Vefsíðan 2020.is óskar lesendum sínum gleðilegra jóla, þakkar þeim samfylgdina á árinu og óskar þeim og afkomendum þeirra friðar og farsældar. Eins og lesendur hafa tekið eftir hefur nær engin virkni verið á síðunni síðustu tvo mánuði. Þetta stafar af annríki ritstjóra við önnur verk, sem hafa forgang þegar á reynir. Þetta ástand mun vara í það minnsta út janúar. Beðist er velvirðingar á þeim tómleika sem þetta kann að valda.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: desember 2016
Skilagjaldskerfi fyrir plastpoka
Sænski frumkvöðullinn Suwar Mert hefur stofnað sprotafyrirtækið Pantapåsen sem starfrækja mun skilagjaldskerfi fyrir plastpoka. Kerfið á að virka þannig að verslanir leggi skilagjald á poka sem viðskiptavinir kaupa og að gjaldið fáist endurgreitt þegar pokanum er skilað, annað hvort í reiðufé, sem greiðsla inn á nýja vöru eða inn á smáforrit (app) í snjallsíma. Í framhaldinu verði einnig hægt að innleysa poka í sjálfvirkum stöðvum í matvöruverslunum o.þ.h. Suwar vonast til að sem flestar verslanir gerist aðilar að kerfinu, en viðbrögðin eiga eftir að koma í ljós. Tekjur fyrirtækisins eiga að koma frá sölu auglýsinga á annars ómerkta poka og frá sölu á plastinu sem safnast til endurvinnslu. Síðar á smáforritið einnig að skapa tekjur.
(Sjá frétt á Breakit.se 6. desember).
Fleiri reiðhjól en bílar á götum Kaupmannahafnar
Í nóvember voru reiðhjól á götum Kaupmannahafnar í fyrsta sinn fleiri en bílarnir. Samkvæmt umferðartalningu fóru að meðaltali 265.700 hjól um miðborgina á hverjum degi mánaðarins en aðeins 252.600 bílar. Á einu ári hefur hjólaumferð í borginni aukist um 15% á sama tíma og bílaumferð hefur dregist saman um 1%. Forsvarsmenn borgarinnar telja að þessa þróun megi fyrst og fremst rekja til markvissrar stefnumótunar og mikilla fjárfestinga í innviðum fyrir umferð reiðhjóla.
(Sjá frétt The Guardian 30. nóvember).