Dregið úr varnarefnanotkun í Danmörku

Ida Auken umhverfisráðherra Danmerkur kynnti í vikunni nýja varnaefnaáætlun dönsku ríkisstjórnarinnar undir yfirskriftinni Beskyt vand, natur og sundhed. Þar er gert ráð fyrir hröðum samdrætti í notkun varnarefna, en markmiðið er að ná fram 40% samdrætti fyrir árslok 2015. Ætlunin er að verja 253 milljónum danskra króna (rúmum 5,5 milljörðum ísl. kr.) til að ná þessu markmiði. Mikilvægur liður í áætluninni er nýtt varnarefnagjald, sem gerir það að verkum að skaðminni efni verða hlutfallslega ódýrari í innkaupum.
(Sjá frétt á heimasíðu Miljøstyrelsen 20. nóvember).

Dönsk fyrirtæki fá aðstoð á grænu brautinni

Sett hefur verið upp nýtt vefsvæði, www.Green21.dk, sem ætlað er að aðstoða dönsk fyrirtæki við að styrkja samkeppnisfærni sína á grænum markaði. Á vefsvæðinu er m.a. að finna ráðleggingar um vistvæna hönnun og hvað þurfi til að fá umhverfismerki á framleiðsluna. Vefsvæðið er samstarfsverkefni Umhverfisráðuneytis Danmerkur, Álaborgarháskóla, Dansk Industri og Umhverfis- og þróunarsamtakanna Green Cross Denmark.
(Sjá frétt á heimasíðu danska umhverfisráðuneytisins 7. nóvember).

Bifenox bannað í Danmörku eftir fjögurra ára notkun

Dönsk stjórnvöld hafa bannað sölu á varnarefnum sem innihalda virka efnið bifenox frá og með 1. nóvember nk. Jafnframt verður notkun slíkra efna bönnuð í dönskum landbúnaði frá og með 1. júní 2013. Bannið byggir á mælingum sem sýna að bifenox getur mengað grunnvatnið. Bifenox var upphaflega leyft í Danmörku í maí 2008 með vísun í athuganir framleiðandans, sem sýndu að ekki væri hætta á mengun grunnvatns.
(Sjá nánar í septemberhefti Miljønyt).