Í gær gekk hergagnaframleiðandann Lockheed Martin frá samningi um byggingu 10 MW orkuvers undan ströndum Kína, þar sem rafmagn verður framleitt með svonefndri hafsvarmaskiptatækni (e. Ocean Thermal Energy Conversion (OTEC)). Undirbúningur að þessu hefur staðið frá því í apríl, en orkuverið verður það stærsta sinnar tegundar í heiminum og hið fyrsta sem nýtir OTEC-tæknina á viðskiptalegum forsendum. Vonir standa til að innan 5 ára verði hægt að hefjast handa við byggingu mun hagkvæmara 100 MW OTEC-orkuvers á grunni reynslunnar sem fæst í þessu verkefni. OTEC-tæknin byggir á því að nýta hitamun djúpsjávar og uppsjávar með ammoníak sem vinnslumiðil sem jafnframt er látinn drífa gufuhverflarafal. Hafsvæði u.þ.b. 80 landa nálægt miðbaug hafa hitastig sem gerir þetta mögulegt.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
Greinasafn fyrir merki: Kína
Fyrsta „alvöru“ OTEC-orkuverið
Hergagnaframleiðandinn Lockheed Martin áformar að reisa 10 MW orkuver undan ströndum Kína, þar sem rafmagn verður framleitt með svonefndri hafsvarmaskiptatækni (e. Ocean Thermal Energy Conversion (OTEC)). Aðferðin hefur verið þekkt í 130 ár, en þetta verður fyrsta OTEC-orkuverið í heiminum, sem kemst nálægt því að nýta þessa tækni með hagkvæmum hætti. Orkan frá verinu ætti að geta dugað nokkur þúsund heimilum, og í framhaldinu eygja menn möguleika á að byggja sambærileg orkuver með uppsett afl allt að 100 MW. Tæknin byggir á því að nýta hitamun djúpsjávar og uppsjávar með ammoníak sem vinnslumiðil sem jafnframt er látinn drífa gufuhverflarafal.
(Sjá frétt PlanetArk í dag).
Kínverjar setja 39.000.000.000.000 kr. í orkusparnað
Kínversk stjórnvöld kynntu á dögunum þá fyrirætlan sína að setja jafnvirði 372 milljarða bandaríkjadala (um 39 þús. milljarða ísl. kr.) í verkefni til að bæta orkunýtingu í landinu. Þetta er liður í áætlun Kínverja um að minnka orkunotkun á hverja framleiðslueiningu í iðnaði um 21% milli áranna 2010 og 2015 og að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á hverja einingu í landsframleiðslu um 40-45% milli áranna 2005 og 2020. Hvað sem þessum áformum líður jókst heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í Kína um 9% á síðasta ári og nemur nú 29% af losun á heimsvísu.
(Sjá nánar í frétt PlanetArk 23. ágúst sl).