Matsfyrirtæki þurfa að reikna með ástandi auðlinda

Lánshæfismat þjóða kann að vera ofreiknað í mörgum tilvikum, þar sem matsfyrirtæki taka ekki tillit til ástands náttúruauðlinda í útreikningum sínum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu undir yfirskriftinni „E-RISC: A New Angle on Sovereign Credit Risk“, sem Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) kynnti í gær. Í skýrslunni eru sett fram fyrstu drög að svonefndri E-RISC aðferðafræði sem gæti orðið grunnur að breyttum útreikningum matsfyrirtækja. Í þessari nýju aðferðafræði er m.a. tekið tillit til vistspors viðkomandi þjóðar (e. Ecological Footprint) í samanburði við líffræðilega getu landsins (e. biocapacity).
(Sjá frétt á heimasíðu UNEP í gær).

Óábyrg efnanotkun ógnar heilsu manna

Brýnt er að grípa til aðgerða til að draga úr þeirri hættu sem heilsu manna stafar af gáleysislegri efnanotkun. Þessi hætta fer jafnvel vaxandi eftir því sem framleiðsla, notkun og förgun slíkra efna færist í auknum mæli frá Vesturlöndum til þróunarlandanna. Þannig er áætlað að árlegur kostnaður vegna eitrana af völdum varnarefna í Afríku sunnan Sahara sé orðinn hærri en sem nemur öllum framlögum Vesturlanda til úrbóta í heilbrigðismálum svæðisins að frátöldum framlögum vegna HIV. Með bættri stjórnun þessara mála mætti draga verulega úr kostnaði, bæta lífsskilyrði fólks, vernda vistkerfi, draga úr mengun og stuðla að grænni tækniþróun. Allt þetta og margt fleira kemur fram í skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP), Global Chemicals Outlook, sem birt var sl. miðvikudag.
(Sjá frétt á heimasíðu UNEP 5. september sl).