Vísindamenn við Berkeley-háskólann í Kaliforníu hafa þróað „næstu kynslóð“ af plasti sem hægt er að endurvinna aftur og aftur án þess að gæðin minnki. Þetta nýja plast, polýdíketóenamín (PDK) hefur þann eiginleika að hægt er að brjóta það niður í grunnsameindir (einliður (e. monomers)) í sterkri sýrulausn sem rýfur jafnframt efnatengi sem binda íblöndunarefni (litarefni, mýkingarefni o.s.frv.) við plastið. Eftir standa þá hreinar einliður sem hægt er að raða saman í nýtt PDK-plast sem er jafngott og það upphaflega og sem hægt er að gefa ákjósanlega eiginleika með nýjum íblöndunarefnum.
(Sjá frétt Waste Management World 17. september).
Greinasafn fyrir merki: fjölliður
Ósýnileg, útfjólublá strikamerki til að flokka plastúrgang
Bresk rannsókn á möguleikum þess að nýta flúrmerki á plastvörur til að einfalda flokkun plastúrgangs fékk nýlega 770.000 punda framhaldsstyrk (um 140 milljónir ísl. kr.) frá breskum stjórnvöldum og fleiri aðilum. Verkefnið miðar að því að þróa flúrefni úr málmoxíði og púðri úr gömlum flúrperum, sem hægt er að nota í eins konar „ósýnileg strikamerki“ sem notuð verða á plastvörur. Ef verkefnið heppnast verður hægt að flokka plastfjölliður á einfaldan, ódýran og fljótlegan hátt í flestum flokkunarstöðvum fyrir úrgang og auka þannig verulega efnisendurvinnslu á plasti. Fyrstu tilraunir með merkin gáfu allt að 97% flokkunarhlutfall sem skilaði um 95% hreinleika. Flokkun plasts er nokkuð flókin þar sem mikið er um samsett efni auk þess sem ógerlegt er að greina milli mismunandi fjölliða á einfaldan hátt. Hin nýja tækni er þróuð þannig að hægt verði að bæta henni við innrauða flokkunartækni sem er nú þegar víða notuð í flokkunarstöðvum. Þar með lækkar stofnkostnaðurinn.
Sjá frétt Recycling International í dag).