Í ljós hefur komið að mjölormar geta étið frauðplast eins og það sem notað er í einnota drykkjarmál. Frauðplastið er gert úr pólýstýreni, sem hingað til hefur verið mjög erfitt í endurvinnslu. Bandarískir neytendur henda árlega um 25 milljörðum frauðplastmála og þar í landi lenda samtals um 2 milljónir tonna af efninu í urðun á hverju ári. Svo virðist sem mjölormar geti étið pólýstýren án þess að verða fyrir heilsutjóni, en talin er þörf á að rannsaka það atriði nánar, svo og hvort ormar sem aldir hafa verið á pólýstýreni séu jafngott fóður og aðrir ormar. Gríðarlegan fjölda orma þyrfti til að brjóta niður pólýstýren í stórum stíl en vísindamenn binda vonir við að hægt verði að einangra og rækta bakteríur sem væntanlega gera ormunum kleift að melta plastið.
(Sjá frétt ENN 2. október).
Geta mjölormar losað okkur við frauðplast?
Svara