Vantar fleiri venjulega hjólreiðamenn

Hjól GoodwillRobert Goodwill, aðstoðarráðherra samgöngumála í bresku ríkisstjórninni, hefur lýst þeirri skoðun sinni að þörf sé á að fjölga venjulegu fólki á reiðhjólum, þ.e.a.s. fólki sem hjólar stuttar vegalengdir á hverjum degi í venjulegum fötum með körfu á bögglaberanum. Hann telur hjólreiðamenningu samtímans einkennist um of af „hjólanördum“ í þröngum hjólabúningum á sérútbúnum hjólum, sem taki álíka mikið tillit til bögglaberafólksins og ökumenn til „hjólanördanna“. Til að hjólreiðar verði útbreiddur samgöngumáti þurfi fólki að finnast þær henta sér, jafnvel þótt það sé orðið miðaldra eða yfir kjörþyngd.
(Sjá pistil The Guardian í dag).

1 hugrenning um “Vantar fleiri venjulega hjólreiðamenn

Skildu eftir svar við Pétur Þorleifsson Hætta við svar