Plastagnir menga

PlastagnirPlastagnir úr ólíklegustu vörum geta borist út í umhverfið með fráveituvatni. Slíkar agnir slitna m.a. úr fötum úr gerviefnum við þvott, en þær getur einnig verið að finna t.d. í „skrúbbkremi“ og tannkremi. Í nýlegri athugun neytendaþáttarins Kontant í danska ríkissjónvarpinu fannst m.a. „skrúbbkrem“ sem var að 1/10 gert úr pólýetýlenkornum. Plastagnir brotna afar seint niður í náttúrunni og við þær loða oft skaðleg efnasambönd, annað hvort úr plastinu sjálfu eða utanaðkomandi. Langtímaáhrif plastagna í umhverfinu eru fremur lítið þekkt, en minnstu agnirnar geta hugsanlega borist inn í frumur lífvera.
(Sjá frétt á forbrugerkemi.dk 15. maí).

Vaxandi rusl á breskum fjörum

Cigarette-butts-ends-left-009Rusl á breskum fjörum jókst um 12% milli áranna 2011 og 2012, mælt í fjölda hluta á hvern kílómetra strandlengjunnar. Mest varð aukningin á rusli frá reykingamönnum. Þannig fjölgaði kveikjurum og sígarettupökkum um 90% á milli ára og fjöldi sígarettufiltera tvöfaldaðist. Á einni helgi í september í fyrra fylltu sjálfboðaliðar 1.800 sorpsekki með rusli á 90 km strandlengju, og reyndust um 65% af ruslinu vera plast af einhverju tagi. Þetta veldur sérstökum áhyggjum, þar sem plastið brotnar seint eða ekki niður í náttúrunni. Svo virðist sem áratugalöng viðleitni til að bæta umgengni fólks hafi ekki skilað miklum árangri.
(Sjá frétt The Guardian í gær).

Japanskt frauðplast á fjörum Alaska

FrauðplastGríðarlegt magn af japönsku frauðplasti hefur rekið á fjörur Alaska síðustu mánuði. Þetta er ein af afleiðingum jarðskjálftans mikla í Japan í mars 2011 og flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfarið. Plastið er m.a. úr einangrun húsa sem skemmdust í hamförunum og úr flotholtum á sjó. Plastið hefur nú náð að berast þvert yfir Kyrrahafið og er víða að finna á vesturströnd Bandaríkjanna. Erfiðast verður þó að hreinsa strendur Alaska, þar sem svæðið er afskekkt og strandlínan löng. Umhverfisverndarsinnar hafa áhyggjur af áhrifum plastsins á dýralíf, en frauðplast brotnar seint eða aldrei niður í náttúrunni og getur m.a. valdið köfnun og stíflað meltingarvegi dýra.
(Sjá frétt PlanetArk 31. janúar).

Sífellt meira plastrusl á botni Norður-Íshafsins

Issue 313Mikið magn af rusli, aðallega plastrusli, hefur safnast upp á botni Norður-Íshafsins á síðustu 10 árum. Þannig tvöfaldaðist magnið, mælt í stykkjatali, milli áranna 2002 og 2011, þ.e. úr 3.635 í 7.710 stykki á ferkílómetra. Þessar niðurstöður, sem birtust í vísindagrein í tímaritinu Marine Pollution Bulletin fyrir áramót, byggja á neðansjávarmyndum sem teknar voru vestur af Svalbarða. Plastið hefur margvísleg áhrif á lífríkið, svo sem með því að breyta efnasamsetningu við botninn, loka fyrir aðgang súrefnis og búa til skilyrði fyrir framandi lífverur, auk beinna eituráhrifa, köfnunarhættu o.s.frv. Áætlað er að um 10% af árlegri plastframleiðslu í heiminum endi í sjónum, líklega samtals um 27 milljónir tonna.
(Sjá frétt í Sience for Environment Policy, fréttabréfi Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um umhverfismál, í gær).