Eingöngu díóðuljós í IKEA 2016

Frá og með árinu 2016 munu hvorki glóperur né sparperur fást í verslunum IKEA, heldur eingöngu díóðuljós (e. light-emitting diodes (LED)). Með þessu gengur IKEA lengra en gerð er krafa um, en sem kunnugt er hefur innflutningur á glóperum af tilteknum styrkleika verið bannaður í löndum ESB. Díóðuljós eru enn talsvert dýrari en glóperur og sparperur, en þau eiga að geta enst í u.þ.b. 20 ár, þurfa mjög litla orku miðað við ljósmagn og innihalda ekki kvikasilfur. Líklegt má telja að ákvörðun IKEA flýti fyrir því að díóðuljós verði fáanleg í góðu úrvali og á viðráðanlegu verði, umhverfi og efnahag til hagsbóta.
(Sjá nánar í fréttatilkynningu IKEA í Svíþjóð 1. október).

Vindaflið komið í 100 GW

Framleiðslugeta vindorkustöðva í löndum ESB fór á dögunum yfir 100 gígavatta (GW) markið. Þetta samsvarar afli 39 kjarnorkuvera og dugar til að fullnægja raforkuþörf 57 milljóna heimila. Til samanburðar má nefna að samanlagt afl allra virkjana á Íslandi er innan við 3 GW. Þróunin í virkjun vindorku hefur verið mjög hröð. Þannig tók um 20 ár að komast upp í 10 GW, en aðeins 13 ár að bæta 90 GW við. Helmingurinn af þessum 100 GW var settur upp á síðustu 6 árum.
(Sjá nánar í frétt á heimasíðu European Wind Energy Association (EWEA) 27. september).

Tveir jafngrænir bílar

Volkswagen Passat TSI Ecofuel og tengiltvinnbíllinn Volvo V60 urðu efstir og jafnir í vali samtakanna Gröna bilister í Svíþjóð á umhverfisvænsta (s. miljöbästa) bílnum 2013. Samtökin hafa valið grænasta bílinn á hverju ári frá 1994, en þetta er í fyrsta sinn sem tveir bílar deila með sér toppsætinu. Samtals voru 43 bílar tilnefndir að þessu sinni. Valið var í höndum fjögurra dómnefnda. Ein var skipuð barnafjölskyldum, önnur fólki 65 ára og eldra, sú þriðja bílablaðamönnum og sú fjórða umhverfisstjórum. Til að vera með í valinu þurfa bílar að uppfylla skilgreiningu stjórnvalda á visthæfum bílum, vera með hæstu einkunn í öryggisprófunum (Euro NCAP) og vera tilbúnir til afgreiðslu 1. janúar 2013. Listi Gröna bilister er sagður hafa mikil áhrif á bílasölu, bæði í Svíþjóð og í öðrum löndum.
(Sjá nánar á heimasíðu Gröna bilister 28. september).