Á dögunum fundust tvö hreiður freigátufugla á Ascension-eyjunni í sunnanverðu Atlantshafi, en u.þ.b. 150 ár eru liðin síðan villikettir útrýmdu síðustu ungum tegundarinnar á eyjunni. Freigátufuglar eru í hópu sjaldgæfustu sjófugla heims og því þykja þetta mikil tíðindi. Endurkoma fuglanna er árangur margra ára átaks til að útrýma villiköttum á Ascension. Köttunum var upphaflega sleppt á eyjunni í kringum aldamótin 1800 til að koma í veg fyrir að rottur fjölguðu sér óhóflega. Rotturnar höfðu borist þangað vegna gáleysis manna og voru farnar að ógna fuglastofnum. Raunin varð sú að kettirnir gengu í lið með rottunum í ungaátinu og síðan þá hafa fuglar átt mjög undir högg að sækja á þessum slóðum.
(Sjá frétt The Guardian 8. desember).
Greinasafn fyrir flokkinn: Vistkerfi
Varasöm efni í tannkremi fyrir börn
Í nýlegri danskri rannsókn reyndist aðeins ein af 15 tegundum tannkrems fyrir börn laus við efni sem geta verið skaðleg umhverfi eða heilsu. Eina tegundin sem stóðst prófið var Viofluor barnatannkrem með jarðarberjabragði. Þrettán tegundir innihéldu efni sem geta verið skaðleg fyrir vatnalífverur og í fjórum tegundum fundust efni sem talin eru geta valdið heilsutjóni. Ekkert kom fram sem benti til að tannkrem fyrir börn innihéldi minna af varasömum efnum en tannkrem fyrir fullorðna. Þeir sem stóðu að rannsókninni mæla með því að tennur barna sé burstaðar með Svansmerktu tannkremi, en ekkert barnatannkrem hefur enn fengið slíka vottun.
(Sjá frétt forbrugerkemi.dk 19. október).
Botnskröpun jafnvel enn skaðlegri en talið var
Niðurstöður nýrrar spænskrar rannsóknar, sem sagt var frá á heimasíðu Nature í gær, benda til að veiðar með botnvörpu spilli landslagi og lífríki sjávarbotnsins jafnvel enn meira en áður var talið. Veiðarfærin jafni út ójöfnur á yfirborðinu, þyrli upp setlögum og færi þau til, raski eða útrými botnlífverum á svæðinu, blandi mengandi efnum saman við plöntu- og dýrasvif og þannig inn í fæðukeðjuna og stuðli að skaðlegum þörungavexti og súrefnisþurrð.
(Sjá nánar í frétt PlanetArk í dag).