Samþætta þarf aðgerðir til að draga úr myndun úrgangs

April 021 160Engin ein aðgerð dugar til að draga úr myndun úrgangs, heldur þarf að beita fleiri stjórntækjum samtímis. Þetta er meginniðurstaða 6 ára þverfaglegs rannsóknaverkefnis á vegum Umhverfisstofnunar Svíþjóðar (Naturvårdsverket) undir yfirskriftinni Sjálfbær meðhöndlun úrgangs. Ef ekkert er að gert er talið að úrgangsmagnið tvöfaldist fram til ársins 2030. Eitt af því sem Svíar telja koma til greina til að sporna við þessari þróun er að banna alfarið urðun og brennslu tiltekinna úrgangsflokka sem með góðu móti er hægt að endurvinna. Jafnframt þurfa að verða breytingar í hönnun til að gera endurvinnslu fýsilegri. Þannig þarf að draga úr notkun hættulegra efna í framleiðslu og hanna vörur þannig að auðvelt sé að taka þær í sundur og aðskilja mismunandi efni. Önnur aðgerð sem nefnd hefur verið til að draga úr myndun úrgangs er að veita sérstaka skattaafslætti vegna viðhalds tækja, svipað og tíðkast varðandi viðhald íbúðarhúsnæðis.
(Sjá fréttatilkynningu Naturvårdsverket 23. janúar).

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s