Erfðabreyttur maís veldur heilsutjóni í rottum

Rottur sem fóðraðar eru á erfðabreyttum Roundup-þolnum maís lifa að meðaltali skemur og fá frekar æxli í mjólkurkirtla en aðrar rottur, auk þess sem þeim er mun hættara við lifrar- og nýrnaskemmdum. Þetta kom fram í rannsókn franskra vísindamanna sem sagt var frá í grein í vísindatímaritinu Food and Chemical Toxicology í gær. Umrædd erfðabreyting er til þess gerð að hægt sé að eyða illgresi á maísökrunum með plöntueitrinu roundup án þess að skaða maísplönturnar. Heilsufarsáhrifin komu fram í rannsókninni hvort sem erfðabreytti maísinn hafði verið úðaður með roundup eður ei.
(Sjá nánar á ScienceDirect í gær).

2 hugrenningar um “Erfðabreyttur maís veldur heilsutjóni í rottum

  1. Athyglisverð grein en fremur illskiljanleg. Ég gat hvergi fundið hvort munur á hópunum væri tölfræðilega marktækur.

    • Ég er sammála því að greinin er ekki sérlega vel skrifuð, hvorki hvað varðar tölfræðilegar skýringar, framsetningu né málfar. En hún stenst þó greinilega þær kröfur sem gerðar eru.

Færðu inn athugasemd