Spáð, snætt og sparað

ThinkEatSaveÍ fyrradag hleyptu stofnanir Sameinuðu þjóðanna af stokkunum nýju átaki til að draga úr sóun matvæla. Átakið, sem hefur yfirskriftina „Think.Eat.Save“, beinist fyrst og fremst að neytendum, smásölu og veitingastöðum, en í þessum síðustu þrepum matvælakeðjunnar er áætlað að árlega sé hent um 300 milljónum tonna af ætum mat, m.a. vegna þröngrar túlkunar dagstimpla, útlitskrafna og of stórra skammta. Liður í átakinu er að halda úti upplýsingagáttinni www.thinkeatsave.org með yfirliti yfir stöðu mála og helstu verkefni sem í gangi eru á hverjum tíma til að draga úr sóun matvæla. Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunin (FAO) standa fyrir átakinu í samvinnu við fleiri aðila. Að mati FAO tapast að jafnaði um þriðjungur allra matvæla sem framleidd eru í heiminum, árlega að verðmæti um 1 billjón Bandaríkjadala (um 130 þúsund milljarðar ísl. kr).
(Sjá frétt á heimasíðu UNEP 22. janúar).

Brýnt að draga úr sóun matvæla

23758Rannsóknir benda til að sóun matvæla eigi stóran þátt í hækkun matvælaverðs, minnkandi fæðuöryggi og loftslagsbreytingum. Sérfræðingar spá nú 15% hækkun matvælaverðs á heimsmarkaði fram í júní á næsta ári, en slík hækkun gæti haft verulegar pólitískar og félagslegar afleiðingar. Þetta verður þriðja „verðbólguskotið“ á matvælamarkaðnum á 5 árum, og má einkum skýra það með uppskerubresti í Bandaríkjunum, Rússlandi og Suður-Ameríku. Ljóst þykir að vandinn verði ekki leystur með aukinni framleiðslu, hvorki í lengd né bráð, heldur sé bætt nýting í matvælakeðjunni algjört lykilatriði til að tryggja nægjanlegt framboð og halda verðhækkunum í skefjum.
(Sjá frétt EDIE í gær).

Reynt að minnka sóun á írskum veitingastöðum

Írskir veitingastaðir leita nú leiða til að draga úr sóun matvæla, en árlega er þar hent mat fyrir um 125 milljónir sterlingspunda (um 25 milljarða ísl. kr). Lög sem tóku gildi fyrir tveimur árum og gera veitingastöðum skylt að skilja matarúrgang frá öðrum úrgangi, hafa beint sjónum manna að vandamálinu en ekki dugað til að draga verulega úr sóuninni. Í nýlegri skýrslu kemur fram að stærstur hluti úrgangsins, um 65%, séu matarleifar af diskum gesta, en úrgangur frá matreiðslunni kemur þar næst á eftir. Skilvirkasta aðferðin til að draga úr þessari sóun er að minnka skammtana.
(Sjá frétt EDIE í gær).