Franska sprotafyrirtækið Ynsect vinnur að því að þróa fóður úr skordýramjöli, sem hugsanlega gæti komið í stað próteingjafa á borð við fiskimjöl, sojamjöl og kjötmjöl. Svarta hermannaflugan, húsflugulirfur, silkiormar og gulir mjölormar þykja hvað vænlegust sem hráefni í þessa framleiðslu. Skordýrin verða ræktuð á staðnum og síðan unnin í áfastri skordýramjölsverksmiðju, og standa vonir til að fyrsti hluti þessarar aðstöðu verði tilbúinn innan tveggja ára. Skordýrin eru auðveld í ræktun og hægt að ala þau á nánast hvaða lífræna úrgangi sem er. Skeljar og aðrar aukaafurðir frá vinnslunni geta nýst m.a. í lyfja- og snyrtivöruiðnaði, og skordýraskítur er ákjósanlegur áburður. Tilraunir benda til að hægt sé að nota engisprettumjöl til helminga á móti fiskimjöli sem fóður í fiskeldi án þess að það komi niður á árangri. Enn er ekki leyfilegt að nota skordýramjöl sem fóður í svínarækt og kjúklingaeldi innan ESB, en hugsanlegt er að slíkt leyfi fáist frá og með 2014.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: júní 2013
Illgresiseyðir í þvagi Evrópubúa
Leifar af plöntueitrinu glyphosate fundust í þvagi 44% sjálfboðaliða sem tóku þátt í nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir samtökin Friends of the Earth Europe og náði til 18 Evrópulanda. Niðurstöðurnar voru nokkuð mismunandi eftir löndum. Þannig var hlutfall einstaklinga með glyphosate í þvagi hæst á Möltu eða 90%, en lægst í Búlgaríu og Makedóníu, 10%. Ekki er vitað hvernig glyphosate barst í líkama þátttakenda, en efnið er víða notað sem illgresiseyðir í landbúnaði, á opnum svæðum og í húsagörðum, oftast undir vörumerkinu Roundup.
(Sjá frétt á heimasíðu Global Research 13. júní).
Hollráð fyrir eldhúsið
Danska upplýsingamiðstöðin um umhverfi og heilsu hefur tekið saman nokkur góð ráð til að hjálpa fólki að forðast varasöm efni sem kunna að leynast í eldhúsáhöldum og berast í matvæli ef ekki er farið að öllu með gát. Fyrsta og einfaldasta ráðið er að nota áhöld eingöngu til þess sem þau eru ætluð til. Þeir sem eru læsir á dönsku geta nálgast öll þessi góðu ráð á heimasíðu upplýsingamiðstöðvarinnar. Þar má finna ráð um potta, pönnur, form, matarumbúðir, mataráhöld, nestisbox og drykkjarbrúsa, svo eitthvað sé nefnt.
(Sjá frétt á forbrugerkemi.dk. 8. júní).
Hlé á útgáfu 2020
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir hefur 2020.is legið í dvala um nokkurt skeið. Viðhald vefsíðunnar er frístundaverkefni höfundar og verður því stundum að víkja þegar annríki er mikið í vinnu eða samkeppni mikil um frístundir. Hvort tveggja hefur gilt undanfarnar vikur. Vonir standa til að eitthvert lífsmark verði með síðunni næstu 2-3 vikur, en síðan tekur sumarleyfi við. Nánar verður greint frá þessu síðar.