri skýrslu nýsköpunarsetursins Urban Foresight undir yfirskriftinni EV City Casebook. Skýrslunni er ætlað að vekja athygli á skapandi verkefnum sem þegar eru komin í gang og þykja líkleg til að ryðja brautina fyrir rafvæðingu samgangna. Meðal verkefna sem kynnt eru í skýrsluna má nefna þráðlausa hleðslu rafknúinna strætisvagna í borginni Gumi í Suður-Kóreu, en þar taka vagnarnir hleðslu úr rafsegulsviði sem myndast yfir lögnum á 12 km hluta af akstursleið vagnanna. Einnig er kynnt net rafleigubíla í borginni Hangzhou í Kína þar sem bílstjórar geta skipt tómum rafhlöðum út fyrir fullar í höfuðstöðum leigubílafyrirtækisins.
(Sjá frétt EDIE 3. desember).

Verður hægt að hlaða rafbíl á 5 mínútum?

Leaf_over_creekNý tegund af rafhlöðum gerir það mögulegt að hlaða rafhlöður rafbíla upp í 70% á aðeins tveimur mínútum að mati rannsóknateymis innan Nanyang Tækniháskólans í Singapore, en þau hafa notast við títaníumdíoxíð á nanóformi til að flýta fyrir efnahvörfum í rafhlöðunni. Þessar nýju litíum-grafít rafhlöður endast lengur en hinar hefðbundnu litíumrafhlöður, eða í um 20 ár. Með því að stytta hleðslutímann opnast nýjar leiðir fyrir rafbílaeigendur. Styttri hleðslutími felur í sér aukna drægni, enda eru 5 mínútur sambærilegar þeim tíma sem það tekur að dæla bensíni á bíl. Með lengri endingartíma er einnig dregið úr magni spilliefna. Talið er að hægt verði að hefja framleiðslu á þessum nýju rafhlöðum í stórum stíl innan tveggja ára.
(Sjá frétt Hybrid Cars í dag).

Hleðslustöð á hjólum

26188Hreyfanleg hleðslustöð fyrir rafbíla verður framvegis hluti af þeirri neyðarþjónustu sem fyrirtækið RAC í Bretlandi býður viðskiptavinum sínum. Þjónustubílar fyrirtækisins verða búnir 5 kW hleðslustöð til að hlaða rafbíla sem verða rafmagnslausir á miðri leið. Hálftíma hleðsla dugar fyrir 24 km akstur, sem ætti að koma viðskiptavininum heim eða á næstu hleðslustöð. Ef á þarf að halda er hægt að fylla geyminn á u.þ.b. 4 klst. RAC segir hleðslustöðina vera svar fyrirtækisins við ört stækkandi rafbílaflota Bretlands, en í dag eru rafbílanotendur í Bretlandi rúmlega 9.000 talsins.
(Sjá frétt EDIE í dag).

99.999 Nissan Leaf seldir

Amy Nissan LeafÍ síðustu viku seldist 99.999. rafbíllinn af gerðinni Nissan Leaf. Kaupandinn var Amy Eichenberger, 47 ára arkítekt frá Charlottesville í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Með þessu er ljóst að Nissan Leaf er orðinn söluhæsti rafbíllinn á heimsvísu frá upphafi. Takmörkuð drægni rafbíla veldur mörgum bílakaupendum áhyggjum, en Amy kveðst ekki hafa viljað láta slíkar áhyggjur verða til þess að hún missti af framsýnasta valkostinum á markaðnum, enda dygði bíllinn henni í 98% tilfella.
(Sjá frétt á Hybridcars.com 19. janúar).

Tengiltvinnbíll með sólfangara

Ford solar 200Á bílasýningunni CES2014, sem hefst í Las Vegas í dag, mun bílaframleiðandinn Ford sýna fyrsta tengiltvinnbílinn sem nýtir sólfangara á þaki til að hlaða rafhlöðurnar. Vonir standa til að sólarorkan dugi fyrir allt að 75% af daglegum bílferðum meðalökumanns.
(Sjá frétt Teknisk Ukeblad 4. janúar).

Nissan Leaf söluhæsti bíllinn í Noregi í október

Nissan Leaf NORafbíllinn Nissan Leaf var söluhæsti fólksbíllinn í Noregi í október. Þá seldust 716 slíkir bílar, eða sem nemur 5,6% af allri bílasölu í landinu. Þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem rafbíll er efstur á sölulistanum, en í september var sportbíllinn Tesla S á toppnum með 616 selda bíla. Markaðshlutdeild Nissan Leaf er 3,2% það sem af er árinu og hafa aðeins þrjár bílategundir selst betur. Norðmenn virðast vera í broddi fylkingar í rafbílavæðingunni, en það er m.a. rakið til ríkulegra niðurgreiðslna, niðurfellingar bílastæðagjalda, ókeypis aðgangs að hleðslustöðvum, undanþágu frá vegatollum og aðgangs að strætisvagnaakreinum.
(Sjá frétt Reuters 1. nóvember).

Nissan selur 35000. rafbílinn vestra

Nissan LeafNú hafa 35.000 rafbílar af gerðinni Nissan Leaf selst í Bandaríkjunum. Þessi áfangi náðist í síðustu viku, rétt fyrir „tengladaginn“ (e. National Plug In Day) sem haldinn var hátíðlegur vestanhafs um helgina. Söluaukningin frá fyrra ári er 317%, sem helgast væntanlega m.a. af því að farið var að framleiða bílana í Bandaríkjunum, auk þess sem verðið á þeim lækkaði. Aukin umhverfisvitund er ekki sögð helst ástæða þess að fólk vestra velur Nissan Leaf, heldur hitt hversu ódýr bíllinn er í rekstri, kraftmikill og skemmtilegur í akstri.
(Sjá frétt á HybridCars.com 27. september).

Orka frá rafbílum seld inn á raforkukerfið

BMW i3Síðustu vikur hefur orka frá nokkrum rafbílum verið seld annað slagið inn á raforkukerfið í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Hugmyndin er ekki alveg ný, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem henni er hrint í framkvæmd við raunverulegar aðstæður. Það er orkufyrirtækið NRG Energy sem hefur þróað umrædda tækni (eV2g (Electric vehicles to grid)), í samvinnu við háskólann í Delaware. Þegar fram í sækir standa vonir til að þessi aðferð geti aukið stöðugleika raforkukerfa og gefið eigendum rafbíla möguleika á að verða ýmist kaupendur eða seljendur raforku eftir aðstæðum á markaði á hverju augnabliki.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).

Eistar opna 165 hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla

Electric-car-charging-net-008Öflugt net hleðslustöðva fyrir rafbíla var formlega tekið í notkun í Eistlandi í gær. Um er að ræða 165 hleðslustöðvar þar sem hægt er að hlaða rafbíla með jafnstraumi á innan við hálftíma. Stöðvarnar eru dreifðar um allt landið með 60 km millibili að hámarki, og er Eistland því líklega fyrsta landið í heiminum þar sem hægt er að fara allra sinna ferða á rafbíl. Við opnun netsins sagði Keit Pentus-Rosimannus umhverfisráðherra Eistlands að samgöngustefna landsins ætti að byggjast á því að vistvænar samgöngur væru ódýrasti og einfaldasti kosturinn.
(Sjá frétt The Guardian í gær).

Norðmenn eiga heimsmet í rafbílavæðingu

Rafbílar TUÍ Noregi eru fleiri rafbílar en í nokkru öðru landi heims, miðað við höfðatölu. Heildarfjöldinn er nú kominn yfir 10.000 og í janúar 2013 voru rafbílar 2,9% af öllum nýjum seldum fólksbílum, eða 337 talsins. Markaðshlutdeild rafknúinna vörubíla var enn hærri, eða 3,3%. Tvinnbílum fjölgar einnig ört í Noregi, en 633 slíkir seldust í janúar.
(Sjá frétt í Teknisk Ukeblad 3. febrúar).