Daimler fjárfestir í vetnisstöðvum

MB B FÞýski bílaframleiðandinn Daimler ætlar á næstu 10 árum að byggja áfyllingarstöðvar fyrir vetnisbíla fyrir um 350 milljónir evra (um 57 milljarða ísl. kr.) í samvinnu við fimm olíu- og gasfélög. Markmiðið er að á árinu 2023 verði vetnisstöðvar við þýskar hraðbrautir orðnar fleiri en hefðbundnar bensínstöðvar. Nú eru 15 vetnisstöðvar í Þýskalandi, á næstu 4 árum eiga þær að vera orðnar 100 talsins og 400 innan 10 ára. Vegalengd á milli stöðva ætti þá ekki að vera meiri en 90 km.
(Sjá frétt PlanetArk í gær).

Innviðir fyrir vetni byggðir upp í London

Vetnisstöð EDIEÁ næstu þremur árum verður fyrsta samhæfða vetniskerfi Bretlands byggt upp í London. Miðpunkturinn í kerfinu verða nokkrar áfyllingarstöðvar fyrir vetnisbíla, þar sem vetni af endurnýjanlegum uppruna verður afgreitt með 700 bara þrýstingi. Jafnframt verða eldri stöðvar uppfærðar í 700 bör til að mæta fyrirsjáanlegri þróun vetnisbíla. Uppbygging kerfisins er samstarf nokkurra aðila, en verkefnið gengur undir nafninu London Hydrogen Network Expansion (LHNE). Í verkefninu felst einnig útvegun vetnisbíla, m.a. fólksbíla af Hyundai-gerð og Revolve sendibíla. Með tilkomu kerfisins verða vetnisknúnir flutningar að raunhæfum möguleika í London. Aðstandendur verkefnisins vonast til að það nýtist sem sýnidæmi og fyrirmynd annarra vetniskerfa sem byggð verða upp í Bretlandi og annars staðar í Evrópu í framtíðinni.
(Sjá frétt EDIE 30. janúar).

Fyrstu vetnisstrætóarnir í Skotlandi 2014

Fyrstu vetnisstrætisvagnarnir í Skotlandi koma á götuna í Aberdeen snemma árs 2014, en þá verða gangsettir þar 10 vagnar sem eru hluti af vetnisverkefni skoskra stjórnvalda. Vetnið á vagnana verður framleitt með rafmagni frá nærliggjandi vindmyllum. Tilkoma vagnanna er talin styrkja ímynd Aberdeenborgar sem frumkvöðuls á sviði grænnar orku, en nú þegar er litið á borgina sem höfuðborg sjávarorkunýtingar í Evrópu.
(Sjá nánar í frétt EDIE 23. ágúst sl).