Breska verslunarkeðjan Waitrose áformar að taka þriðja orkuver keðjunnar í notkun á næsta ári. Þetta orkuver verður ólíkt þeim tveimur fyrri að því leyti að hráefni verður eingöngu sótt í eigin úrgang keðjunnar, svo sem vörubretti og steikingarfeiti. Einnig verður notað timbur sem til fellur við niðurrif ónýtra rúma sem vipskiptavinir skila inn til verslananna. Bómull og önnur verðmæt efni úr rúmunum eru hins vegar nýtt í nýja framleiðslu. Hið nýja orkuver er liður í að gera verslunarkeðjuna sjálfa sér nóga með orku og ná markmiði um 15% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2021.
(Sjá nánar í frétt EDIE í gær).
Greinasafn fyrir flokkinn: Orka
Kínverjar setja 39.000.000.000.000 kr. í orkusparnað
Kínversk stjórnvöld kynntu á dögunum þá fyrirætlan sína að setja jafnvirði 372 milljarða bandaríkjadala (um 39 þús. milljarða ísl. kr.) í verkefni til að bæta orkunýtingu í landinu. Þetta er liður í áætlun Kínverja um að minnka orkunotkun á hverja framleiðslueiningu í iðnaði um 21% milli áranna 2010 og 2015 og að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á hverja einingu í landsframleiðslu um 40-45% milli áranna 2005 og 2020. Hvað sem þessum áformum líður jókst heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í Kína um 9% á síðasta ári og nemur nú 29% af losun á heimsvísu.
(Sjá nánar í frétt PlanetArk 23. ágúst sl).
Fyrstu vetnisstrætóarnir í Skotlandi 2014
Fyrstu vetnisstrætisvagnarnir í Skotlandi koma á götuna í Aberdeen snemma árs 2014, en þá verða gangsettir þar 10 vagnar sem eru hluti af vetnisverkefni skoskra stjórnvalda. Vetnið á vagnana verður framleitt með rafmagni frá nærliggjandi vindmyllum. Tilkoma vagnanna er talin styrkja ímynd Aberdeenborgar sem frumkvöðuls á sviði grænnar orku, en nú þegar er litið á borgina sem höfuðborg sjávarorkunýtingar í Evrópu.
(Sjá nánar í frétt EDIE 23. ágúst sl).