Lífræn framleiðsla er í mikilli sókn í Rússlandi þessi misserin, m.a. vegna aukinnar eftirspurnar heilsumeðvitaðra neytenda í Moskvu og St.Pétursborg. Bændum í lífrænni ræktun fjölgar og búin stækka. Fram til þessa hafa engar samræmdar reglur gilt um þessa framleiðslu í Rússlandi, en nú hafa þarlend stjórnvöld boðað að frá og með árinu 2015 geti lífrænir framleiðendur fengið afurðir sínar vottaðar, auk þess sem að þá verði tekinn upp sérstakur stuðningur við lífræna framleiðslu.
(Sjá frétt Organic News 8. maí).
Greinasafn fyrir flokkinn: Lífræn framleiðsla
Lífrænar vörur í mikilli sókn í Noregi
Í Noregi jókst sala á lífrænt vottuðum vörum um rúm 17% á árinu 2012 og nam samtals 1,5 milljörðum norskra króna (um 32 milljörðum ísl. kr). Mest var söluaukningin í lífrænum barnamat. Þar jókst salan um tæp 32% milli ára, en um 23% af öllum barnamat sem seldur er í Noregi er nú með lífræna vottun. Lífrænt vottaðar mjólkurvörur eru hins vegar sá vöruflokkur þar sem heildarsalan er mest. Samkvæmt útreikningum Landbúnaðarstofnunar Noregs (SLF) þarf þó að gera enn betur til að ná markmiði ríkisstjórnarinnar um 15% hlutdeild lífrænt vottaðra matvæla árið 2020. Miðað við svipaða aukningu næstu ár verður þetta hlutfall aðeins á bilinu 4-9%.
(Sjá fréttatilkynningu Landbúnaðarstofnunar Noregs 21. mars).
Sala á lífrænum vörum hefur þrefaldast á 10 árum
Árið 2011 seldust lífrænt vottaðar vörur í heiminum öllum fyrir tæplega 63 milljarða dollara (um 8.000 milljarða ísl. kr.) sem var um 6,6% aukning frá árinu áður. Salan hefur þá u.þ.b. þrefaldast á síðustu 10 árum. Hvergi er markaðshlutdeild lífrænnar matvöru hærri en í Danmörku, en þar voru lífrænar vörur 7,6% af heildinni árið 2011. Útflutningur Dana á lífrænt vottuðum vörum vex sömuleiðis mjög hratt. Þannig var útflutningsverðmætið árið 2011 21% hærra en árið áður. Vaxandi eftirspurn á heimsmarkaði er talin fela í sér einstök tækifæri fyrir Dani hvað þetta varðar.
(Sjá frétt á økologi.dk 12. febrúar).
Sænsk sveitarfélög kaupa meira lífrænt
Í Svíþjóð jukust innkaup opinberra aðila á lífrænum matvælum um 18% á síðasta ári og námu samtals um 1,6 milljarði sænskra króna (um 32 milljörðum ísl. kr). Þessi aukning er sögð vera afleiðing af markvissri innkaupastefnu sveitarfélaga og landsþinga. Alls seldust lífræn matvæli fyrir 9,5 milljarða króna (190 millj. ísl. kr), sem var 3% aukning frá árinu á undan.
(Sjá frétt Miljöaktuellt 1. febrúar).
65% af almenningssamgöngum Stokkhólms án jarðefnaeldsneytis
Stokkhólmslén er það svæði í Svíþjóð þar sem mestur árangur hefur náðst í notkun endurnýjanlegs eldsneytis í almenningssamgöngum, en þar var hlutfall slíks eldsneytis komið í 65% árið 2011. Örebrolén var hins vegar fremst í flokki hvað varðar innkaup á lífrænum matvælum, en árið 2011 voru 35,4% af matarinnkaupum lénsins með lífræna vottun. Fimm önnur svæði höfðu þá náð markmiði sænska ríkisins um 25% hlutdeild lífrænna matvæla í opinberum innkaupum. Þessar tölur og margar fleiri koma fram í skýrslunni Miljönyckeltal för landsting och regioner 2012 sem kom út í vikunni.
(Sjá skýrsluna Miljönyckeltal för landsting och regioner 2012).
Verður Bútan fyrsta lífræna landið?
Stjórnvöld í Bútan stefna að því að öll matvælaframleiðsla í landinu verði lífræn innan 10 ára. Landið yrði þá væntanlega það fyrsta í heiminum til að ná þessu markmiði. Bútan hefur farið sínar eigin leiðir á ýmsum sviðum og verið uppspretta hugmynda fyrir aðrar þjóðir. Þar er verg þjóðarhamingja (e. Gross National Happiness (GNH)) t.d. notuð sem mælikvarði í stað vergrar landsframleiðslu (e. Gross Domestic Production (GDP)).
(Sjá nánar í frétt AFP 3. október).
Lífræn merking á matsölustöðum
Matsölustaðir í Noregi geta nú fengið sérstök merki til að sýna hversu mikið af hráefnum þeirra er lífrænt vottað. Til að fá gullmerki þurfa a.m.k. 90% af matnum sem keyptur er inn að vera með lífræna vottun. Silfurmerki fæst ef hlutfallið er a.m.k. 50% og bronsmerki við 15%. Merkingin er liður í að efla markað fyrir lífrænar vörur, en norsk stjórnvöld hafa sett sér það markmið að árið 2020 verði hlutfall lífrænna matvæla í Noregi komið í15%, bæði í framleiðslu og neyslu.
(Sjá nánar í frétt á heimasíðu Debio 19. sept. sl).
Vaxandi sala á lífrænum vörum
Sala á lífrænum vörum í norskum verslunum jókst um tæp 11% á fyrri helmingi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra, þrátt fyrir litla sem enga aukningu á innanlandsframleiðslu. Heildarsalan á þessu tímabili var 555 milljónir norskra króna (tæpir 12 milljarðar ísl. kr). Mestur var vöxturinn í sölu á eggjum og barnamat, eða um 30%. Mjólkurvörur eru hins vegar langstærsti vöruflokkurinn á þessum markaði, en þar jókst salan milli ára um 5,7%. Gert er ráð fyrir áframhaldandi söluaukningu á síðari hluta ársins.
(Sjá nánar í fréttatilkynningu Landbúnaðarstofnunar Noregs í gær).