Þrengslaskattur í Gautaborg gefur góða raun

TrängselskattÞrengslaskattur (e. congestion tax) sem lagður er á ökutæki á helstu umferðaræðum á leið inn í Gautaborg hefur gefið góða raun. Gjaldtakan hófst um nýliðin áramót og strax í janúarmánuði var umferð um gjaldstöðvar 17% minni en í sama mánuði 2012. Á sama tíma jókst farþegafjöldi almenningsfarartækja um 13-18%. Í tengslum við þetta vinna borgaryfirvöld að því að fjölga bílastæðum utan gjaldsvæðanna verulega til að auðvelda fólki að geyma bíla sína þar og nota almenningssamgöngur á leið sinni inn í borgina.
(Sjá skýrslu Umferðarstofu Svíþjóðar 21. febrúar).

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s