Breska verslunarkeðjan Sainsbury’s opnaði á dögunum nýja verslun í Leicester, sem er sérstök að því leyti að engum úrgangi þaðan er fargað, auk þess sem reksturinn er kolefnishlutlaus og ekkert vatn er notað umfram það sem þegar var til staðar í vatnsveitu svæðisins. Meðal þess sem gert er til að ná þessum árangri má nefna, að í staðinn fyrir gas sem verslunin kaupir úr dreifikerfi svæðisins er sama magni af lífgasi bætt inn í kerfið frá metangasveri keðjunnar, auk þess sem um 70% af venjulegri vatnsþörf er mætt með regnvatni og vatnssparandi aðgerðum en þeim 30% sem á vantar með því að kosta sparnaðaraðgerðir hjá öðrum notendum vatnsveitunnar. Allir matarafgangar sem hæfir eru til manneldis eru gefnir hjálparsamtökum en annað nýtt í fóðurframleiðslu eða í einstaka tilvikum í gasgerð.
(Sjá frétt EDIE í dag).