Nú hafa 35.000 rafbílar af gerðinni Nissan Leaf selst í Bandaríkjunum. Þessi áfangi náðist í síðustu viku, rétt fyrir „tengladaginn“ (e. National Plug In Day) sem haldinn var hátíðlegur vestanhafs um helgina. Söluaukningin frá fyrra ári er 317%, sem helgast væntanlega m.a. af því að farið var að framleiða bílana í Bandaríkjunum, auk þess sem verðið á þeim lækkaði. Aukin umhverfisvitund er ekki sögð helst ástæða þess að fólk vestra velur Nissan Leaf, heldur hitt hversu ódýr bíllinn er í rekstri, kraftmikill og skemmtilegur í akstri.
(Sjá frétt á HybridCars.com 27. september).
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: september 2013
„Þessi umbreyting er mannanna verk“
„Loftslagsbreytingar eru raunverulegar, þær er að gerast núna, þessi umbreyting er mannanna verk, og aðeins mannanna verk geta bjargað heiminum frá verstu áhrifunum. Þetta er ekki færibandaskýrsla sem við getum hent inn í skjalaskáp. Þetta er ekki pólitískt plagg búið til af pólitíkusum. Þetta eru vísindi“.
(John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í tilefni af kynningu 1. hluta fimmtu ástandsskýrslu Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem fram fór í Stokkhólmi í morgun kl. 8 að íslenskum tíma. (Úr beinni útsendingu The Guardian)).
Fyrstu Svansmerktu hestavörurnar
Nú er í fyrsta sinn hægt að kaupa Svansmerktar hreinlætisvörur fyrir hesta, en fyrr í þessum mánuði fékk fyrirtækið Nathalie Horse Care í Danmörku leyfi til að merkja nokkrar af framleiðsluvörum sínum með Norræna svaninum. Svansmerkið tryggir að vörurnar séu lausar við parabena, ilmefni og önnur efni sem talin eru hormónaraskandi eða geta valdið ofnæmi. Í þessari nýju Svansmerktu vörulínu má m.a. finna hestasjampó af ýmsu tagi, þ.m.t. flösusjampó og sérstakt sjampó fyrir íslenska hesta.
(Sjá frétt á heimasíðu Svansins í Danmörku 5. september).
Sjávarfallavirkjun í Pentlandfirði

Í síðustu viku veitti skoska ríkisstjórnin fyrirtækinu MeyGen Ltd. leyfi til að hleypa af stokkunum stærsta sjávarfallaorkuverkefni í Evrópu í Pentlandfirði milli Orkneyja og meginlands Skotlands. Fyrsta skrefið í verkefninu felst í byggingu 9 MW tilraunavirkjunar, en ætlunin er að virkjunin verði 86 MW þegar upp er staðið. Virkjun af þeirri stærð ætti að geta séð 42.000 heimilum fyrir raforku. Pentlandfjörður er talinn henta einstaklega vel til virkjunar sjávarfallaorku, en menn greinir nokkuð á um raunverulega framleiðslugetu.
(Sjá frétt PlanetArk 17. september).
PFOA bannað í Noregi
Frá og með 1. júní 2014 mega neytendavörur sem seldar eru í Noregi ekki innihalda efnið PFOA (perflúoroktansýru). Með þessu banni ganga norsk stjórnvöld lengra en Evrópusambandið, en rökin eru þau að efnið sé eitrað fyrir þá sem umgangast það oft, krabbameinsvaldandi og dragi úr frjósemi, auk þess sem það brotni mjög hægt niður í náttúrunni. Efnið safnast einnig fyrir í líkömum fólks og hefur m.a. fundist í blóði og móðurmjólk. PFOA getur verið til staðar í ýmsum vörum til daglegra nota. Efnið hrindir frá sér vatni og fitu og hefur m.a. verið notað í málningu, regnfatnað, skíðaáburð og steikarpönnur (teflon).
(Sjá frétt á heimasíðu norska umhverfisráðuneytisins 17. september).
2020 rís á ný
Óvissa hefur ríkt síðustu vikur og mánuði um framtíð umhverfisfróðleikssíðunnar 2020.is. Nú hefur verið ákveðið að halda síðunni úti enn um sinn með daglegum uppfærslum og mun fyrsti umhverfisfróðleiksmoli haustsins birtast á morgun, þriðjudaginn 24. september.