Í lok nóvember fékk Östersund í Svíþjóð formlega vottun sem réttlætisbær (e. Fairtrade City) og á næstu vikum fylgja Härnösand og Öckerö í kjölfarið. Þar með verða réttlætisbæir Svíþjóðar orðnir 54 talsins. Til að fá viðurkenningu af þessu tagi þurfa sveitarfélög að uppfylla tiltekin skilyrði um innkaup á réttlætismerktum vörur og vinna markvisst að félagslega sjálfbærri neyslu.
(Sjá frétt á heimasíðu Fairtrade í Svíþjóð 5. desember).
54 réttlætisbæir í Svíþjóð
2